Um 24 prósent veltuaukning í fasteignaviðskiptum milli ára

Mikil veltu­aukn­ing varð í fast­eigna­við­skiptum á árinu 2016 miðað við árið á undan.

Um 12.400 kaup­samn­ingum var þing­lýst árið 2016 á land­inu öllu og námu heild­ar­við­skipti með fast­eignir tæp­lega 460 millj­örðum króna, að því er fram kemur á vef Þjóð­skrár. Með­al­upp­hæð á hvern samn­ing var um 37 millj­ónir króna.

Til sam­an­burðar þá var veltan árið 2015 rúm­lega 370 millj­arðar, kaup­samn­ingar tæp­lega 11.300 og með­al­upp­hæð hvers samn­ings um 33 millj­ónir króna. Heild­ar­velta fast­eigna­við­skipta hefur því auk­ist um rúm­lega 24 pró­sent frá árinu 2015 og kaup­samn­ingum fjölgað um tæp­lega tíu pró­sent. „Sé litið til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins stefnir heild­ar­upp­hæð þing­lýstra kaup­samn­inga í um 350 millj­arða króna, kaup­samn­ingar verða um 7.950 og með­al­upp­hæð kaup­samn­ings verður um 44 millj­ónir króna. Heild­ar­upp­hæð þing­lýstra kaup­samn­inga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á árinu 2015 var 285 millj­arðar króna og fjöldi kaup­samn­inga var 7.369. Með­al­upp­hæð samn­inga árið 2015 var um 38,6 millj­ónir króna. Heild­ar­velta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur því auk­ist um tæp­lega 23 pró­sent og fjöldi kaup­samn­inga hefur auk­ist um tæp­lega átta pró­sent,“ segir í frétt á vef Þjóð­skrár.

Flestar spár gera ráð fyrir því að fast­eigna­verð muni halda áfram að hækka, en á und­an­förnum fimm árum hefur það hækkað um 50 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Á árinu 2016 hækk­aði fast­eigna­verð að með­al­tali um tólf pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en mest var hækk­unin mið­svæð­iðs. Við­var­andi skortur á íbúðum á mark­aði, einkum litlum og með­al­stórum, á meðan eft­ir­spurn hefur auk­ist stöðugt, er meðal þess sem hefur þrýst verð­inu upp. Þá hefur kaup­máttur auk­ist einnig og upp­gangur ferða­þjón­ust­unnar hefur einnig þrýst verð­inu upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár