Listrænn stórviðburður

David Bowie lést 10. jan­úar. Eins og honum einum er lagið bjó hann til áhrifa­mikið lista­verk um dauð­ann sem hófst með útgáfu á hans síð­ustu plötu, tveimur dögum fyrir dauða hans.

Plata David Bowie, Blackstar, er í mínum huga mesti list­rænni stór­við­burður árs­ins 2016. Hún kom út 8. Janúar en Bowie lést úr krabba­meini tveimur dögum síðar. Mánuðina á undan var Bowie búinn að vinna að söng­leiknum Lazarus, sem er heitið á einu lag­inu á Blackstar plöt­unni.

Söng­leik­ur­inn var sýndur, sam­kvæmt skipu­lagi Bowie sjálfs, fram til 20. jan­úar í New York Theater Workshop á Broadway.

Dauðinn sem listaverk

Í ljós kom, um leið og leiðu tíð­indin af þess­ari goð­sögn fóru að ber­ast, að Bowie hafði búið til epískt, til­finn­inga­þrungið og hyl­djúpt lista­verk úr eigin dauða. Eitthvað sem eng­inn annar hefði getað leikið eftir.

Blackstar-platan er ógn­ar­sterk og ein sú allra besta frá árinu 2016, en í heild­ar­sam­hengi lista­verks­ins er hún hluti af list­rænum stór­við­burði í popp­sög­unni; hinstu kveðju Davids Bowie.

Ég var sjálfur búsettur í New York þegar Bowie lést og áhrifin leyndu sér ekki. Ekki nóg með að lögin hans hafi hljó­mað ótt og títt á Man­hattan, heldur komust djúp­stæð áhrif hans á hina ein­stöku lista­senu borg­ar­innar í kast­ljósið. Helstu lista­menn og hönn­uðir sem hafa starfað í New York um ára­bil lýstu Bowie sem einum merki­leg­asta list­ræna leið­toga sem komið hefði fram. Hann setti tón­inn fyrir það sem var framundan. Í tísku, tón­list, hönnun og fleiru. Frumleg hugsun hans var ein­stök, eins og lögin hans og textar.

David Bowie dagurinn

Á loka­degi söng­leiks­ins á Broadway steig full­trúi frá New York borg á svið og las upp skila­boð frá borg­ar­stjór­anum, Bill de Blasio. Frá og með þessu kvöldi yrði 20. jan­úar David Bowie dag­ur­inn ár hvert í New York. Þannig ætl­aði borgin sér að minn­ast magn­aðra áhrifa á lífið í borg­inni, en hann var búsettur í borg­inni í meira en þrjá ára­tugi. Lengst af bjó hann skammt frá Washington Square og var tíður gestur í plötu­búðum og kaffi­húsum borg­ar­innar, ekki síst við Bleecker Street, þar sem marga næt­ur­klúbba Greenwich Village hverfs­ins er að finna. Ein fræg­asta plötu­búð göt­unnar heitir Rebel Rebel.

Tveimur dögum eftir að Bowie lést fór ég með syni mína tvo í hjóla­túr frá Columbia Campus við 116. stræti, þar sem við bjuggum, og niður að heim­ili hans neð­ar­lega á Man­hattan. Þetta var mikil upp­lifun, og ein­stök minn­ing. Eftir því sem nær dró sá maður veit­inga­staði, bóka­búðir, bari, syllu­versl­anir af ýmsum toga, fyr­ir­tæki, stofn­anir og fólk almennt, vera að halda minn­ingu Bowie á lofti. Þetta náði svo hámarki við nágrenni heim­il­is­ins þar sem marg­menni var saman komið og söng hástöfum lögin hans. Fame. Heroes. Changes. Starman. Space Oddity. Oh! You Pretty Things. Fólk tók undir. Ástríðan leyndi sér ekki.

Brautryðjandinn

Margir munu eflaust reyna að feta í fót­spor Bowies þegar fram líða stundir. Hann var slíkur braut­ryðj­andi að óhjá­kvæmi­legt er annað en að í fár­sjóð hans verði leitað. En það mun aldrei koma fram annar Bowie. Því miður fyrir okkur hin. En eftir hann liggur ein­stakt laga­safn og fjöl­breyti­leg áhrif á nær allt sem hann kom nálægt á ferli sínum sem lista­maður, allt frá því hann byrj­aði að þróa sig sem lista­mann sem tán­ingur í Brixton í Suður-London, þar sem hann er fædd­ist 1947.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár