Mogginn líkir því að kalla sjálfstæðismenn spillta við hatursorðræðu

Í nafn­lausum rit­stjórn­arp­istli í Morg­un­blað­inu í dag er vísað til orða Dóru Bjartar Guð­jóns­dóttur borg­ar­full­trúa um spill­ingu, græðgi og sér­hags­muni sjálf­stæð­is­manna. Þau eru sett í sam­hengi við hatur á útlend­ingum og sam­kyn­hneigðum.

Mogginn líkir því að kalla sjálfstæðismenn spillta við hatursorðræðu
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir Borg­ar­full­trú­inn var kall­aður „drullu­sokkur“ og „skíta­dreif­ari“ á fundi borg­ar­stjórnar í gær.

Er það hat­urs­orð­ræða að kalla sjálf­stæð­is­menn spillta, gráð­uga eða arð­ræn­ingja? Að þessu er spurt í rit­stjórn­arp­istl­inum Stak­steinum í Morg­un­blað­inu í dag.

Pistill­inn birt­ist í fram­haldi af því að Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, kall­aði Dóru Björt Guð­jóns­dóttur, borg­ar­full­trúa Pírata, „drullu­sokk“ og „skíta­dreifara“ á fundi borg­ar­stjórnar í gær. Vigdís sagði Dóru Björt hafa „hraunað yfir“ Sjálf­stæð­is­flokk­inn í ræðu sinni og „drulla yfir“ Mið­flokk­inn.

Stak­steinar eru nafn­laus pist­ill, en Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen eru rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins. „Dóra Björt Guð­jóns­dóttir pírati er for­maður mann­rétt­inda-, nýsköp­unar- og lýð­ræð­is­ráðs hjá Reykja­vík­ur­borg,“ segir í upp­hafi pistils­ins. „Eitt af því sem ráðið hefur áhuga á er að vinna gegn hat­urs­orð­ræðu.“

Í fram­hald­inu er vísað í bókun ráðs­ins gegn for­dómum og hat­urs­orð­ræðu í garð fólks af erlendum upp­runa. „Tveimur vikum eftir þessa bókun rit­aði for­maður ráðs­ins grein í Mannlíf þar sem farið er ófögrum orðum um þann hóp fólks sem telst sjálf­stæð­is­menn og meðal ann­ars sagt að full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins séu „frægir fyrir spill­ingu og sér­hags­muna­gæslu. Það er orðið dag­legt brauð að sýnt sé fram á spill­ingu kjör­inna full­trúa stærsta flokks lands­ins án þess að það hafi neinar afleið­ingar“,“ segir í Stak­steinum.

Hugtakið hat­urs­orð­ræða (e. hate speech) nær yfir orð­ræðu sem bein­ist gegn ein­stak­lingi eða hópi vegna þess hver þau eru og er refsi­verð sam­kvæmt íslenskum lögum. „Hver sem opin­ber­lega hæð­ist að, róg­ber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða ann­ars konar tján­ingu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóð­ernis, lit­ar­háttar, kyn­þáttar, trú­ar­bragða, kyn­hneigðar eða kyn­vit­undar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 2 árum,“ segir í 233. gr. a. í almennum hegn­ing­ar­lögum.

„Getur ekki verið að þetta sé hat­urs­orð­ræða?“

Stak­steinar velta því þó upp hvort hat­urs­orð­ræða nái einnig til hóps­ins sem skráir sig í Sjálf­stæð­is­flokk­inn. „[Dóra Björt] bætir því við að hún hafi haldið „að sjálf­stæð­is­menn létu sér duga að arð­ræna okkur Íslend­inga. En nei, betur má ef duga skal til þess að fóðra þessa ómett­andi græðg­ismask­ínu sem þekkir engin tak­mörk“, og klykkir út með því að flokk­ur­inn sé flokkur sér­hags­muna, spill­ingar og yfir­gengi­legrar græðgi. Getur ekki verið að þetta sé hat­urs­orð­ræða?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár