Þynningarsvæðið átti að minnka en ekkert hefur gerst

Rio Tinto, eig­andi ál­vers­ins í Straums­vík, lýsti því yfir í janú­ar 2007, fyr­ir rúm­um tíu árum, að þynn­ing­ar­svæði ál­vers­ins yrði minnkað um 70 pró­sent, vegna þess að gríð­ar­leg þróun hefði orðið í meng­un­ar­vörn­um. Síðan hef­ur ekk­ert gerst, að því er fram kemur í Morg­un­blað­inu í dag.

Ólaf­ur Ingi Tóm­as­son, for­maður skipu­lags- og bygg­ing­ar­ráðs Hafn­ar­fjarðar, seg­ir í við­tali við blaðið að bæ­inn vanti hluta þess svæðis sem er á þynn­ing­ar­svæð­inu og því verði nú gerð út­tekt og sam­an­b­urður á þynn­ing­ar­svæðum við ál­ver í Hval­f­irði og á Reyðarf­irði.

„Það varðar mikla hags­muni hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ að þynn­ing­ar­svæðið verði minnkað... Við höf­um þurft að synja fyr­ir­tækj­um um lóðir og rekstr­ar­leyfi vegna þess að svæðið hef­ur enn ekki verið minnkað,“ seg­ir Ólaf­ur Ingi í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blað­inu í dag.

Hann seg­ir, í við­tali við blaðið, að fátt hafi verið um svör hjá Rio Tinto þegar bæj­ar­full­trú­ar Hafn­ar­fjarðar hafi hitt full­trúa fyr­ir­tæk­is­ins að máli og spurt út í áform um minnk­un svæðis­ins. Ekkert hefur gerst, og algjör­lega komið að tómum kof­anum hjá fyr­ir­tæk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár