Hvaða gjaldmiðill slær krónunni við á þessu ári? Bitcoin

Óhætt er að segja að árið 2016 hafi verið gott ár fyrir fjár­festa sem keyptu Bitcoin.

Íslenska krónan hefur styrkst mikið gagn­vart öllum helstu við­skipta­myntum heims­ins á árinu 2016. Gagnvart evru nemur styrk­ingin um 16 pró­sentum og gagn­vart Banda­ríkja­dal er hún nú um 13 pró­sent, en eftir vaxta­hækkun Seðla­banka Banda­ríkj­anna síð­ast­liðin mið­viku­dag þá hækk­aði gengi Banda­ríkja­dals gagn­vart krón­unni um tvö pró­sent. Fram að því hafði styrk­ing krón­unnar gagn­vart dalnum verið við­varð­andi og stöðug allt árið. Banda­ríkja­dalur kost­aði 136 krónur fyrir rúmu ári en kostar nú 114 krónur.

Krónan er þó ekki sú mynt sem hefur sýnt mesta styrk­ingu á mörk­uðum þetta árið. Raf­myntin Bitcoin slær öllum öðrum við, sam­kvæmt umfjöllun Bloomberg. Á þessu ári nemur styrk­ing Bitcoin - eða ávöxt­unin eins og frekar á við - um 79 pró­sent. Samkvæmt reglu­verki fjár­mála­mark­aða í Banda­ríkj­unum eru við­skipti með raf­mynt­ina skil­greind eins og hrá­vöru­við­skipti fremur en gjald­miðla­við­skipti.

Ein ein­ing af Bitcoin jafn­gildir nú 793 Banda­ríkja­dölum, eða sem nemur ríf­lega 90 þús­und krónum.

Bloomberg segir ástæð­urnar fyrir vel­gengni Bitcoin meðal ann­ars vera vax­andi notkun fjár­magns­hafta í ein­hverri mynd á mörk­uðum, sem hefur aukið við­skipti með Bitcoin. Þá hafa ýmsar aðrar nýjar reglur, sem eiga að draga úr áhættu í við­skiptum með gjald­miðla, leitt til þess að áhættu­sæknir fjár­festar hafa fært fjár­muni yfir í Bitcoin. Aðgerðir yfir­valda gegn ólög­legri starf­semi, og pen­inga­þvætti sem henni teng­ist, virð­ast einnig hafa leitt til auk­innar fjár­fest­ingar í Bitcoin.

Allt frá stofnun árið 2008 hefur til­trúin á Bitcoin verið ein helsta hindr­unin fyrir því að þessi nýja vara, sem segja má að raf­myntin sé, nái að skjóta rótum á fjár­mála­mörk­uðum. Árið 2016 hefur verið mik­il­vægt ár fyrir Bitcoin og unga sögu raf­mynta.

Í við­tali við Bloomberg segir fjár­festir­inn Tim Draper, sem hefur stundað við­skipti með Bitcoin árum saman, að hann búist við því að verð­mið­inn á Bitcoin muni vaxa enn meira og jafn­vel marg­falt. Ástæðan er sú að hug­myndin um raf­mynt­ina hafi heppn­ast og nú séu fjár­festar sífellt betur að átta sig á mögu­leikum hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár