Ný gullnáma í hagkerfinu: Bílaleigur

Stærsta bíla­leigu­fyr­ir­tækið á Íslandi var með tæp­lega 4.500 bíla á sínum snærum í fyrra.

Vöxt­ur­inn hjá bíla­leigum hér á landi hefur verið - eins og margt annað sem teng­ist ferða­þjón­ust­unni - með miklum ólík­indum. Í fyrra er talið að yfir 20 þús­und bíla­leigu­bílar hafi verið á göt­unni, sem nemur um 10 pró­sent af öllum bíla­flota lands­manna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íslands­banka um ferða­þjón­ust­una.

Bíla­leigu­flot­inn taldi 20.847 bíla þegar hann var hvað stærstur á árinu 2016 sam­an­borið við 15.400 bíla árið 2015, að því er fram kemur í skýrsl­unni.

Það jafn­gildir því að næstum 1 af hverjum 10 bílum á land­inu sé bíla­leigu­bíll. „Milli­stórum og stórum rekstr­ar­að­ilum á bíla­leigu­mark­aðnum fjölgar ennþá. Um 85% af bílum í bíla­leigu­flot­anum eru í eigu 20 stærstu aðil­anna á mark­aðnum. Eftir 2008 hafa um 43% af öllum seldum nýjum bílum farið til bíla­l­eigna,“ segir í skýrsl­unni.

Á árinu 2016 keyptu bíla­leigur um 9.250 nýja bíla eða um 42% af heild­ar­söl­unni. Vart þarf að taka fram að slíkt hlut­fall hefur aldrei sést hér á landi.

Búist er við að velta bíla­leigu­grein­ar­innar muni nema allt að 60 millj­örðum króna á árinu 2017, sam­an­borið við 35 millj­arða árið 2015, að því er segir í skýrsl­unni.

Stærsta fyr­ir­tækið á íslenska mark­aðnum er Höldur/Bíla­leiga Akur­eyrar/Europcar, sem allt eru vöru­merki undir sama fyr­ir­tækja­hatt­inum. Það fyr­ir­tæki var með tæp­lega 4.500 bíla­leigu­bíla á sínum snærum í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár