Uppbygging sem hefur verið ævintýri líkust

Bræð­urnir Hörður og Árni Sig­ur­bjarn­ar­synir fengu á dög­unum nýsköp­un­ar­verð­laun Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands fyrir upp­bygg­ingu Norð­ur­sigl­ingar. Nú sækir fyr­ir­tækið fram í Noregi.

Hvala­skoðun á Húsavík hefur vaxið jafnt og þétt sem atvinnu­vegur í bænum en í fyrra fóru 110 þús­und gestir í hvala­skoðun í bænum, að því er fram komu í erindi Guð­bjarts Ellerts Jóns­sonar, fram­kvæmda­stjóra Norð­ur­sigl­ingar, sem er stærsta ferða­þjón­ustu fyr­ir­tækið í bænum og hefur boðið upp á hvala­skoðun á Skjálf­anda við Húsavík frá árinu 1995. Þá komu 1.500 gestir.

Fleiri fyr­ir­tæki bjóða einnig upp á hvala­skoðun á Skjálf­anda, sam­hliða annarri starf­semi. Svo sem Húsavík adventures, Gentle Giants og Salka Whale Watching, en aðstanendur þess félags reka einnig veit­inga­stað­inn Sölku, í hjarta bæj­ar­ins.

Greint er frá ítar­legu erindi Guð­bjarts á vef Fram­sýnar, stétt­ar­fé­lags.

Vöxt­ur­inn hefur verið stöð­ugur alveg frá stofnun og voru gest­irnir sem heim­sóttu Húsavík gagn­gert til að fara í hvala­skoðun um 40 þús­und tals­ins árið 2007.

Síðan hefur vöxt­ur­inn orðið enn meiri, eftir að ferða­þjón­usta tók mik­inn kipp í land­inu, frá árinu 2010. Útlit er fyrir áfram­hald­andi vöxt fyr­ir­tæk­is­ins og er það nú búið að setja á fót dótt­ur­fé­lag í Noregi sem hefur hafið starf­semi, og býður upp á sigl­ingar, hvala­skoðun og skíða­ferðir í norður Noregi.

Á dög­unum fengu bræð­urnir Hörður og Árni Sig­ur­bjarn­ar­synir, sem eiga ríf­lega helm­ings­hlut í Norð­ur­sigl­ingu og eru jafn­framt stofn­endur fyr­ir­tæk­is­ins, nýsköp­un­ar­verð­laun Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands fyrir starf sitt við upp­bygg­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Eigendur þess eru nú sjóð­ur­inn Eldey, sem á ríf­lega 36 pró­sent hlut, fyrr­nefndir Hörður og Árni, sem eiga um 25 pró­sent hlut hvor, og Heimir Harð­ar­son, sonur Harðar og starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins frá stofnun, með ríf­lega 13 pró­sent hlut.

Í dag telur skipa­floti félags­ins 10 skip þar af 4 skútur. Á árinu 2016 var starfs­manna­fjöldi í heild­ina yfir 150 starfs­menn, og heild­ar­fjár­fest­ingar námu yfir 500 millj­ónum króna.

Guð­bjartur lét hafa eftir sér í erind­inu að í rekstri sem þessum þyrfti þor og kænsku til að ná settu marki. „Menn verða að þora að þora,“ sagði Guð­bjartur Ellert, að því er segir á vef Fram­sýnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár