Frjósemi á Íslandi aldrei verið minni

Frjósemi íslenskra kvenna var 1,75 börn á hverja konu, og hefur aldrei mælst minni frá því að mæl­ingar hófust árið 1853. Rétt um fjögur þús­und börn fædd­ust á Íslandi í fyrra.

Færri börn fæddust á Íslandi í fyrra en árið á undan.
Færri börn fædd­ust á Íslandi í fyrra en árið á undan. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Frjósemi kvenna á Íslandi er minni en nokkru sinni fyrr, og færri börn fædd­ust hér á landi í fyrra en árið á undan. 4.034 börn fædd­ust hér á landi í fyrra, en þau voru 4.129 árið á undan. Eftir hrun fór fjöldi fæð­inga yfir fimm þús­und börn árið 2009.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hag­stof­unni. Helsti mæli­kvarði á frjó­semi er fjöldi lif­andi fæddra barna á ævi hverrar konur. Yfir­leitt er miðað við það að frjó­semi þurfi að vera 2,1 barn á hverja konu til þess að við­halda mann­fjöld­anum til lengri tíma litið, en þetta hlut­fall á Íslandi er komið niður í 1,75 barn á hverja konu. Frjó­semin hefur aldrei mælst lægri frá því að mæl­ingar hófust árið 1853. Árið 2015 mæld­ist frjó­semin 1,81 barn á hverja konu, sem er næst­lægsta frjó­semi sem mælst hefur hér á landi.

Frjósemi hér á landi hefur verið með því mesta sem þekk­ist í Evrópu á síð­ustu árum. Frjó­semin í Evr­ópu­sam­bands­ríkj­unum 28 var til dæmis 1,58 að með­al­tali árið 2015.

Með­al­aldur mæðra hefur farið jafnt og þétt hækk­andi und­an­farna ára­tugi og konur eign­ast nú sitt fyrsta barn síðar á ævinni en áður. Fram yfir 1980 var með­al­aldur frumbyrja undir 22 árum, en hefur hækkað og var orð­inn 27,7 ár í fyrra. Algeng­asti barn­eigna­ald­ur­inn er 25 til 29 ára og á því ald­urs­bili fædd­ust 109 börn á hverjar þús­und konur í fyrra. Fæð­ing­ar­tíðni mæðra undir tví­tugu var 6,5 börn á hverjar þús­und konur sem er mjög lágt miðað við þegar hún fór hæst.

Fæðingarorlofstölur sýna fækkun fæðinga

Nýjar tölur frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði, sem Kjarninn greindi frá í gær, sýna sömu þróun. Í fyrra tóku 3.867 mæður fæð­ing­ar­or­lof, miðað við rétt tæp­lega 4.000 árið á undan. Ekki eiga allar mæður rétt á fæð­ing­ar­or­lofi, en sumar eiga rétt á fæð­ing­ar­styrk.

Litlar breyt­ingar hafa orðið á fæð­ing­ar­or­lofstöku mæðra und­an­farin ár, en þær taka að með­al­tali 182 daga í fæð­ing­ar­or­lof með börnum sínum. 96 pró­sent mæðra taka meira fæð­ing­ar­or­lof en þá þrjá mán­uði sem þær einar eiga rétt á að taka, og aðeins eitt pró­sent þeirra tekur minna. Mæður axla því ennþá meg­in­á­byrgð á umönnun barna þar til dag­vist­un­ar­úr­ræði taka við, og hluti af vand­anum er sá að engin trygg­ing er fyrir slíkum úrræðum þegar fæð­ing­ar­or­lofi lýkur hér á landi, eins og BSRB benti á í umfjöllun sinni um tölur Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs.

Feðrum fækkar og þeir taka minna orlof

Þeim feðrum sem taka fæð­ing­ar­or­lof hefur hins vegar farið ört fækk­andi und­an­farin ár, eftir að hámarks­greiðslur frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði voru skertar veru­lega. Flestir sem að fæð­ing­ar­or­lofs­málum koma eru sam­mála um það að ákvörðun stjórn­valda um að skerða hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði veru­lega eftir hrun hafi haft mikil áhrif, sér­stak­lega á töku feðra á fæð­ing­ar­or­lofi. Meðal ann­ars hefur Kristín Ást­geirs­dótt­ir, fram­kvæmda­stýra Jafn­rétt­is­stofu, sagt að þetta ein­staka kerfi, sem búið var að byggja upp á Íslandi hvað varðar fæð­ing­ar­or­lof karla, sé að molna niður fyrir framan okk­ur. Þetta hafi áhrif á ákvörðun fólks um að eign­ast börn.

Frá því að farið var að skerða hámarks­greiðslur úr sjóðnum eftir hrun hefur hlut­fall þeirra karla sem taka fæð­ing­ar­or­lof farið úr 90 pró­sent­um, árið 2008, í 74% í fyrra. Hlut­fallið í fæð­ing­ar­or­lofi feðra hefur ekki verið lægra á þessu tíma­bili en í fyrra, og það hefur lækkað hratt á milli ára. Árið 2015 nýttu 80 pró­sent feðra fæð­ing­ar­or­lof sem þeir áttu rétt á að ein­hverju leyti.

Að sama skapi taka feður sífellt færri daga í fæð­ing­ar­or­lofi, en í fyrra tóku feður að með­al­tali 75 daga í fæð­ing­ar­or­lof, en árið 2015 var með­al­talið 84 dag­ar, og fyrir hrun var það 101 dagur að með­al­tali. Ein­göngu ell­efu pró­sent feðra taka meira en þá þrjá mán­uði sem þeir eiga rétt á sam­kvæmt lög­um, en þetta hlut­fall var komið í 23 pró­sent árið 2008. Nú er einnig svo komið að helm­ingur feðra sem taka fæð­ing­ar­or­lof taka minna en þeir eiga rétt á, en hlut­fallið hefur aldrei verið hærra. Árið 2008 tóku aðeins 22% feðra styttra orlof en þrjá mán­uð­i.

Búið að hækka á ný

Talið er full­víst að skerð­ingar á hámarks­greiðslum úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði eftir hrun hafi haft mikil áhrif á fæð­ing­ar­or­lofstöku feðra og fæð­ing­ar­tíðni. Í októ­ber síð­ast­liðnum tók Eygló Harð­ar­dótt­ir, þáver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, þá ákvörðun að hækka hámarks­greiðsl­urnar úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði í 500 þús­und krón­ur, en fram að því hafði hámarkið um langt skeið verið 370 þús­und krón­ur, en eftir hrun fór þessi upp­hæð lægst niður í 300 þús­und krón­ur.

BSRB hefur bent á að fæð­ing­ar­or­lof má taka allt að 24 mán­uða aldri barns og því muni fyrstu for­eldrar sem njóta nýrra hámarks­greiðslna ekki koma inn í mæl­ing­arnar fyrr en í fyrsta lagi 15. októ­ber 2018. Því munu áhrifin ekki koma fram strax.

Starfs­hópur um fram­­­tíð­­­ar­­­stefnu í fæð­ing­­­ar­or­lofs­­­málum skil­aði til­­­lögum til Eyglóar í mars í fyrra. Þar var lagt til að hámarks­­­greiðslur yrðu hækk­­­aðar upp í 600 þús­und krón­­­ur, að fyrstu 300 þús­und krónur tekna verði óskertar en 80 pró­­­sent af tekjum umfram það. Þá lagði hóp­­­ur­inn til að hámarks­­­greiðsl­­­urnar myndu breyt­­­ast í sam­ræmi við launa­­­vísi­­­tölu hvers árs og að breyt­ing­­­arnar myndu taka gildi um síð­ustu ára­mót. Auk þess var lagt til að fæð­ing­­­ar­or­lof yrði 12 mán­uðir í stað níu frá og með byrjun árs 2019 og að leik­­­skóla­d­völ yrði tryggð í fram­haldi af fæð­ing­­­ar­or­lofi.

Eygló ætl­aði að leggja fram frum­varp sem byggð­ist á þessum til­lögum en af því varð ekki.

Núver­andi ráð­herra þess­ara mála, Þor­steinn Víglunds­son, ætlar að leggja fram frum­varp í haust þar sem hámarks­greiðsl­urnar verða hækk­aðar í 600 þús­und krónum í þremur skref­um. Hann hefur hins vegar ekki áform um að lengja fæð­ing­ar­or­lofið í 12 mán­uði, heldur sagt að for­gangs­at­riðið sé að hækka greiðsl­ur. Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hafa aftur á móti lagt fram frum­varp um leng­ingu orlofs­ins í 12 mán­uði, og það frum­varp er til með­ferðar í vel­ferð­ar­nefnd Alþing­is.

Í stjórn­­­ar­sátt­­mála nýrrar rík­­is­­stjórnar kemur þó fram að vinna þurfi mark­visst að því að tryggja börnum leik­­skóla- eða dag­vist þegar fæð­ing­­ar­or­lofi slepp­ir, með sam­eig­in­­legu átaki ríkis og sveit­­ar­­fé­laga. Ekki kemur fram með hvaða hætti þetta á að gera, né hvort stjórn­­völd vilji þá að slík vistun yrði í boði frá níu mán­aða aldri. Ekk­ert um þetta er sýn­i­­legt í fjár­­­mála­á­ætl­­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár