Sturgeon gagnrýnir May harðlega

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, gagn­rýnir Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, harð­lega fyrir ræð­una sem May hélt fyrr í dag um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Skotland kaus ekki þá leið sem birt­ist í áætl­unum May um útgöngu rík­is­ins úr ESB og áætlun Bret­lands er ekki í hag skosku þjóð­ar­innar, segir Sturgeon meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu sinni. „Þrátt fyrir öll fal­legu orðin þá er orðið ljóst að Bretland stefnir í hart Brexit, sem gæti haft í för með sér efna­hags­legar hörm­ungar. Ákvarð­anir eru ekki teknar rök­rétt með hags­muni lands­ins í huga, heldur af þrá­hyggju harða hægr­is­ins í Íhalds­flokknum,“ segir Sturgeon.

Hún segir einnig vera að koma betur og betur í ljós málið sem liggur til grund­vallar í útgöngu Bret­lands, og það sé spurn­ingin um það hvernig ríki Bretland ætli að vera. For­sæt­is­ráð­herr­ann hafi sýnt á spilin í lok ræðu sinnar þegar hún tal­aði um mögu­leik­ann á því að Bretland verði lág­launa- og lág­skatta­ríki með lítil rík­is­af­skipti. Afleið­ing­arnar verði þær að allir, nema kannski þeir rík­ustu, verði verr settir en nú er.

„Skosk stjórn­völd settu fram mála­miðl­un­ar­til­lögur fyrir jól sem myndu vernda hags­muni Skotlands – og við gerðum það ljóst að það mik­il­væg­asta sé aðild að innri mark­aðnum þegar kemur að efna­hags­legum og frek­ari þjóð­ar­hags­munum Skotlands.“ Á meðan verið sé að ræða þessar til­lögur, og Theresa May hafi síð­ast í dag lofað að skoða til­lögur Skota, hafi stjórn­völd ekki sýnt fram á það með neinum hætti að verið sé að hlusta á skosk stjórn­völd eða að hags­munir Skotlands séu teknir til greina.

„Það verður að breyt­ast ef það á að vera ein­hver trú á því að hægt sé að tryggja hags­muni Skotlands innan Bret­lands. Og ef Bretland ætlar ekki að vera áfram á innri mark­aðnum, eins og for­sæt­is­ráð­herr­ann segir nú, þá verður að skoða til­lögur okkar um hvernig hægt er að leyfa Skotum að vera þar áfram alvar­lega.“

Skosk stjórn­völd muni því áfram taka ákvarð­anir með yfir­veg­uðum og ábyrgum hætti, en það verði að vera morg­un­ljóst að stjórn­völd í Bret­landi geti ekki beitt sér gegn vilja og hags­munum Skotlands, og neita öllum til­raunum til mála­miðl­ana.

„Það virð­ist vera sem íhalds­stjórnin í Westminster haldi að hægt sé að gera Skotlandi hvað sem er og kom­ast upp með það. Hún verður að skilja hversu rangt hún hefur fyrir sér í því. Bresk stjórn­völd mega ekki kom­ast upp með að taka okkur út úr Evr­ópu­sam­band­inu og innri mark­aðnum, án þess að skeyta um áhrifin á hag­kerfið okkar, störfin, lífs­gæði og orð­spor okkar sem opins, frjáls­lynds lands, án þess að Skotland hafi mögu­leika á því að velja á milli þess og ann­ars konar fram­tíðar.“ Með ummælum sínum í dag hafi Theresu May tek­ist að gera valið lík­legra fyrir Skota, þeir verði að hafa mögu­leika á sjálf­stæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár