Fjöldamótmæli gegn spillingu bera árangur í Rúmeníu

Í vik­unni sem leið mót­mæltu allt að sex hund­ruð þús­und manns í Rúmeníu. Mótmælin eru þau stærstu í land­inu síðan 1989 þegar ein­ræð­is­herr­ann Nicolae Ceaușescu var hrak­inn frá völdum og þau virð­ast hafa borið árangur, til skamms tíma að minnsta kosti.

Efnt var til þing­kosn­inga í Rúmeníu í des­em­ber í fyrra eftir að fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, Victor Ponta, sem sætti ásök­unum um spill­ingu, sagði af sér nokkrum mán­uðum áður eftir að bruni sem kom upp á skemmti­stað í Búkarest olli því að þrjá­tíu og tveir létu lífið. Jafn­að­ar­manna­flokk­ur­inn Partidul Social Democrat (PSD) vann stór­sigur í kosn­ing­unum og hlaut um 46% atkvæða þótt kosn­inga­þátt­taka hafi ein­ungis verið um 39,5%, og hóf það vanda­sama verk að skipa rík­is­stjórn. Eftir því sem leið­togi PSD, Liviu Dragnea, hlaut tveggja ára skil­orðs­bund­inn fang­els­is­dóm árið 2012 fyrir kosn­inga­fúsk í tengslum við þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort höfða ætti mál gegn þáver­andi for­seta lands­ins, Traian Băsescu, gat hann sam­kvæmt lögum ekki verið útnefndur for­sæt­is­ráð­herra.

Tog­streita skap­að­ist á milli for­seta lands­ins, Klaus Iohannis, sem er úr frjáls­lynda flokknum Partidul Național Liberal (PNL), og Dragnea þegar Iohannis hafn­aði útnefn­ingu Sevil Shhaideh í for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn án þess að gefa upp ástæðu, en skip­unin tókst í annarri til­raun þegar Sorin Grindeanu, fyrr­ver­andi sam­skipta­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Ponta, tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra rétt fyrir ára­mót.

Næsta spurning

Óhætt er að segja að stjórn­ar­tíð Grindeanu hafi byrjað með látum en þann 31. jan­úar sam­þykkti hún til­skipun þar sem spill­ing­ar­mál opin­berra aðila sem námu minna en and­virði 200.000 rúm­enskra lei, eða um 47.600 banda­ríkja­dala, yrðu felld niður. Rökin fyrir til­skip­un­inni voru tví­þætt; að sam­ræma refsirétt­ar­lög­gjöf við stjórn­ar­skrá, og sam­tímis draga úr vanda­málum tengd yfir­fullum fang­elsum lands­ins. Þá er vert að nefna að til­skip­unin myndi einnig ná til Liviu Dragnea en hann hefur verið sak­aður um að mis­nota stöðu sína til að veita samn­inga til banda­manna sinna að and­virði 26.000 banda­ríkja­dala sem síðan aldrei voru fram­fylgdir.

Þegar til­skip­unin var til­kynnt vakti athygli að dóms­mála­ráð­herra Rúmeníu, Florin Iordache, svar­aði heilum 24 sinnum spurn­ingum blaða­manna með svar­inu „alta intrebare“ eða „næsta spurn­ing“. Sá frasi varð fljótt eitt vin­sælasta kall fjölda­mót­mæl­anna sem hófust strax sama dag þegar um 15 þús­und manns um land allt söfn­uð­ust saman þrátt fyrir níst­ings­kulda. Mótmælin stig­mögn­uð­ust dag frá degi og um sunnu­dags­kvöldið 5. febr­úar töldu þau um 600 þús­und manns þrátt fyrir að rík­is­stjórnin til­kynnti fyrr um dag­inn að þau hefðu dregið til­skip­un­ina til baka. Það reynd­ist ekki vera nóg til að ná sáttum og héldu fjölda­mót­mælin áfram í þess­ari viku og köll­uðu mót­mæl­endur eftir því að rík­is­stjórnin segði af sér en hún lifði af van­traust­s­til­lögu sem kosið var um á þingi 8. febr­úar. Á fimmtu­dag­inn sagði síðan dóms­mála­ráð­herr­ann Iordache af sér til að koma til móts við mót­mæl­endur og mun PSD-rík­is­stjórnin vona að það sé nóg til að draga úr þeim óstöð­ug­leika sem hefur ein­kennt landið und­an­farnar tvær vikur.

Nýtt skref í baráttunni gegn spillingu

Rúmenía er þriðja spilltasta land Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB), á eftir Búlgaríu og Ítalíu, sam­kvæmt Corruption Perception Index sem er útbúið árlega af Transparency International og er landið undir sér­stöku spill­ing­ar­eft­ir­liti fram­kvæmda­stjórnar ESB. Spill­ing­ar­eft­ir­lit Rúmeníu (DNA) hefur reynt að beita sér af hörku síð­ustu ár undir umsjón Laura Codruța Kövesi, aðal­sak­sókn­ara DNA, og höfð­aði til að mynda mál gegn 1250 opin­berum starfs­mönnum, þar á meðal þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Ponta, árið 2015 og 777 á fyrstu átta mán­uðum 2016. DNA er af mörgum talin vera ein öfl­ug­asta spill­ing­ar­eft­ir­lits­stofnun innan ESB en reynst hefur verið gríð­ar­lega erfitt að fletta ofan af þeirri spill­ingu sem fylgir rót­grónu fyr­ir­greiðslu­kerfi sem hefur ein­kennt rúm­ensk stjórn­mál í ára­tugi en DNA sætir einnig gagn­rýni fyrir að vera of áköf í sínu eft­ir­liti og hafa óeðli­lega sterk tengsl við leyni­þjón­ustu lands­ins, SRI. Sam­sær­is­kenn­inga­keimur er af slíkri gagn­rýni en auð­velt er að benda á að sam­starf DNA við SRI sé gott fyrir báða aðila; það leyfir DNA að auka skil­virkni spill­ing­ar­eft­ir­lits á meðan að það leyfir SRI að fylgj­ast með og höfða mál gegn hverjum þeim ein­stak­lingum sem þeim sýn­ist. Það vekur athygli að um 92% af þeim málum sem DNA höfðar leiða til dóms en slíkar tölur eiga meira skylt við ein­ræð­is­ríki þar sem rétt­indi verj­enda eru af skornum skammti.

Þó svo að fjölda­mót­mælin virð­ast hafa borið árangur, að minnsta kosti til skamms tíma er búist við að rík­is­stjórnin muni setja fram efni mis­heppn­uðu til­skip­un­ar­innar fram sem þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í stað­inn og sterk staða PSD í þing­inu mun lík­lega leiða til þess að hún verði sam­þykkt. ESB for­dæmdi til­skipun PSD-rík­is­stjórn­ar­innar um leið og hún var lögð fram og sögðu í yfir­lýs­ingu að óaft­ur­kræfar fram­farir gegn spill­ingu í Rúmeníu séu skil­yrði fyrir því að landið geti hætt að vera undir sér­stöku eft­ir­liti ESB. Landið er talið tapa á milli 16 og 33 millj­arða banda­ríkja­dala á ári til spill­ingar og er ljóst að ef efni til­skip­un­ar­innar verði að veru­leika í gegnum lög­gjöf er það stórt skref aft­urá­bak.

Þrátt fyrir að bar­áttan gegn spill­ingu í Rúmeníu er ekki jafn svart og hvít eins og hún gæti virst við fyrstu sýn er ljóst að hin gríð­ar­lega fjöl­mennu mót­mæli síð­ustu daga sýna skýrt að almenn­ingur í land­inu hefur fengið nóg af því hvernig stjórn­ar­háttum er almennt hagað í land­inu. Rúmenía, eins og flest önnur lönd, á langt í land með auka traust almenn­ings á kerf­inu og er bar­áttan gegn spill­ingu skil­grein­ing­unni sam­kvæmt enda­laus. Óljóst er hver fram­þró­unin í land­inu verður en á jákvæðum nótum má segja að vænt­ingar fólks til bættra stjórn­ar­hátta hafa komið betur í ljós á síð­ustu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár