Lilja Björk tekin við Landsbankanum

Lilja Björk Ein­ars­dóttir hóf í dag störf sem banka­stjóri Lands­bank­ans.

Lilja Björk Ein­ars­dóttir hóf störf í dag sem banka­stjóri Lands­bank­ans, en hún var ráðin banka­stjóri í jan­úar síð­ast­liðnum.

Lilja stýrði á árunum 2008 til 2016 starf­semi, eigna­um­sýslu og end­ur­heimt eigna gamla Lands­banka Íslands, LBI ehf., í London. Á árunum 2005 til 2008 var hún sér­fræð­ingur og síðar fram­kvæmda­stjóri hjá Lands­banka Íslands hf. í London og bar m.a. ábyrgð á dag­legum rekstri og upp­bygg­ingu stoð­deilda. Áður vann Lilja hjá ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­inu Marsh & McLennan frá 2003 til 2005 og vann m.a. verk­efni fyrir For­d-bíla­fram­leið­and­ann, sem sér­fræð­ingur í gerð áætl­ana og áhættu­lík­ana fyrir vátrygg­ing­ar­svið og fjár­stýr­ing­u. Lilja útskrif­að­ist sem véla- og iðn­að­ar­verk­fræð­ingur frá Háskóla Íslands árið 1998 og lauk meist­ara­prófi í fjár­mála­verk­fræði frá Michig­an-há­skóla í Ann Arbor í Banda­ríkj­unum árið 2003.

Lilja Björk var valin úr hópi 43 umsækj­enda, en staðan var aug­lýst í kjöl­far þess að Steinþór Pálsson lét af störfum í lok síð­asta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár