Enn færri feður taka fæðingarorlof

Þeim feðrum sem taka fæð­ing­ar­or­lof með börn­unum sínum fækkar hratt milli ára, og þeir sem taka orlof gera það í styttri tíma en áður. Á sama tíma taka mæður jafn­langt fæð­ing­ar­or­lof og áður, en fæð­ingum heldur áfram að fækka.

Sífellt færri karlar taka sér fæðingarorlof og þeir sem taka sér orlof eru að jafnaði frá vinnu í styttri tíma.
Sífellt færri karlar taka sér fæð­ing­ar­or­lof og þeir sem taka sér orlof eru að jafn­aði frá vinnu í styttri tíma. Mynd: Hvatinn

Þeim feðrum sem taka fæð­ing­ar­or­lof með börn­unum sínum hélt áfram að fækka í fyrra, sam­kvæmt nýjum tölum frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði. Færri feður taka fæð­ing­ar­or­lof en áður, og þeir sem taka orlof gera það í færri daga en áður.

Flestir sem að fæð­ing­ar­or­lofs­málum koma eru sam­mála um það að ákvörðun stjórn­valda um að skerða hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði veru­lega eftir hrun hafi haft mikil áhrif, sér­stak­lega á töku feðra á fæð­ing­ar­or­lofi. Meðal ann­ars hefur Kristín Ást­geirs­dóttir, fram­kvæmda­stýra Jafn­rétt­is­stofu, sagt að þetta ein­staka kerfi, sem búið var að byggja upp á Íslandi hvað varðar fæð­ing­ar­or­lof karla, sé að molna niður fyrir framan okkur.

Frá því að farið var að skerða hámarks­greiðslur úr sjóðnum eftir hrun hefur hlut­fall þeirra karla sem taka fæð­ing­ar­or­lof farið úr 90 pró­sentum, árið 2008, í 74% í fyrra. Hlut­fallið í fæð­ing­ar­or­lofi feðra hefur ekki verið lægra á þessu tíma­bili en í fyrra, og það hefur lækkað hratt á milli ára. Árið 2015 nýttu 80 pró­sent feðra fæð­ing­ar­or­lof sem þeir áttu rétt á að ein­hverju leyti.

Að sama skapi taka feður sífellt færri daga í fæð­ing­ar­or­lofi, en í fyrra tóku feður að með­al­tali 75 daga í fæð­ing­ar­or­lof, en árið 2015 var með­al­talið 84 dagar, og fyrir hrun var það 101 dagur að með­al­tali. Eingöngu ell­efu pró­sent feðra taka meira en þá þrjá mán­uði sem þeir eiga rétt á sam­kvæmt lögum, en þetta hlut­fall var komið í 23 pró­sent árið 2008. Nú er einnig svo komið að helm­ingur feðra sem taka fæð­ing­ar­or­lof taka minna en þeir eiga rétt á, en hlut­fallið hefur aldrei verið hærra. Árið 2008 tóku aðeins 22% feðra styttra orlof en þrjá mán­uði.

Konurnar bera meginábyrgð

Á sama tíma hefur lítið breyst í fæð­ing­ar­or­lofstöku mæðra. Þær taka nú að með­al­tali 182 daga í fæð­ing­ar­or­lof, en daga­fjöld­inn hefur verið sá sami frá árinu 2014, og aðeins sveifl­ast um örfáa daga á tíma­bil­inu frá 2007 til 2016, sem töl­urnar frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði ná yfir. 96 pró­sent mæðra taka meira fæð­ing­ar­or­lof en þá þrjá mán­uði sem þær einar eiga rétt á að taka, og aðeins eitt pró­sent þeirra tekur minna.

BSRB fékk töl­urnar um fæð­ing­ar­or­lofstöku frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði, og bendir á að mæl­ing­arnar sýni að það séu mæð­urnar sem axla meg­in­á­byrgð á umönnun barna þar til dag­vist­un­ar­úr­ræði taka við. „Hluti af vand­anum er sá að engin trygg­ing er fyrir dag­vist­un­ar­úr­ræði að loknu fæð­ing­ar­or­lofi hér á landi. Mörg sveit­ar­fé­lög á lands­byggð­inni bjóða börnum upp á leik­skóla­pláss frá eins árs aldri en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er það nær tveggja ára aldri. Reykja­vík­ur­borg hefur þó til­kynnt um að nokkrar leik­skóla­deildir fyrir unga­börn verði opn­aðar í haust,“ segir í frétt BSRB.

Bent er á það að sam­kvæmt tölum frá Hag­stof­unni eru lang­flest börn yngri en eins árs ekki í dag­vistun. Fæð­ing­ar­or­lofs­kerfið og stefna stjórn­valda í dag­vist­un­ar­málum hafi þau áhrif að mæður axli meg­in­á­byrgð á umönnun barna, sem hefur nei­kvæð áhrif á atvinnu­þátt­töku þeirra og getur haft áhrif á starfs­þró­un­ar­mögu­leika og tæki­færi.

Sýnir líka fækkun fæðinga

Það er fleira sem töl­urnar frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði sýna. Í fyrra tóku 3.867 mæður fæð­ing­ar­or­lof, sem gefur góða vís­bend­ingu um fjölda fæð­ingar hér á landi, þrátt fyrir að taka beri fram að töl­urnar fyrir 2015 og 2016 séu bráða­birgða­tölur. Rétt tæp­lega 4.000 mæður tóku fæð­ing­ar­or­lof árið 2015, og 4.249 árið þar á undan. Fjöldi mæðra sem tók fæð­ing­ar­or­lof náði hámarki á árunum eftir hrun, en árin 2009 og 2010 tóku 4.965 og 4.817 mæður orlof.

Mikið hefur einnig verið fjallað um lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni und­an­farin miss­eri. Til þess að við­halda mann­fjölda til langs tíma þarf hver kona að fæða 2,1 barn, en hlut­fallið hér á landi var komið niður fyrir 1,8 barn á hverja konu.

Búið að hækka á ný

Talið er full­víst að skerð­ingar á hámarks­greiðslum úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði eftir hrun hafi haft mikil áhrif á fæð­ing­ar­or­lofstöku feðra og fæð­ing­ar­tíðni. Í októ­ber síð­ast­liðnum tók Eygló Harð­ar­dóttir, þáver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, þá ákvörðun að hækka hámarks­greiðsl­urnar úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði í 500 þús­und krónur, en fram að því hafði hámarkið um langt skeið verið 370 þús­und krónur, en eftir hrun fór þessi upp­hæð lægst niður í 300 þús­und krónur.

BSRB hefur bent á að fæð­ing­ar­or­lof má taka allt að 24 mán­uða aldri barns og því muni fyrstu for­eldrar sem njóta nýrra hámarks­greiðslna ekki koma inn í mæl­ing­arnar fyrr en í fyrsta lagi 15. októ­ber 2018. Því munu áhrifin ekki koma fram strax.

Starfs­hópur um fram­­tíð­­ar­­stefnu í fæð­ing­­ar­or­lofs­­málum skil­aði til­­lögum til Eyglóar í mars í fyrra. Þar var lagt til að hámarks­­greiðslur yrðu hækk­­aðar upp í 600 þús­und krón­­ur, að fyrstu 300 þús­und krónur tekna verði óskertar en 80 pró­­sent af tekjum umfram það. Þá lagði hóp­­ur­inn til að hámarks­­greiðsl­­urnar myndu breyt­­ast í sam­ræmi við launa­­vísi­­tölu hvers árs og að breyt­ing­­arnar myndu taka gildi um síð­ustu ára­mót. Auk þess var lagt til að fæð­ing­­ar­or­lof yrði 12 mán­uðir í stað níu frá og með byrjun árs 2019 og að leik­­skóla­d­völ yrði tryggð í fram­haldi af fæð­ing­­ar­or­lofi.

Eygló ætl­aði að leggja fram frum­varp sem byggð­ist á þessum til­lögum en af því varð ekki.

Núver­andi ráð­herra þess­ara mála, Þor­steinn Víglunds­son, ætlar að leggja fram frum­varp í haust þar sem hámarks­greiðsl­urnar verða hækk­aðar í 600 þús­und krónum í þremur skrefum. Hann hefur hins vegar ekki áform um að lengja fæð­ing­ar­or­lofið í 12 mán­uði, heldur sagt að for­gangs­at­riðið sé að hækka greiðslur. Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hafa aftur á móti lagt fram frum­varp um leng­ingu orlofs­ins í 12 mán­uði, og það frum­varp er til með­ferðar í vel­ferð­ar­nefnd Alþingis.

Í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar kemur þó fram að vinna þurfi mark­visst að því að tryggja börnum leik­skóla- eða dag­vist þegar fæð­ing­ar­or­lofi slepp­ir, með sam­eig­in­legu átaki ríkis og sveit­ar­fé­laga. Ekki kemur fram með hvaða hætti þetta á að gera, né hvort stjórn­völd vilji þá að slík vistun yrði í boði frá níu mán­aða aldri. Ekk­ert um þetta er sýni­legt í fjár­mála­á­ætl­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár