Vigdís kallar Dóru Björt „drullusokk“ og „skítadreifara“

Vigdís Hauks­dóttir vís­aði í reglur um vel­sæmi í mál­flutn­ingi í pontu og óskaði svo borg­ar­full­trúa til ham­ingju með nafn­bót­ina „drullu­sokkur meiri­hlut­ans“.

Vigdís Hauksdóttir og Dóra Björt Guðjónsdóttir Vigdís nefndi Dóru Björt illum nöfnum á fundi borgarstjórnar.

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, kall­aði Dóru Björt Guð­jóns­dóttur, borg­ar­full­trúa Pírata, drullu­sokk og skíta­dreifara á fundi borg­ar­stjórnar rétt í þessu. Þetta átti sér stað í umræðum um fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar 2020.

Dóra hafði rætt um ákvarð­anir sem teknar voru af Sjálf­stæð­is­flokknum í fjár­málum borg­ar­innar á fyrri árum og ann­arra sveit­ar­fé­laga og gagn­rýnt for­gangs­röðun flokks­ins þegar Vigdís kom upp í and­svar. „Í fund­ar­sköpum er sú heim­ild að stoppa ræðu­mann ef að mál­flutn­ing­ur­inn fer úr hófi fram,“ sagði Vigdís. „Hér hefur einn borg­ar­full­trúi meiri­hlut­ans tekið að sér að vera drullu­sokkur meiri­hlut­ans. Því það er alveg sama hvað er til umræðu hér í borg­ar­stjórn­ar­salnum, það er alltaf hraunað yfir flokk­ana, þá aðal­lega Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Nú var hægt að drulla yfir Mið­flokk­inn líka. Borg­ar­full­trú­inn er geng­inn úr sal og þolir ekki að heyra sann­leik­ann. En ég óska henni til ham­ingju með nafn­bót­ina að vera drullu­sokkur meiri­hlut­ans.“

„Ég óska henni til ham­ingju með nafn­bót­ina að vera drullu­sokkur meiri­hlut­ans“

Dóra Björt kom þá í pontu og benti á að Vigdís hefði vísað í heim­ild til að stoppa ræðu vegna óhóf­legs mál­flutn­ings, en síðan kallað hana drullu­sokk. „Áhuga­vert, flott hjá þér Vigdís,“ sagði hún.

Vigdís bað þá við­stadda um að rifja upp fyrri ræður Dóru Bjartar. „Það þarf ekki annað en að sjá það og heyra og lesa ræð­urnar hvað fólk hér inni þarf að sitja undir þegar hún er hér í ræðu­stól, þessi skíta­dreif­ari.“

Bað þá Pawel Bartoszek, for­seti borg­ar­stjórnar, borg­ar­full­trúa um að gæta vel­sæmis í orða­vali sínu. Hann bætti því við að gagn­rýni á póli­tíska hug­mynda­fræði væri í lagi hvaðan sem hún kæmi en ekki að nota hug­tök sem inni­haldi orðið skít eða afleiddar orð­myndir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár