Uppspretta andans er innra með okkur – Eftirlifendur gíslatöku segja sögu sína

Tvær konur sem teknar voru til fanga af skæru­liða- eða hryðju­verka­hópum ræða saman á ein­lægan máta. Þær segja frá því hvernig þær náðu að halda geð­heils­unni og tapa ekki sjálfum sér í leið­inni.

Ingrid Betancourt lifði af yfir 6 ár í haldi mannræningja í dýpstu frumskógum Kólumbíu.
Ingrid Betancourt lifði af yfir 6 ár í haldi mann­ræn­ingja í dýpstu frum­skógum Kólumbíu. Mynd: EPA

Um heim allan er fólki rænt og tekið sem gísl af skæru­liða- eða hryðju­verka­sam­tökum í ýmiss konar til­gangi. Þeir sem lifa það af eru til frá­sagnar um þá skelfi­legu upp­lifun sem þeir hafa orðið fyrir. En margar spurn­ingar vakna hjá hinum sem horfa á úr fjar­lægð og ekki er síst merki­legt að heyra frá­sagnir kvenna sem víga­menn hafa haldið nauð­ugum.

Tvær konur með óvenju­lega reynslu hitt­ust á dög­unum en þær Ingrid Betancourt og Amanda Lindhout spjöll­uðu saman í hlað­varps­þætti BBC The Conversation. Samtalið er mjög hjart­næmt því að þarna hitt­ast þessar tvær konur í fyrsta skipti og deila reynslu sem fáir hafa lent í. Hvernig takast konur, sem misst hafa frelsi sitt, á við þær skelfi­legu aðstæður sem þær standa frammi fyrir? Hvað gerðu þær til dæmis þegar þær fóru á blæð­ingar? Ingrid og Amanda ræða saman og tengj­ast þannig strax sterkum böndum eins og heyra má í við­tal­inu.

Haldið í yfir 6 ár

Fransk-kól­umbíska stjórn­mála­konan Ingrid Betancourt er einn fræg­asti gísl síð­ustu ára en henni var haldið í rúm­lega sex ár í dimmum skógi Kólumbíu. Hún var fædd í Kólumbíu árið 1961 en ferð­að­ist og bjó á hinum ýmsu stöðum út um allan heim vegna vinnu for­eldra sinna og síðar vegna starfa fyrr­ver­andi eig­in­manns sem var franskur. Hún flutti aftur til heima­lands­ins til að taka þátt í stjórn­málum árið 1990 og vann við ýmis stjórn­sýslu­störf þangað til hún bauð sig fram til for­seta árið 2002. Í febr­úar sama ár var henni rænt af skæru­liða­sam­tök­unum FARC og var henni haldið sem gísl í yfir sex ár. Á þessu tíma­bili birt­ust þrjú mynd­bönd af henni til sönn­unar um að hún væri á lífi.

Kól­umbíski her­inn bjarg­aði Ingrid í júlí 2008 en hún var orðin veik á þessum tíma og ekki mátti tæpara standa. Hermenn höfðu leikið tveimur skjöldum og þóst vera skæru­liðar til að kom­ast að fanga­búð­unum þar sem Ingrid var haldið.

Svelt og ítrekað beitt ofbeldi

Kanadíska blaða­konan og rit­höf­und­ur­inn Amanda Lindhout var fædd í Kanada árið 1981 og vann sem laus­ráðin blaða­kona í Afganistan, Írak og síð­ast í Sómalíu. Í ágúst 2008 var henni rænt ásamt ljós­mynd­ar­anum Nigel Brennan aðeins tveimur dögum eftir komu þeirra til borg­ar­innar Moga­d­ishu í Sómalíu. Þeim var rænt af íslömskum öfga­hóp sem krafð­ist lausn­ar­gjalds, alls 2,5 millj­ónir doll­ara. Amanda og Nigel voru aðskilin og komið fyrir í sitt hvorum klef­anum en gísla­töku­menn­irnir beittu Amöndu miklu ofbeldi á meðan þessu stóð og nauðg­uðu henni ítrekað. Hún var svelt og aðstæð­urnar voru hrylli­legar, að sögn þeirra beggja.

Fjöl­skylda hennar náði að lokum að safna saman 1 milljón doll­ara til að borga lausn­ar­gjald en gísla­töku­menn höfðu lækkað kröfur sínar á þessum tíma. Eftir 460 daga í haldi var Amöndu og Nigel sleppt lausum og fengu þau að halda til sinna heima og til fjöl­skyldna sinna. For­sprakki gísla­tök­unnar var hand­tek­inn sex árum seinna fyrir aðild sína. Amanda gaf út bók um reynslu sína sem nefn­ist A House in the Sky en hún lýsir þar ástæðum sínum fyrir að fara til Sómalíu og upp­lifun sinni sem gísl.

Afneitun í fyrstu

Amanda lýsir því í spjall­inu hvernig upp­lifun hennar hafi verið. Hún segir að hún hafi viljað trúa því að ein­ungis væri verið að ræna þau. Eftir nokkra daga, þegar for­sprakk­inn bað þau um upp­lýs­ingar um fjöl­skyldu­með­limi, hafi hún gert sér grein fyrir því sem væri að ger­ast. Að lík­lega yrði hún föst þarna í langan tíma þar sem hún vissi að kanadísk stjórn­völd borga ekki lausn­ar­gjald fyrir þegna sína í slíkum aðstæðum og að fjöl­skylda hennar væri ekki í aðstöðu til að láta svo háa upp­hæð af hendi.

[quote font="0" align="right“]Kvölin fólst í því að vita ekki hvenær þessu myndi ljúka[/quote]

Ingrid tekur í sama streng en segir að það hafi þó tekið hana lengri tíma að gera sér grein fyrir því sem væri að ger­ast. Hún segir að í raun hafi hún verið í afneitun í heilt ár. „Kvölin fólst í því að vita ekki hvenær þessu myndi ljúka,“ segir hún. Öll tengsl við umheim­inn hafi rofnað og hún upp­lifað það hvernig væri að vera raun­veru­lega ein.

Amanda segir að þegar henni var rænt hafi hún strax hugsað til Ingridar en fréttir af lausn hennar höfðu farið eins og eldur um sinu um heim­inn tveimur mán­uðum áður. Þannig hafi hennar saga verið fersk í minni og gefið Amöndu styrk á þessum tíma.

Staðráðin í að halda mennskunni

Þessi reynsla var mjög and­leg, að sögn Amöndu. „Ein í þessu myrka her­bergi, skilin eftir með ekk­ert nema huga og anda,“ segir hún. Ingrid bætir því við að hún hafi fundið fyrir því að skæru­lið­ana hafi langað að umbreyta henni í ein­hvers konar dýr. Þá hafi langað að taka af henni mennsk­una.

[quote font="0" align="right“]Ég man heift­ina. Ég man eftir að hafa hugsað með mér að mig lang­aði til að drepa þennan mann[/quote]

„Þetta var í frum­skóg­inum og það var stormur. Það hafði rignt í marga daga. Ég hafi reynt að strjúka nokkrum dögum áður svo ég þurfti að sæta refs­ingu og hluti af henni var að vera skilin eftir án skýlis. Vörð­ur­inn stóð við hlið­ina á mér, mjög smá­sál­ar­legur lít­ill maður. Hann hataði mig á mjög sér­stakan hátt. Ég man að ég þurfti að fara á kló­settið og auð­vitað er engin aðstaða til þess í frum­skóg­inum. Venju­lega spurði ég um leyfi og þeir myndu losa mig úr keðj­unum. Ég gæti þá farið bak við tré eða eitt­hvað slíkt og ekki vera ber­skjölduð. En núna höfðu nokkrir klukku­tímar liðið og ég þurfti virki­lega að fara á kló­settið en vörð­ur­inn sagði: „Hvað sem þú gerir þá gerir þú það hér fyrir framan mig“. Ég man heift­ina. Ég man eftir að hafa hugsað með mér að mig lang­aði til að drepa þennan mann,“ lýsir Ingrid.

Hún segir að hún hafi orðið hrædd vegna þess­ara til­finn­inga; að vera til­búin að drepa aðra mann­eskju. Hún hafi ekki viljað vera morð­ingi. Hún hugs­aði með sér að þrátt fyrir að það væri búið að taka frelsi hennar, þá væri ekki búið að taka frá henni ákvörð­un­ar­valdið um hvernig mann­eskja hún væri. Hún hafi því verið harð­á­kveðin í að leyfa þeim ekki að breyta sér í þetta dýr. „Ég gerði mér þá grein fyrir því að það væru til hlutir sem eng­inn gæti nokkurn tím­ann tekið frá mér,“ segir Ingrid.

Gátu líka átt góðar stundir

Amöndu var eins og áður segir haldið í dimmu her­bergi og hún var beitt ofbeldi dag­lega og henni nauðgað. Hún segir að oft eftir slíkt ofbeldi hafi hún verið mjög reið og full af heift, hatri og eft­ir­sjá. En til þess að halda geð­heils­unni þá hafi hún end­ur­tekið með sjálfri sér að hún veldi frið og fyr­ir­gefn­ingu. Með því að end­ur­taka þessi orð hafi hún venju­lega róast niður. Hún myndi fara í hug­anum á betri stað, þar sem hún gæti hreyft sig, borðað góðan mat og hitt fjöl­skyldu sína og vini. Hún segir henni hafi jafn­vel tek­ist að hlæja og eiga góðar stundir í þessum hrylli­legu aðstæðum. Þannig náði hún að halda sjálfri sér ef svo mætti að orði kom­ast.

[quote font="0" align="right“]Ég gerði mér þá grein fyrir því að það væru til hlutir sem eng­inn gæti nokkurn tím­ann tekið frá mér[/quote]

Ingrid tekur undir það sem Amanda segir og telur það í raun ótrú­legt að hægt sé að finna þetta innra ljós. Að það sé enn hægt að brosa, hlæja, elska og vera ánægð. Hún seg­ist enn upp­lifa þessa ánægju þegar hún vaknar á morgn­anna; að vera hissa að vera inn­an­dyra og þakka Guði fyrir að vera lif­andi og örugg. Ingrid not­aði svip­aðar aðferðir og Amanda til að halda geð­heils­unni. Hún rifj­aði upp ljóð sem faðir hennar kenndi henni sem barn og þegar hún fór með þau í hug­anum heyrði hún rödd hans. Hún ímynd­aði sér and­ar­takið þegar hún myndi hringja í móðir sína sem myndi rugl­ast á henni og systur hennar en öskra síðan upp af ánægju þegar hún gerði sér grein fyrir að þetta væri Ingrid. Þessir draum­órar voru ekki fjarri lagi því þegar hún heyrði í fyrsta skipti í móðir sinni eftir lausn­ina þá gerð­ist þetta svona.

Ingrid reyndi yfir tíu sinnum að flýja skæru­lið­ana. Hún útskýrir þennan vilja til að kom­ast í burtu sem rétt­læt­is­kennd og að það hefði bein­línis verið skylda hennar að reyna að kom­ast til baka til barn­anna sinna. Þetta hafi orðið að þrá­hyggju. Amanda reyndi einnig að flýja í eitt skipti en það mistókst eftir að hún og sam­starfs­maður hennar Nigel voru hand­sömuð á ný aðeins 25 mín­útum seinna. Hryðju­verka­menn­irnir þurftu að draga hana út úr mosk­unni sem þau höfðu falið sig í og inn í bíl úti á götu. Hún seg­ist hafa upp­lifað ákveðna upp­gjöf þrátt fyrir að gera allt til að kom­ast í burtu. Eftir þetta atvik var hún hlekkjuð niður og aðstæður versnuðu til muna.

Niðurlægð fyrir að vera kona

En hvernig er að vera kona í svona aðstæðum? Ingrid segir að allt hafi verið verra af því að hún var kona. Það hafi til dæmis verið mjög erfitt að fá hrein­læt­is­vörur vegna blæð­inga. Hún segir að það hafi alltaf verið nið­ur­lægj­andi þegar vörður hafi gefið henni dömu­bindi og sagt henni að það þyrfti að end­ast í þrjá mán­uði. Hún var látin baða sig í lækjum út frá Ama­son­fljót­inu sem voru oft fullir af pírana­fiskum. Hún seg­ist þó hafa van­ist ýmsum hlutum en að erf­ið­lega hafi gengið að venj­ast varn­ar­leys­inu og þá sér­stak­lega sem kona. „Annað vanda­mál er þessi sýn sem sumir karl­menn hafa á konur. Að vegna þess að konur eru konur þá er alveg sama hvað þær segja. Þá er það óheið­ar­legt eða af því við erum erf­iðar. Eða af því við erum slæmar,“ segir Ingrid. Hún seg­ist hafa upp­götvað hversu langt sé í land fyrir konur eftir að hún losn­aði úr prís­und­inni.

[quote font="0" align="right“]Ég lærði að þessi upp­stretta og þessi styrkur er raun­veru­lega alltaf innra með okkur. Og við getum alltaf gengið að þess­ari upp­sprettu[/quote]

Amanda segir að reynsla hennar og sam­starfs­manns hennar hafi verið mjög ólík vegna kynja þeirra. Hún hafi til dæmis verið beitt kyn­ferð­is­legu ofbeldi dag­lega. Og þegar kom að blæð­ingum þá var hún svo vannærð og tauga­spennt að hún fór hrein­lega ekki á blæð­ingar á meðan þessu stóð. „Það olli ann­ars konar streitu sem tengd­ist því að ég var beitt kyn­ferð­is­legu ofbeldi á hverjum degi og ég velti því fyrir mér hvort ég gæti verið ólétt,“ segir hún. Þetta breytti sýn hennar á hvað það er að vera kona. Hún hafi getað verið móð­ur­leg við sjálfa sig í þessum aðstæðum. Hún seg­ist nota þetta orð því hún hafi talað við sjálfa sig á þann veg sem móðir gerir við barnið sitt og haldið utan um sjálfa sig. Hún segir að hún hafi fengið tæki­færi til að finna þessa upp­sprettu and­ans sem allir hafa innra með sér. Að hún hafi náð að lifa af þessar aðstæður þrátt fyrir að hafa ekki alltaf haft trú á því. „Ég lærði að þessi upp­stretta og þessi styrkur er raun­veru­lega alltaf innra með okkur. Og við getum alltaf gengið að þess­ari upp­sprettu,“ segir hún. Amanda lítur því á þessa reynslu sem gjöf því nú geti hún lifað lífi sínu öðru­vísi en hún gerði áður og vitað að þessi styrkur sem hún hefur sé raun­veru­legur og innra með henni.

Ingrid telur að stærsti lær­dómur hennar reynslu sé sá að hún sér að hún hefur mögu­leika á að breyt­ast. Hún hélt áður að hún væri mótuð mann­eskja og að hún gæti ekki breyst eða ummót­ast á nokkurn hátt. Hún seg­ist hafa upp­götvað að hún gæti breytt öllu. Ekki bara stjórnað til­finn­ingum sínum, heldur liðið öðru­vísi, brugð­ist öðru­vísi við aðstæðum og hugsað með öðrum hætti. „Við höfum get­una til að verða hver sem við viljum,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár