Yfir 900 á biðlista eftir félagslegu húsnæði í borginni

Yfir 900 manns eru nú á biðlista eftir félags­legu leigu­hús­næði í Reykja­vík, en í upp­hafi síð­asta árs voru rúm­lega 700 á list­anum. Langstærsti hóp­ur­inn eru ein­hleypir karl­menn, og flestir bíða hús­næðis mið­svæðis.

914 ein­stak­lingar voru á biðlista eftir félags­legu hús­næði í Reykja­vík­ur­borg í byrjun þessa mán­aðar. Þetta má lesa út úr gagna­safni vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, sem hefur verið birt á net­inu. Biðlisti eftir félags­legu hús­næði hefur lengst um tæp­lega 200 manns frá upp­hafi síð­asta árs.

Langstærsti hóp­ur­inn sem er á biðlista eftir félags­legu leigu­hús­næði í Reykja­vík eru ein­hleypir karl­menn. Meira en helm­ingur þeirra sem eru á biðlista eftir slíku hús­næði til­heyra þessum hópi, eða 483 tals­ins af 914.

Næst­stærsti hóp­ur­inn sem bíður eftir félags­legu leigu­hús­næði eru ein­hleypar konur, 221 tals­ins. Þriðji stærsti hóp­ur­inn sem bíður eftir íbúð eru ein­stæðar mæður, en þær eru 157. 25 hjón eða sam­býl­is­fólk með börn bíða félags­legs leigu­hús­næðis og 16 barn­laus hjón eða sam­býl­is­fólk. Tólf ein­stæðir feður eru á biðlista eftir félags­legu leigu­hús­næði.

Biðlistar eftir félags­legu hús­næði hafa lengst í borg­inni frá árinu 2013, en gagna­safn borg­ar­innar nær aftur til byrj­unar árs­ins 2013 hvað þetta varðar. Nú eru sem fyrr segir 914 á biðlista eftir félags­legu hús­næði í borg­inni, en fjöld­inn fór fyrst yfir 900 í febr­úar síð­ast­liðnum, líkt og sjá má á mynd­inni hér að neðan.

Mest er eft­ir­spurnin eftir eins til tveggja her­bergja íbúðum, en 696 eru á biðlista eftir slíkum íbúðum. 141 er að bíða eftir þriggja her­bergja íbúð og 77 bíða eftir fjög­urra her­bergja íbúð eða stærri. 

Biðlist­inn eftir íbúðum er lang­lengstur í Vesturbæ, mið­borg og Hlíðum, þar sem 305 mans eru á biðlista eftir íbúðum í þeim hverfum. 201 er á biðlista eftir íbúð í Laug­ar­dal og Háaleiti og 158 í Breið­holti. 135 eru á biðlista eftir íbúð í Árbæ og Graf­ar­holti og 115 í Graf­ar­vogi og á Kjal­ar­nesi.

Biðlist­arnir eru flokk­aðir niður eftir þjón­ustu­mið­stöðvum borg­ar­innar. Lengdin á biðlist­unum hefur breyst nokkuð frá því árið 2013, en þá voru fleiri á biðlista eftir íbúðum í Breið­holti en í Vesturbæ, mið­borg og Hlíðum.

Árið 2014 fækk­aði á biðlista eftir félags­legu hús­næði í Breið­holti úr 230 í upp­hafi árs í 160 í lok árs, á meðan biðlist­inn í Vesturbæ, mið­borg og Hlíðum lengd­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár