Vægi húsnæðis í reksti heimila eykst

Á und­an­förnum árum hefur hlut­fall útborg­aðra launa heim­ilis sem varið til greiðslu fast­eigna­láns farið hækk­andi. Í dag er hlut­fallið að jafn­aði 20-21 pró­sent en var um 18 pró­sent stuttu eftir efna­hags­hrunið. Hlut­fallið er í takt við árin 2000 til 2004. Þetta kemur fram í nýju Efna­hags­yf­ir­liti VR sem kom út í dag. „Það er þó áhyggju­efni að vís­bend­ingar eru um að hlut­fall útborg­aðra launa sem varið er í greiðslu fast­eigna­láns fer hækk­andi. Þetta snertir helst þau heim­ili sem eru að kaupa sér sína fyrstu fast­eign eða stækka við sig,“ segir í yfir­lit­inu.

Eignir eldra fólks hafa auk­ist mikið umfram eigna­stöðu þeirra yngri, sé horft sér­stak­lega til áranna 2007 til 2015. Séu skuld­irnar teknar með í reikn­ing­inn kemur fram svipuð mynd, segir í yfir­lit­inu. „Til að mynda hafa eignir 67 ára og eldri auk­ist um tæp 58 pró­sent umfram eignir 30-34 ára á tíma­bil­inu 2007 til 2015. Ekki er rétt að horfa aðeins á eignir. Sé litið til skuld­setn­ingar fæst nokkuð svipuð mynd. Með­al­upp­hæð skulda hefur hækkað meira meðal eldri ald­urs­hópanna en þeirra yngri. Skuldir 67 ára og eldri hafa einnig hækkað umtals­vert meira en yngri ald­urs­hópanna. Þetta er mögu­leg birt­ing­ar­mynd þess hve erfitt það hefur verið fyrir yngri ald­urs­hópana að eign­ast fyrstu fast­eign árin eftir hrun,“ segir í yfir­lit­inu.

Í takt við Norðurlöndin

Neyslu­mynstur, það er hversu stóru hlut­falli útgjalda heim­ils er varið í til­tekna vöru eða þjón­ustu, er svipað því sem þekk­ist á hinum Norð­ur­lönd­unum. Hlutfall útgjalda vegna hús­næðis, hita og raf­magns er lægra en í Danmörku en hærra en í Svíþjóð, Noregi og Finn­landi.

Krónan styrkist en núna er þetta öðruvísi

Und­an­farin tvö ár hefur gengi krón­unnar hefur verið í miklum styrk­ing­ar­ham. Ástæðan er mikil fjölgun ferða­manna. „Í umræð­unni hefur meðal ann­ars verið talað um annað hrun sökum styrk­ing­ar­innar. Það er þó ekki hægt að bera þessa geng­is­styrk­ingu núna saman við geng­is­styrk­ing­una árin fyrir hrun,“ segir í yfir­lit­inu.

Stærsti áhrifa­valdur styrk­ing­ar­inn á síð­asta ári var mikil gjald­eyr­is­inn­flæði frá ferða­mönnum, en algjört metár var í ferða­þjón­ust­unni. Um 1,8 millj­ónir ferða­manna komu til lands­ins í sam­an­burði við 1,2 millj­ónir árið 2015. Á þessu ári stefnir í enn meiri vöxt, sam­kvæmt flestum spám. Sé miðað við með­al­talið þá styrkt­ist gengi krón­unnar um 18,4 pró­sent gagn­vart helstu við­skipta­myntum á síð­asta ári, en í byrjun þessa árs hefur það veikst lítið eitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár