Fyrstu skotin í stríðinu gegn vísindum

Rík­is­stjórn Trump byrjuð að þagga niður í stofn­unum sem fjalla um lofts­lags­vís­indi. Leiðandi lofts­lags­vís­inda­maður ótt­ast að ný bylgja lofts­lagsaf­neit­unar hefj­ist á tímum gervi­frétta.

Enn var mán­uður til stefnu þar til Donald Trump tæki við lykla­völdum í Hvíta hús­inu þegar vís­inda­menn í Banda­ríkj­unum og víðar byrj­uðu í offorsi að afrita og koma lofts­lags­gögnum í öruggt skjól. Ótti þeirra var sá að verð­andi for­set­inn með þing­meiri­hluta Repúblikana­flokks­ins að baki sér gæti byrjað að fjar­lægja upp­lýs­ingar opin­berra stofn­ana á sviði lofts­lags­vís­ind­anna sem þeim er í nöp við.

Á þeim tíma virt­ust aðgerðir vís­inda­mann­anna nokkuð tauga­veiklðar og jafn­vel þeir sem stóðu að þeim við­ur­kenndu að þær væru fyrst og fremst í var­úð­ar­skyni. „Ég held ekki í raun að þetta muni ger­ast en ég hugsa að það gæti gerst,“ sagði veð­ur­fræð­ing­ur­inn Eric Holthaus sem hafði frum­kvæði að því að vís­inda­menn tækju saman lista yfir gögn sem brýnt væri að glöt­uð­ust ekki við Washington Post í des­em­ber.

Nú þegar for­seta­tíð Trump er ekki orðin viku­gömul lítur út fyrir að ótti vís­inda­mann­anna hafi verið á rökum reistur. Með minn­is­blaði sem sent var yfir­mönnum Umhverf­is­stofn­unar Banda­ríkj­anna (EPA) í vik­unni var starfs­mönnum hennar í sem ein­föld­ustu málið skipað að halda sér saman.

Þeim var bannað að tjá sig opin­ber­lega, hvort sem er við fjöl­miðla eða á opin­berum vett­vangi, þeir skyldu hætta að birta fréttir og rann­sóknir á vef­síðu stofn­un­ar­innar, blogg­síðum eða sam­skipta­miðlum. Allar vís­inda­rann­sóknir og gögn þurfa nú að hljóta blessun póli­tískt skip­aðra full­trúa áður en þau koma fyrir augu almenn­ings. Á sama tíma voru allir rann­sókn­ar­styrkir sem stofn­unin veitir frystir með til­heyr­andi fjár­hags­legri óvissu fyrir fjölda rann­sak­enda og dokt­or­snema.

Þessi ákvörðun um að múl­binda Umhverf­is­stofn­un­ina var ekki kynnt opin­ber­lega af hálfu Trump-stjórn­ar­innar en hún rataði engu að síður í fjöl­miðla eftir að ónafn­greindir starfs­menn stofn­un­ar­innar láku upp­lýs­ing­unum. Breska blaðið The Guardian hefur eftir fyrr­ver­andi starfs­mönnum EPA að tak­mark­an­irnar sem Trump hefur lagt á hana gang langt um fram það sem fyrri rík­is­stjórnir hafi sett henni.

Uppreisnin á Twitter

Þöggunin á opin­berum stofn­unum sem hafa með vís­indi að gera nær ekki aðeins til Umhverf­is­stofn­un­ar­innar heldur fjölda ann­arra, þar á meðal þjóð­garða um gjörvöll Banda­ríkin. Þeim var sömu­leiðis meinað að miðla upp­lýs­ingum til almenn­ings á vef­síðum, blogg­síðum og sam­fé­lags­miðlum. Ekki hafa allir tekið þessum kvöðum þegj­andi og hljóða­laust. Þannig sendi ósáttur starfs­maður Badlands-þjóð­garðs­ins í Suður-Dakóta út fjölda tísta um lofts­lags­breyt­ingar á Twitter-síðu garðs­ins á þriðju­dag. Tug­þús­undir deildu tíst­unum en skömmu síðar var þeim öllum eytt.

Tíst­bylt­ingin til varnar lofts­lags­vís­indum breidd­ist hins vegar út. Innan skamms hafði fjöldi Twitter-síðna sprottið upp í nafni ýmissa stofn­ana eins og Þjóð­garðs­þjón­ustu Banda­ríkj­anna og geim­vís­inda­stofn­un­ar­innar NASA sem tístu upp­lýs­ingum um lofts­lags­mál og gagn­rýni á aðgerðir Trump.

Á sam­fé­lags­miðlum hefur jafn­framt mikil umræða átt sér stað um að vís­inda­menn standi fyrir mót­mæla­göngu gegn því sem þeir sjá sem árásir nýrra vald­hafa á vís­indin.

Repúblikanar hafna vísindunum

Þótt fjöldi vís­inda­manna með fjöl­breytt sér­svið hafi lýst þungum áhyggjum sínum af afstöðu nýja for­set­ans og rík­is­stjórnar hans til vís­inda almennt eru það afdrif loft­lags­vís­inda í þessum nýja póli­tíska veru­leika sem vekur helst ótta þeirra. Stór hluti repúblik­ana hafnar enn við­teknum vís­indum sem segja að menn valdi lofts­lags­breyt­ingum á jörð­inni með losun sinni á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum, fyrst og fremst með bruna á kolum, olíu og gasi.

Afneit­unin nær ekki aðeins til þing­manna flokks­ins heldur til venju­legra Banda­ríkja­manna sem styðja hann. Könnun Pew-rann­sókn­stofn­un­ar­innar síð­asta haust leiddi í ljós að aðeins 11% íhalds­samra repúblik­ana töldu að vís­inda­menn skildu orsakir lofts­lags­breyt­inga vel og 24% hóf­samra repúblik­ana. Svipað hlut­fall var sam­mála þeirri full­yrð­ingu að nærri því allir vís­inda­menn væru sam­mála um að menn bæru mesta ábyrgð á lofts­lags­breyt­ingum.

Skipanir Trump í emb­ætti hafa end­ur­speglað lofts­lagsaf­neitun flokks­ins. Scott Pruitt sem hann til­nefndi sem yfir­mann EPA hefur sem rík­is­sak­sókn­ari í Oklahoma höfðað fjölda mála gegn stofn­un­inni til að hnekkja reglum sem eiga að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Rick Perry, sem eitt sinn sótt­ist eftir að verða for­seta­efni repúblik­ana, er nú orku­mála­ráð­herra þrátt fyrir að hann hafi áður sagst vilja leggja Orku­mála­ráðu­neytið niður.

Endurkoma afneitunarinnar

Þrýsti­hópar á vegum jarð­efna­elds­neyt­is­iðn­að­ar­ins hefur lengi reynt að ala á sundr­ungu um lofts­lags­vís­indi og hafa margir repúblikanar dansað eftir lagi þeirra. Mis­vísandi upp­lýs­ingar sem þeir hafa haldið á lofti áttu um skeið nokkuð greiðan aðgang að stærri fjöl­miðlum. Gerðu þeir sitt besta til að grafa undan nið­ur­stöðum vís­inda­manna með því að sér­velja gögn til að henta mál­stað sínum auk þess að ráð­ast beint á æru vís­inda­mann­anna sjálfra.

Eftir því sem áhrif lofts­lags­breyt­inga hafa orðið greini­legri hafa alvöru­gefnir fjöl­miðlar orðið síður ginn­keyptir fyrir vill­andi upp­lýs­ingum afneit­ara lofts­lags­vís­ind­ina. Því fer þó fjarri að her­ferð­inni til að þvæla umræð­una um lofts­lags­vís­indin hafi lokið.

Þannig birt­ist grein í breska blað­inu Daily Mail í lok nóv­em­ber þar sem því var haldið rang­lega fram að með­al­hiti jarðar hafi tekið met­dýfu eftir að El niño-veð­ur­fyr­ir­brigð­inu slot­aði á síð­asta ári. Til­gangur hennar virt­ist vera að grafa undan full­yrð­ingum lofts­lags­vís­inda­manna um að hnatt­ræn hlýnun af völdum manna hafa verið aðal­or­sök langrar raðar hita­meta sem slegin voru í fyrra og árið áður. Öfga­hægri­síðan Breit­bart tók frétt­ina meðal ann­ars upp og vís­inda-, geim- og tækni­nefnd full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings deildi henni á Twitter-síðu sinni.

Umræðan versni á tímum eftirsannleikans

Með grein Daily Mail var sami tónn sleg­inn og eftir síð­asta sér­stak­lega kröft­uga El niño sem keyrði upp hnatt­rænan hita árið 1998. Afneit­arar not­uðu hlut­falls­lega sval­ari árin sem á eftir komu á meðan hnatt­ræn hlýnun af völdum manna náði í skottið á met­unum sem voru slegin á meðan El niño naut við til að töngl­ast á því að „hlé“ hefði orðið á hnatt­rænni hlýnun. Með því að velja 1998 sem upp­hafsár sam­an­burðar síns héldu þeir því fram að engin hnatt­ræn hlýnun hefði átt sér stað um ára­bil.

Lofts­lags­vís­inda­mað­ur­inn Michael Mann frá Rík­is­há­skól­anum í Penn­syl­vaníu, sem hefur fengið að kynn­ast árásum afneit­ara á eigin skinni meira en flestir, ótt­ast að með lokum El niño nú hefj­ist sami söng­ur­inn aftur. Búast megi við því að hnatt­ræn hiti verði hlut­falls­lega minni næstu ár en á meðan á veð­ur­fyr­ir­brigð­inu stóð. Afneit­arar lofts­lags­vís­ind­anna muni beita sömu belli­brögðum og þeir gerðu eftir 1998.

Í tölvu­póst­svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segir Mann að talað sé um að fram­boð Trump og umfjöllun fjöl­miðla um hann hafi markað upp­haf hættu­legs eft­ir­sann­nleiks­tíma­bils þar sem gervi­fréttir fara víða sem erfitt sé að stemma stigu við.

„Í þessu nýja umhverfi og með harð­kjarna­lofts­lagsaf­neit­ara í lyk­il­hlut­verkum í rík­is­stjórn Trump þá ótt­ast ég að ástand mála eigi eftir að versna en ekki batna þegar kemur að opin­berri umræðu um lofts­lags­breyt­ingar,“ segir Mann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár