Gáfaðri útgáfan af Trump

Steve Bannon er einn þeirra sem telst vera póli­tískur sig­ur­veg­ari í Banda­ríkj­unum á árinu, þrátt fyrir öfga­fullar og umdeildar skoð­anir. Kristinn Haukur Guðnason kynnti sér sögu hans.

Skömmu eftir banda­rísku for­seta­kosn­ing­arnar þann 8. nóv­em­ber útnefndi Donald Trump kosn­inga­stjóra sinn, Steve Bannon, sem æðsta ráð­gjafa sinn í verð­andi stjórn. Ljóst er að staða Trump er sterk með meiri­hluta í báðum þing­deildum og útnefn­ingu nýs hæsta­rétt­ar­dóm­ara með úrslita­at­kvæði. repúblík­ana­el­ítan sem barði á honum fyrir kosn­ing­arnar þegir nú og hlýðir. Að vera hægri hönd manns með slíka stöðu er því ákaf­lega valda­mikið emb­ætti. En hver er Steve Bannon og af hverju logar inter­netið vegna ráðn­ingar hans?

Heillaðist af Reagan

Stephen Kevin Bannon er fæddur 27. nóv­em­ber árið 1953 í borg­inni Norfolk í Virg­in­íu­ríki. Norfolk er með­al­stór borg á aust­ur­strönd­inni sem er aðal­lega þekkt sem flota­stöð banda­ríska sjó­hers­ins. Hann var þriðja barn af fimm, hjón­anna Martin og Doris Bannon. Þetta var týpísk írsk-amer­ísk verka­manna­fjöl­skylda. Faðir hans vann hjá síma­fyr­ir­tæki og móðir hans var heima­vinn­andi. Þau voru kaþ­ólikkar, demókratar og virk í verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Þau umgeng­ust gyð­inga og svart fólk sem var nokkuð óvana­legt á sjötta ára­tugnum í Suð­ur­ríkj­unum.

En fjöl­skyldan var engu að síður mjög íhalds­söm. Stephen og bræður hans tveir voru sendir í kaþ­ólskan her­skóla þar sem þeir lærðu aga og virð­ingu fyrir hefð­bundnum gildum. Á þessum tíma mót­að­ist heim­sýn hans og hann hafði mjög sterkar skoð­anir á þjóð­fé­lags­mál­unum og lenti jafn­vel í slags­málum vegna þeirra. Eftir mennta­skóla lá leiðin í Virginia Tech háskól­ann og þar tók hann í fyrsta skipti virkan þátt í stjórn­málum sem for­maður stúd­enta­ráðs árið 1975. Eftir háskóla gekk hann í sjó­her­inn, þar sem hann þjón­aði á orr­ustu­skip­inu USS Paul F. Foster á Kyrra­hafi og í Persaflóa en tók um leið masters gráðu í alþjóða­sam­skiptum við Georgetown háskóla. Árið 1980 var örlaga­valdur í lífi Bannon þegar Ronald Reagan sigr­aði sitj­andi for­set­ann Jimmy Carter í kosn­ingum. Líkt og margir af hans kyn­slóð hreifst Bannon með Reagan-bylgj­unni og þeirri nýju hægri­stefnu sem boðuð var. Margir þrýstu á Bannon að fara út í stjórn­mál á þessum tíma en hugur hans var ann­ars staðar. Hann tók MBA gráðu við Harvard háskóla og fékk í kjöl­farið stöðu hjá fjár­fest­ing­ar­bank­anum Goldman Sachs.

Bankarekstur og Hollywood

Fátt virt­ist benda til að Bannon myndi hafa nokkur afskipti af stjórn­málum á þessum tíma. Hann vann hörðum höndum við að græða pen­inga hjá Goldman Sachs til árs­ins 1990 þegar hann og nokkrir sam­starfs­menn hans stofn­uðu eigin banka, Bannon & Co. Það var fjár­fest­ing­ar­banki sem sér­hæfði sig í fjöl­miðlum og menn­ing­ar­stofn­unum. Þeir keyptu upp lag­era af kvik­myndum og voru milli­göngu­menn í sam­r­unum ýmissa fyr­ir­tækja í skemmt­ana­iðn­að­inum eins og t.d. MGM, Turner og Polygram.

Bankinn stóð einnig að fram­leiðslu efnis og ber þar helst að nefna hina geysi­vin­sælu gam­an­þætti Seinfeld. Samfara banka­rekstr­inum stýrði Bannon rann­sókn­ar­setr­inu Biosphere 2 í Phoenix á árunum 1993 til 1995. Þar var aðal­lega feng­ist við rann­sóknir á sviði geim­vís­inda og lofts­lags­mála. Bæði skemmt­ana­iðn­að­ur­inn og vís­inda­sam­fé­lagið eru þekkt fyrir að inni­halda mikið af frjáls­lyndu fólki og vinstri­mönnum og Bannon átti ekki í vand­ræðum með að umgang­ast þá. Klæðn­aður hans og fas virt­ist einnig benda til þess að hann félli vel inn í þann hóp. Hann klædd­ist lit­ríkum skyrtum og sand­ölum og talsmáti hans var ávallt alþýð­legur og laus við allt snobb. En hann gat líka verið grimmur og bein­línis and­styggi­legur við þá sem honum lík­aði illa við. Bannon er þrí­giftur og þrí­skil­inn og önnur eig­in­kona hans kærði hann fyrir heim­il­is­of­beldi árið 1996.

Stjórn­málin tog­uðu alltaf í hann og árið 1998 seldi hann hlut sinn í Bannon & Co. og fór þess í stað að fram­leiða og leik­stýra kvik­myndum. Sumar mynd­irnar voru leiknar Hollywood myndir á borð við Titus og Sweetwater en þorr­inn af þeim voru heim­ild­ar­myndir sem drógu taum hægr­is­ins. Þetta voru upp­hafn­ing­ar­myndir um repúblík­ana á borð við Ronald Reagan og Söru Palin og svo mjög gagn­rýnar myndir um inn­flytj­enda­mál og banda­ríska rík­is­báknið. Það skipti ekki máli þó að George W. Bush væri í hvíta hús­inu því að Bannon leit á Bush sem hluta af þess­ari elítu og hluta af vanda­mál­inu. Bannon var yst á jaðr­inum og honum vant­aði útrás fyrir gremju sína. Þá útrás fann hann árið 2004 þegar hann kynnt­ist ungum manni að nafni Andrew Breit­bart.

Breitbart hinn alræmdi jaðarmiðill

Andrew Breit­bart var mjög íhalds­samur fjöl­miðla­maður sem hafði m.a. skrifað fyrir Washington Times og komið að stofnun hins geysi­vin­sæla vefs Huffington Post. En Breit­bart vildi koma á fót sínu eigin vefriti sem yrði yst á jaðr­inum og því stofn­aði hann Breit­bart News árið 2007. Steve Bannon sá þarna tæki­færi og gerð­ist stofn­með­limur. Breit­bart News var bein­línis stofnað til höf­uðs hinnar póli­tísku elítu og þó að gildum Repúblíkana­flokks­ins væri hampað þá fengu margir inn­múr­aðir yfir sig vænar gusur á síð­unni. Stofnun síð­unnar fór saman við upp­gang hinnar svoköll­uðu Teboðs­hreyf­ingar sem óx mikið eftir valda­töku Barack Obama árið 2008. Pópúlísk alda var í upp­sigl­ingu og umsvif Breit­bart juk­ust jafnt og þétt. Fréttir á Breit­bart voru gagn­rýnar á stjórn Obama, rík­is­báknið, elít­una, örygg­is­mál, hefð­bundna fjöl­miðla og Hollywood mask­ín­una. Einnig voru þær mjög lit­aðar af kyn­þátta og útlend­inga­hatri, kven­fyr­ir­litn­ingu og for­dómum í garð sam­kyn­hneigðra. Oftast nær voru for­dóm­arnir sagðir með svoköll­uðum hunda­blístrum, þ.e. með dylgjum og ósögðum athuga­semdum sem les­endur gátu áttað sig á. Í athuga­semda­kerfi vefs­ins sást það svo best hvers konar fólk las vef­inn og þar voru engar hunda­blístrur.

Þá voru frétta­menn vefs­ins óvægnir í stuðn­ingi sínum við Ísra­els­ríki sem sást best í því að vef­ur­inn hafði útibú í Jer­úsalem. Breit­bart, sem sjálfur var gyð­ingur lést úr hjarta­sjúk­dómi ein­ungis 43 ára að aldri árið 2012. Þá steig Bannon fram og tók við stjórn vefs­ins. Við valda­töku Bannon juk­ust for­dómar í garð minni­hluta­hópa og kvenna til muna á vefnum. Þar sem Breit­bart sjálfs naut ekki við voru gyð­ingar teknir inn í hóp þeirra sem gagn­rýni vefs­ins beind­ist að, enda eru gyð­ingar fyr­ir­ferð­ar­miklir í stjórn­mála, fjár­mála og Hollywood elít­unni. Kyn­þátta­hat­rið var nú orðið stækt á síð­unni og í athuga­semda­kerf­inu og beind­ist það ekki síður gegn gyð­ingum. Farið var að tala um Breit­bart sem málsvara hinnar svoköll­uðu alt-right hreyf­ingar. Sú hreyf­ing varð til á spjall­rásum og athuga­semda­kerfum í afkimum inter­nets­ins og ein­kenn­ist af kven­fyr­ir­litn­ingu og hatri í garð minni­hluta­hópa. Bannon full­yrti sjálfur að Breit­bart væri vett­vangur hreyf­ing­ar­innar.

Hann færði út kví­arnar og opn­aði útibú í Texas og í Lundúnum árið 2014. Við opnun úti­bús­ins í Lundúnum opn­uð­ust augu evr­ópsku pópúlista­flokk­ana fyrir síð­unni og stjórn­mála­menn á borð við Nigel Farage úr UKIP og Marine Le Pen í frönsku Þjóð­fylk­ing­unni sýndu henni stuðn­ing sinn. Með auknum umsvifum síð­unnar varð boð­skap­ur­inn smám saman “normalíser­aður” líkt og hægri­menn á borð við Rush Limbaugh höfðu áður gert í útvarpi. Vefurinn var engu að síður ekki mjög stór. Árið 2014 hafði Breit­bart News að með­al­tali um 8 milljón les­endur í Banda­ríkj­unum.

Inn stígur Trump

Donald Trump til­kynnti fram­boð sitt til for­seta þann 16. júní árið 2015 og fljót­lega fór öll fjöl­miðlaum­fjöllun að snú­ast um hann. Fram að því höfðu Bannon og Breit­bart stutt dyggi­lega við bakið á Ted Cruz, fram­bjóð­anda Teboðs­hreyf­ing­ar­innar. Cruz hafði til­kynnt fram­boð sitt snemma og fengið drottn­ing­ar­við­töl á síð­unni en aðrir fram­bjóð­endur repúblík­ana á borð við Jeb Bush og Marco Rubio fengu tölu­verða gagn­rýni. Trump var þó snemma sýndur í nokkuð jákvæðu ljósi á síð­unni og það reynd­ist Bannon og félögum vel. Heim­sóknir á síð­una tvö­föld­uð­ust á ein­ungis hálfu ári.

Cruz féll smám saman í ónáð hjá Bannon, sér­stak­lega eftir að hann sam­þykkti frí­versl­un­ar­samn­ing að und­ir­lagi þing­for­set­ans Paul Ryan, sem var svar­inn óvinur Bannon. Haustið 2015 var óljóst hvorn fram­bjóð­and­ann Breit­bart studdi en í jan­úar 2016 var Cruz alfarið sparkað fyrir Trump. Trump sagði Cruz vera óhæfan til að gegna emb­ætt­inu sökum þess að hann var fæddur í Kanada og frétta­menn Breit­bart tóku undir af fullri hörku.

Bannon varð klapp­stýra Trump og þegar ljóst var að hinn síð­ar­nefndi yrði fram­bjóð­andi Repúblíkana­flokks­ins um sum­arið 2016 var les­enda­fjöldi Breit­bart um 18 millj­ónir. Á þessum tíma gekk Trump allt í hag­inn og hann skor­aði hátt í skoð­ana­könn­unum. En síð­sum­ars fór fylgi hans að dala, að hluta til vegna fram­boðs­stjóra hans, Paul Manafort. Upp komst um grun­sam­leg tengsl hans við Viktor Yanukovych fyrrum for­seta Úkraínu og Manafort sagði skilið við fram­boðið í ágúst. Í stað hans valdi Trump Kellyanne Conway og Steve Bannon til að stýra fram­boð­inu. Margir töldu að hinum reynda Manafort, sem hafði unnið að for­seta­fram­boðum í 40 ár, hefði mis­tek­ist að halda aftur af hinum yfir­lýs­ingaglaða Trump. Með ráðn­ingu Bannon var öllum ljóst að gefið yrði í frekar en hitt. Einn af þeim sem fagn­aði ráðn­ingu Bannon hvað ákaf­ast var David Duke fyrrum leið­togi Ku Klux Klan. Alt-right hreyf­ingin og hvítir þjóð­ern­is­sinnar voru nú form­lega orðin hluti af fram­boði Donald Trump. Bannon tók sér leyfi frá Breit­bart en vef­ur­inn hélt engu að síður áfram að styðja dyggi­lega við bakið á fram­bjóð­and­anum.

Skítugasta kosningabarátta sögunnar

Um haustið 2016 var fátt annað talað en banda­rísku kosn­inga­bar­átt­una. Trump fór upp í könn­unum eftir veik­indi Hillary Clinton í sept­em­ber og niður aftur eftir rök­ræður fram­bjóð­end­anna, sem voru þær sóða­leg­ustu í sög­unni, og eftir að mynd­band birt­ist af honum þar sem hann hreykti sér af kyn­ferð­is­áreitni. Nú var ekki hægt að draga úr sor­anum. Stefna Trump og Bannon var sú að koma dygg­asta stuðn­ings­fólk­inu á kjör­stað og skvetta það mik­illi drullu á and­stæð­ing­inn að sem flestir óháðir sætu heima. Lang­flestir bjugg­ust þó við sigri Clinton eins og nán­ast allar skoð­ana­kann­anir og kosn­inga­spár gáfu til kynna. Úrslitin gætu varla hafa komið meira á óvart. Ljóst var að Trump hafði unnið kjör­manna­kosn­ing­una en að Clinton hefði umtals­vert fleiri atkvæði (nálægt 3 millj­ónum eins og síðar kom í ljós). Til að auka á fár­an­leik­ann þá sviku 7 kjör­menn lit og kusu annað fólk sem er það mesta í sög­unni (utan við látna fram­bjóð­endur). Síðan 1872 hafa aldrei fleiri en einn kjör­maður svikið lit. Þetta er birt­ing­ar­mynd af því hversu saurug kosn­inga­bar­áttan var, hversu hataðir fram­bjóð­end­urnir voru og hversu vel plott Trump og Bannon gekk upp. Eftir kosn­ing­arnar var ljóst að Bannon og Conway yrðu verð­launuð fyrir fram­boðs­stýr­ing­una með stöðum í hvíta hús­inu. Bæði munu taka við emb­ættum ráð­gjafa og Bannon sem æðsti ráð­gjafi þann 20. jan­úar næst­kom­andi.

Bannon mun móta framtíðina

Staða æðsta ráð­gjafa Banda­ríkja­for­seta hefur verið mjög mis­jöfn síðan hún var sett á lagg­irnar í stjórn­ar­tíð Richard Nixon árið 1969. Sumir hafa verið mjög nánir for­set­anum en aðrir nýttir sem nokk­urs konar almanna­tenglar og fjöl­miðla­full­trúar. Endrum og eins hefur staðan verið laus, t.d. alla stjórn­ar­tíð Jimmy Carter 1977-1981. Búist er við því að Bannon muni hafa mjög mikið að segja um stefnu­mótun Donald Trump í ljósi reynslu­leysis hins síð­ar­nefnda. Talið er að hann muni koma tölu­vert að utan­ríkis og varn­ar­málum, efl­ingu sam­skipta við Rússland Pútíns og evr­ópska pópúlista­flokka.

Fyrsti erlendi stjórn­mála­mað­ur­inn til að funda með Trump eftir kosn­ing­una var einmitt Nigel Farage, les­andi Breit­bart. Bannon mun vænt­an­lega einnig leggja drög að nei­kvæðri afstöðu Banda­ríkj­anna til frí­versl­un­ar­samn­inga og Evr­ópu­sam­bands­ins. Þá er búist við því að reynsla Bannon af fjöl­miðlum muni nýt­ast Trump við að skapa og móta ímynd sína sem for­seta. Gildir þá einu hvort öllum líki við hann. Bara að nógu mörgum líki við hann og nógu mörgum líki illa við and­stæð­inga hans.

5 umdeildar til­vitn­anir Steve Bannon:

Dick Cheney. Darth Vader. Satan. Það er vald!

Konur sem ættu að stjórna land­inu ættu að vera fyrir fjöl­skyld­una, ættu að eiga eig­in­menn, ættu að elska börnin sín. Ekki ein­hverjar lessur úr lista­há­skólum í Nýja Englandi.

Ótti er góður. Ótti lætur þig taka málin í eigin hendur.

Ég vill ekki að stelp­urnar [dætur hans] fari í skóla með gyð­ingum. Þeir ala börnin sín upp sem vælandi óþekkt­ar­anga.

Ég er Lenínisti. Lenín vildi eyði­leggja ríkið, og það er mitt tak­mark einnig.

5 umdeildar fyr­ir­sagnir Breit­bart News:

Réttindi sam­kyn­hneigðra hafa gert okkur heimsk­ari, tími til kom­inn að fara aftur inn í skáp­inn.

Getn­að­ar­varn­arpillan gerir konur óaðl­að­andi og heimskar.

Hvort myndir þú frekar vilja að barnið þitt fengi femín­isma eða krabba­mein?

Gabby Giffords [þing­maður sem varð fyrir morð­til­raun]: Mann­legur skjöldur byssu­and­stæð­inga

Hífum hann upp með stolti: Suð­ur­ríkja­fán­inn kunn­gerir glæsi­lega arf­leið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár