Öll hjól á fullri ferð

Hag­vöxtur er mik­ill, krónan hefur styrkst hratt, verð­bólgan hefur hald­ist í skefjum og laun hækkað langt umfram fram­leiðni. Óhætt er að árið 2016 hafi ein­kennst af miklum efna­hags­legum krafti.

Árið 2016 fer í sögu­bæk­urnar sem afar jákvætt fyrir íslenska hag­kerfið sé mið tekið af köldu mati á hag­töl­unum. Hag­vöxtur verður lík­lega í hæstu hæðum þegar horft verður yfir árið, yfir fimm pró­sent. Ferða­manna­straum­ur­inn hefur verið stöð­ugur og knýr hann efna­hags­batann áfram líkt og und­an­farin ár.

Gert er ráð fyrir því að 1,7 millj­ónir erlendra ferða­manna komi til lands­ins á þessu ári en þeir voru um 1,2 millj­ónir á síð­asta ári. Spár fyrir næsta ár gera ráð fyrir enn einu vaxt­ar­ár­inu. Um 2,2 millj­ónir munu þá koma til lands­ins. Til sam­an­burðar má nefna að tæp­lega 500 þús­und komu til lands­ins árið 2010.

Verð­bólga mælist nú 1,9 pró­sent og hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent mark­mið­inu í meira en þrjú ár. Það munar um þetta fyrir Íslend­inga sem hafa ekki átt svo löngu tíma­bili að venj­ast þar sem verð­bólgu­draugnum er haldið í skefjum.

Uppgjör slitabúa

Þegar kemur að stöðu rík­is­sjóðs þá munar mestu um kúvend­ing­una á stöð­unni í tengslum við upp­gjörið á slita­búum föllnu bank­anna, Kaup­þings, Glitnis og Lands­bank­ans, í byrjun árs­ins. Íslenska ríkið fékk þá í sinn hlut um 500 millj­arða, þegar allt er talið, og skulda­staða þjóð­ar­búss­ins gagn­vart útlöndum snögg­breyt­ist til hins betra.

Frá árið 1960, þegar mæl­ingar hófust á þess­ari stöðu, hefur staðan sjaldan eða aldrei verið betri. Skuldir rík­is­ins sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu verða komnar niður fyrir 40 pró­sent á næsta ári ef áætl­anir ganga eftir. 

Íslenska ríkið á nú um 80 pró­sent af fjár­mála­kerf­inu, þar af Íslands­banka að fullu, Lands­bank­ann 98 pró­sent og Arion banka 13 pró­sent. Ríkið er svo einnig eig­andi Íbúða­lána­sjóðs, Byggða­stofn­unar, Lána­sjóðs íslenskra náms­manna og eign­ar­hluta í spari­sjóða­kerf­inu.

Sigurður Hann­es­son, sem sæti átti í fram­kvæmda­hópi um afnám hafta, sagði í grein á vef okkar á dög­unum, að nið­ur­staðan hefði verið framar vonum og að Lee Bucheit, ráð­gjafi stjórn­valda í mál­inu, hafi sagt nið­ur­stöð­una hag­fellda og for­dæma­lausa.

Engin óveðurský í augsýn

Hag­vís­arnir snúa flestir í rétta átt eins og mál standa nú. Atvinnu­leysi er ríf­lega þrjú pró­sent og mikil vöntun á vinnu­afli, einkum í ferða­þjón­ustu og bygg­ing­ar­iðn­aði.

Íslend­ingar eiga nú meira erlendis en þeir skulda. Þórarinn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur Seðla­banka Íslands, sagði í grein á vef Kjarnans skömmu fyrir jól, að gott gengi útflutn­ings­hliðar hag­kerf­is­ins hefði lagt grunn­inn að sterkri stöðu.

Kastljósið beinist að krónunni

Styrking krón­unnar var eitt af því sem ein­kenndi stöðu mála í hag­kerf­inu, en hún hjálp­aði til við að halda aftur af inn­fluttri verð­bólgu, sem síðan styrkti stöðu heim­il­anna veru­lega. Krónan hefur styrkst um rúm­lega 15 pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal á árinu, 16 pró­sent gagn­vart evru og rúm­lega 27 pró­sent gagn­vart pund­inu, en eftir að Brexit kosn­ing­unni í júní, þá hrap­aði pundið í virði gagn­vart helstu við­skipta­myntum heims­ins.


Styrk­ingin olli fyr­ir­tækjum í útflutn­ingi áhyggjum, og einnig í ferða­þjón­ustu. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn á mik­illa hags­muna að gæta og þá sér­stak­lega á Bret­lands­mark­aði sem ára­tugum saman hefur verið mik­il­væg­asti mark­að­ur­inn fyrir þorsk. Um 12 pró­sent af vöru­út­flutn­ingi íslenskra fyr­ir­tækja í fyrra var á Bret­lands­markað og um 19 pró­sent erlendra ferða­manna komu þaðan. Staða krón­unnar gagn­vart pund­inu hefur við mikil áhrif á við­skipta­kjör sem í boði eru milli land­anna.

Hluta­bréfa­verð skráðra félaga lækk­aði yfir heild­ina litið, og mun­aði þar mikið um mikið verð­fall á Icelandair, einkum á seinni helm­ingi árs­ins. Frá því um mitt ár hefur mark­aðsvirði félags­ins lækkað um ríf­lega 70 millj­arða króna en það er nú 114 millj­arða króna virði.

Margt bendir til þess að gengi krón­unnar gæti styrkst enn frekar á kom­andi ári þar sem gjald­eyr­is­inn­streymi frá erlendum ferða­mönnum verður mun meira með fjölgun upp á 500 þús­und ferða­menn. Samkvæmt spám grein­enda Íslands­banka er gert ráð fyrir að gjald­eyr­is­inn­streymi geti numið 500 millj­örðum á næsta ári en á þessu ári verði það tæp­lega 430 millj­arðar.

Fasteignir hækka og hækka

Mikil hækkun á fast­eigna­verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hélt áfram á árinu og nam hækk­unin ríf­lega tólf pró­sentum. Á fimm árum hefur hefur raun­verð íbúða í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 50 pró­sent að með­al­tali. Mest hefur hækk­unin verið mið­svæðis í Reykja­vík og vega áhrifin vegna ferða­þjón­ustu þar þung, en talið er að um þrjú þús­und íbúðir hafi verið í útleigu til ferða­manna í miðbæ Reykja­víkur á und­an­förnum árum, meðal ann­ars í gegnum vef­inn Airbnb.

Sókn á ný svæði nauðsyn

Þrátt fyrir að byr sé í seglum íslenska hag­kerf­is­ins þessi miss­erin þá getur staðan snú­ist við á skömmum tíma. Samið varið um ríf­legar launa­hækk­anir hjá nær öllum stéttum á árinu 2016 þrátt fyrir að fram­leiðni hafi lítið sem ekk­ert auk­ist. Ef verð­bólgu­horfur versna, t.d. vegna hækk­unar á olíu­verði á heims­mörk­uðum, þá gætu efna­hags­horfur versnað, verð­bólga auk­ist og þar með dregið úr kaup­mætti launa. Inni­stæðu­lausar launa­hækk­anir gætu þá reynst dýr­keyptar. Ekkert bendir þó til þess að árið 2017 verði ár mik­illa koll­steypa, þó ávallt sé vandi um slíkt að spá.

Eins og ávallt verður vafa­lítið erfitt fyrir fyr­ir­tæki sem starfa á alþjóða­mörk­uðum að við­halda sinni mark­aðs­hlut­deild. Sér­stak­lega á þetta við um fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi sem hafa þurft að laga sig að erf­iðum aðstæðum, meðal ann­ars á mik­il­vægum mörk­uðum í Nígeríu, Austur-Evrópu og Suður-Evrópu einnig. Sókn á ný svæði er mik­il­væg í þessu árferði og gæti nýja árið ekki síst ein­kennst af því að útflutn­ings­fyr­ir­tæki reyni að opna dyr að nýjum mörk­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár