Umtalsverð virkjun vindorku á Íslandi framundan?

Virkjun vind­orku getur skipt sköpum fyrir Ísland til fram­tíðar litið. Ketill Sig­ur­jóns­son, lög­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í orku­málum, skrifar um mögu­leik­ana á þessu sviði.

Bæði fólk og og fyr­ir­tæki hér á landi hafa lengi notið þess hversu ódýrt hefur verið að virkja jarð­var­mann hér og þó sér­stak­lega íslensku fall­vötnin. Og við erum löngu orðin vön því að svo til öll raf­orka á Íslandi sé fram­leidd með þessum hætti.

Umfangs­mikil virkjun jarð­varma til raf­orku­fram­leiðslu á Íslandi á sér þó ekk­ert mjög langa sögu og hefur í vissum til­vikum reynst flókn­ari og dýr­ari en ætlað var. Nú er svo komið að breyttar aðstæður kunna að valda því að við munum senn upp­lifa umtals­verða virkjun vind­orku.

Hratt lækk­andi kostn­aður vind­virkj­ana gæti brátt skapað okkur ný og góð tæki­færi til ódýrrar og óvenju umhverf­is­vænnar raf­orku­fram­leiðslu. Þess vegna er senni­lega fullt til­efni til að svara spurn­ing­unni sem kemur fram í fyr­ir­sögn þess­arar greinar ját­andi.

Dýrari jarðvarmi og ódýrari vindorka

Í vissum til­vikum eru vind­virkj­anir (vindlundir eða vinda­fls­stöðvar) að verða áhuga­verð­ari kostur hér en að reisa nýjar jarð­varma­virkj­anir. Þá er átt við þau svæði á Íslandi þar sem vind­skil­yrði eru hag­stæð­ust, þ.e. þar sem búast má við sér­lega góðri nýtni vinda­fls­stöðvar (um og yfir 40%).

Næstu jarð­varma­virkj­anir á Íslandi verða tals­vert dýrar, auk þess sem reynslan hefur sýnt að gæti­lega þarf að fara til að ofnýta ekki jarð­hita­auð­lind. Þetta skapar nýjar aðstæður og áhuga­verð tæki­færi til að huga að fleiri raun­veru­lega vist­vænum eggjum fyrir íslensku orkukörf­una.

Sjáum við brátt 300-400 MW af vindafli á Íslandi?

Spám sér­fræð­inga ber almennt saman um að kostn­aður við að virkja vind muni áfram fara lækk­andi á kom­andi árum. Það virð­ist því lík­legt að nýt­ing íslenskrar vind­orku verði sífellt álit­legri. Og þar með verði minni þörf eða minni hvati til að skerða nátt­úruperlur eins og t.d. Eldvörp (jarð­varmi) eða Hólmsá (vatns­fall).

Þetta gæti haft tölu­verð áhrif á þróun orku­geirans hér á Íslandi. Eftir um ára­tug kunna að verða hér komnar vind­virkj­anir með sam­an­lagt afl upp á u.þ.b. 300-400 MW. Og til fram­tíðar kann nýt­ing vind­orku hér að skila okkur álíka raf­orku­magni eins og u.þ.b. fimm Búð­ar­háls­virkj­anir og færa þjóð­inni nýjar og veru­legar útflutn­ings- og gjald­eyr­is­tekjum.

Árangursrík tilraunaverkefni

Sífellt aukin hag­kvæmni vind­orkunnar síð­ustu árin er í góðu sam­ræmi við það sem bent var á í skýrslu sem unnin var fyrir þáver­andi iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyti árið 2009. Þar voru íslensk stjórn­völd hvött til að kanna sér­stak­lega þennan val­kost til raf­orku­fram­leiðslu. Og þá einkum gang­ast fyrir meiri rann­sóknum á aðstæðum hér­lendis til slíkrar fram­leiðslu fyrir til­stilli vinds­ins.

Síðan þá hefur Veð­ur­stofa Íslands, í sam­vinnu við fleiri rann­sókna­stofn­anir, unnið að ýmsum rann­sóknum um vind­orku og þróað líkan um vinda­far á Íslandi. Í árs­lok 2012 reisti Lands­virkjun tvær nokkuð stórar vind­myllur ofan við Búrfell. Rúmu ári síðar reisti Biokraft ehf. tvær nokkru minni og eldri (not­aðar) vind­myllur við Þykkvabæ í Rangár­þingi ytra. Árangur þess­ara tveggja verk­efna hefur til þessa verið það góður að bæði umrædd fyr­ir­tæki vinna nú að und­ir­bún­ingi miklu stærri vind­orku­verk­efna.

Fyrstu íslensku vindvirkjanirnar gætu risið á allra næstu árum

Óvíst er hversu hratt verður farið í virkjun vind­orku á Íslandi. Í dag er staðan sú að til stendur að reisa hér a.m.k. fjóra vindlundi eða vind­virkj­anir. Ef allar þessar áætl­anir ganga eftir verður vind­orka senn nýtt í umtals­verðum mæli til raf­orku­fram­leiðslu hér á landi. Það gæti orðið innan örfárra ára, en gæti líka taf­ist af ýmsum ástæðum. T.d. hefur komið fram að Lands­virkjun ætli að láta sín vind­orku­verk­efni sæta mati Ramma­á­ætl­unar, sem er reyndar ekki skylt skv. lögum. Þetta kann að tefja þessi verk­efni Lands­virkj­unar tals­vert.

Vindlundir, vindvirkjanir, vindorkuver eða vindaflsstöðvar?

Hér er vert að nefna í fram­hjá­hlaupi að af hálfu Lands­virkj­unar er oft talað um þessi verk­efni sem vindlundi. Íslensku­fræð­ingar hafa bent grein­ar­höf­undi á að orðið „vindlundur“ sé tæp­lega heppi­legt hug­tak um virkj­anir af þessu tagi. Orðið lundur (sbr. trjá­lundur) veki hug­renn­ingar um skjól fyrir vindi. Vind­virkj­anir munu að sjálf­sögðu síst rísa á skjól­ríkum svæðum og það sem skiptir hér kannski meira máli er að slík mann­virki veita tæp­lega almenni­legt skjól fyrir vindi eða veðrum.

Auk þess þykir sumum sem end­ur­tekni sam­hljóða­klas­inn „nd“ í orði sé fremur vond íslenska og tungu­brjótur (þó svo dæmi séu til um þannig orð í íslensku). Hugtakið vindlundur kann því að þykja hálf­gert orð­skrípi. Og jafn­vel bera með sér að vera smíðað sem áróð­urs­kennt hug­tak/orð í þeim til­gangi að milda hug­hrif fólks gagn­vart þeim áhrifum sem svona mann­virki hafa á umhverfið. Þar er einkum um að ræða sjón­ræn áhrif.

Með þessar ábend­ingar í huga álítur sá sem þetta skrifar eðli­leg­ast að talað sé um vind­virkjun , vind­orku­ver eða vinda­fls­stöð þegar lýsa skal umtals­verðum fjölda eða klasa af vind­myllum. Þ.e. mörgum háum turnum með stórum spöðum og öfl­ugum hverflum, sem líta má á sem eina heild (eina virkjun).

Hugtakið vind­virkjun kann þó að minna full mikið á vind­verk! Enn einn mögu­leiki er vind­garður. Á end­anum ræðst þetta íslenska nafn­orð um það sem á ensku er oft kallað wind farms og á dönsku vind­park vænt­an­lega af því hvaða mál­venja hér mynd­ast. En það er a.m.k. sann­ar­lega tíma­bært að huga vel að góðu íslensku orði um þessi mynd­ar­legu hátækni­mann­virki.

Landsvirkjun áformar stærstu vindvirkjunina

Þau fjögur umræddu vind­orku­verk­efni sem hafa verið til skoð­unar hér á síð­ustu árum eru eft­ir­far­andi. Fyrst er að nefna tvær fyr­ir­hug­aðar vinda­fls­stöðvar Lands­virkj­unar, ann­ars vegar 200 MW vind­virkjun nokkru ofan við vatns­afls­virkj­un­ina Búr­fells­stöð og hins vegar 100 MW vind­virkjun við Blöndu­stöð. Þessar tvær fyr­ir­hug­uðu vind­virkj­anir hefur Lands­virkjun kallað Búr­fellslund og Blöndu­lund.

Þá er fyr­ir­huguð 45 MW vind­virkjun Biokraft í Þykkvabæ, sem kölluð er Vinda­borg. Og loks hefur fyr­ir­tæki sem nefn­ist Arctic Hydro áform um 20-30 MW vinda­fls­stöð í Austur Land­eyjum.

Vind­að­stæður þarna sunn­ar­lega í Rang­ár­valla­sýslu eru lík­lega mjög góðar og þessi verk­efni því bæði mögu­lega vel stað­sett m.t.t. hag­kvæmni. En sökum þess að bæði verk­efnin eru fyr­ir­huguð á miklu flat­lendi, innan sveita­byggðar með útsýni til fjalla, jök­uls og eyja, þá yrðu sjón­ræn áhrif af þessum virkj­un­unum óhjá­kvæmi­lega tölu­verð.

Gæta þarf vel að sjónrænum áhrifum

Það eru einmitt nei­kvæð sjón­ræn áhrif sem helst mæla gegn vind­virkj­unum (hér er vert að nefna að almennt virð­ast svona mann­virki ekki valda miklum fugla­dauða en þó vissu­lega ein­hverjum). Af þessum sökum er hætt við að umrædd verk­efni Arctic Hydro og Biokraft muni mæta and­stöðu. Reyndin er þó auð­vitað sú að í dag mætir hvert ein­asta orku­verk­efni marg­vís­legri and­stöðu. Og hið eðli­leg­asta mál að um þau sé ítar­lega fjallað og vand­lega gætt að öllum mögu­legum áhrifum slíkra verk­efna áður en end­an­leg ákvörðun er tekin.

Uppbyggingarhraðinn er óviss

Enn er óvíst hvort öll fram­an­greind fjögur vind­orku­verk­efni verða að veru­leika. Hið sama má segja um fimmta og nýjasta vind­orku­verk­efnið. Þar er nú unnið að stað­ar­vali í því skyni að reisa vind­virkj­anir hér með veru­legu afli. Tekið skal fram að höf­undur þess­arar greinar kemur að því verk­efni og eðli­legt að les­endur hafi það í huga. Mögulega eru svo önnur verk­efni áformuð, hvort sem eru smærri verk­efni á ein­stökum jörðum eða stærri verk­efni sem kunna að vera grein­ar­höf­undi ókunn.

Ekki er unnt að full­yrða um það hver upp­bygg­ing­ar­hrað­inn verður á vind­virkj­unum á Íslandi og margt getur tafið verk­efni af þessu tagi. Miðað við áætluð verk­efni og kostn­að­ar­sam­an­burð við jarð­varma má þó telja raun­hæft að eftir u.þ.b. ára­tug eða svo verði vind­virkj­anir á Íslandi á bil­inu 300-400 MW, eins og áður sagði. Spár af þessu tagi eru þó óhjá­kvæmi­lega háðar veru­legri óvissu.

Áformin (370 MW) nema um tveimur Búðarhálsvirkjunum

Sam­an­lagt heild­ar­afl þeirra fjög­urra vind­virkj­ana sem nefndar voru hér að framan yrði nálægt 370 MW. Athuga ber að fimmta vind­orku­verk­efnið, sem einnig var nefnt, er við­bót við þetta fyr­ir­hug­aða vindafl. Umrædd fjögur verk­efni upp á 370 MW gætu skilað nálægt 1.300 GWst af raf­orku árlega. Sú raf­orka er ámóta mikil eins og fram­leiðsla rétt rúm­lega tveggja Búð­ar­háls­virkj­ana.

Kostn­aður þess­ara fjög­urra vind­virkj­ana myndi verða nokkru meiri pr. fram­leidda MWst en ger­ist hjá Búð­ar­háls­virkjun. Enda eru stórar vatns­afls­virkj­anir almennt ódýrasta aðferðin til raf­orku­fram­leiðslu. Það er því vafa­lítið fyrst og fremst nýt­ing jarð­varma hér sem íslensk vind­orka mun keppa við eða hægja á. Senni­lega er þó eðli­leg­ast að lýsa nýt­ingu vind­orku ein­fald­lega sem góðri og skyn­sam­legri við­bót í íslenska orku­geir­ann.

Allt að 1.600 MW innan tveggja áratuga?

Hér í lokin er vert að nefna yfir­lit Kviku/Pöyry um það hvernig þau fyr­ir­tæki telja senni­legt að upp­bygg­ing raf­orku­fram­leiðslu á Íslandi verði næstu tvo ára­tug­ina. Samkvæmt þeirra áliti, sbr. skýrslan Raf­orku­sæ­strengur milli Íslands og Bret­lands - kostn­aðar- og ábata­grein­ing, eru álitnar litlar líkur á því að vind­virkjun rísi hér hér nema jafn­hliða sæstreng.

Einungis í s.k. hárri sviðs­mynd Kviku/Pöyry, sem mið­ast við mjög mikla aukn­ingu á eft­ir­spurn hér eftir raf­orku, gerir skýrslan ráð fyrir íslenskum vinda­fls­stöðvum án sæstrengs. Þarna kunna Kvika og Pöyry að hafa van­metið hag­kvæmni vind­orkunnar á Íslandi miðað við aðra orku­kosti, enda er umfjöll­unin um vind­inn í við­kom­andi skýrslu fremur snubb­ótt. Að þessu verður vikið nánar í síð­ari hluta þess­ara skrifa um íslenska vind­orku.

Er þá lokið þess­ari fyrri grein um lík­lega upp­bygg­ingu vind­virkj­ana á Íslandi. Í síð­ari hlut­anum verður útskýrt nánar af hverju nýt­ing vind­orku á Íslandi er áhuga­verð og fjallað um það að mögu­lega munu vinda­fls­stöðvar á Íslandi verða með sam­an­lagt afl allt að 1.600 MW jafn­vel innan tveggja ára­tuga. Þar með gæti íslenska rokið orðið mik­il­væg og verð­mæt nátt­úru­auð­lind og skapað þjóð­inni góðar tekjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár