„Óþarfi hjá Eygló að gera lítið úr þeim árangri sem hefur náðst“

Fjár­mála­ráð­herra kann­ast ekki við átök eða slags­mál Sjálf­stæð­is­flokks­ins við félags­mála­ráð­herra um fram­lög til vel­ferð­ar­mála. Hann segir óþarfi hjá ráð­herra að gera lítið úr þeim árangri sem hafi náðst. Aldrei hafi meira fé farið í almanna­trygg­inga­kerfið.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kann­ast ekki við að hafa staðið í átökum, eða jafn­vel slags­málum, við Eygló Harð­ar­dóttur félags­mála­ráð­herra um fram­lög til vel­ferð­ar­mála. Aldrei hafi meira fé verið varið í almanna­trygg­inga­kerfið en nú. Eygló var harð­orð í garð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í vik­unni þar sem hún sagði átökin hafa verið mikil milli flokk­anna og jafn­vel slags­mál.

„Ég kann­ast ekki við neitt slíkt,“ segir Bjarni við Kjarnann. „Eins og gengur vilja allir ráð­herrar að jafn­aði auka við sína mála­flokka en á end­anum er það sam­komu­lags­mál innan rík­is­stjórnar hvernig svig­rúm­inu er skipt hverju sinni. Það má þvert á það sem Eygló segir frekar halda því fram að for­gangs­raðað hafi verið í þágu hennar mála­flokka.“

[adspot]

Óþarfi hjá Eygló að gera lítið úr árangrinum

Bjarni segir það óþarfi hjá Eygló að gera lítið úr þeim árangri sem hafi náðst, til dæmis í hús­næð­is­málum, í hennar ráð­herra­tíð.

„Við höfum auk þess stór­aukið fram­lög til almanna­trygg­inga, þótt vissu­lega séu enn margir sem eiga erfitt með að ná endum saman. Það breytir því ekki að við höfum náð árangri,“ segir Bjarni. „Því er ekki að leyna að við höfum á sama tíma þurft að taka til í rík­is­fjár­mál­unum og erum að stór­lækka skuldir. Við höfum t.d. end­ur­greitt öll AGS lánin og njótum góðs af þessum áherslum með betra láns­hæfi rík­is­ins í dag.“

Vigdís ósammála Eygló

Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefndar, tók ekki undir ummæli Eyglóar í Kjarn­anum í vik­unni. „Ég tala bara fyrir mig, en sam­starfið við flokk­inn í fjár­laga­nefnd hefur verið afar gott og aldrei borið neinn skugga á,“ sagði Vigdís. „Ég kann­ast ekki við þessar yfir­lýs­ingar Eyglóar út frá mínu sjón­ar­horni, en ég veit auð­vitað ekki hvað ger­ist við rík­is­stjórn­ar­borð­ið.“ Guð­laugur Þór Þórð­ars­son, vara­for­maður nefnd­ar­innar, hafði sagt ummæli Eyglóar „ansi bil­leg.“

Gagnrýndi Bjarna harðlega

Eygló sagð­ist hafa undir höndum tölur sem sýndu fram á að vaxta­bætur hafi rýrnað mikið síðan rík­is­stjórnin tók til valda. Þær hafi lækkað um 25 pró­sent á síð­asta ári og þeim sem fengu þær fækk­uðu um 21 pró­sent. Þá hafi þeim einnig fækkað sem fengu greiddar barna­bætur.

Bjarni segir við þessu að það standi ekki til að draga úr barna­bótum og vaxta­bótum, heldur hald­ist fram­lögin óbreytt að raun­virði. Þó sé til skoð­unar að áform um auk­inn stuðn­ing við fyrstu kaup sem eftir atvikum gætu falið í sér að fram­lög til vaxta­bóta yrðu smám saman látin fjara út. Þar vísar Bjarni í fjár­mála­á­ætlun sína. Eygló sagði að sú fjár­mála­á­ætlun boði einmitt enn frek­ari lækkun á barna- og vaxta­bótum. Þá hafi ríkið aldrei varið meiru til almanna­trygg­inga­kerf­is­ins en gert er á þessu ári. Það á við hvort sem litið er til hlut­falls af lands­fram­leiðslu eða sem hlut­falls af frum­gjöldum. Nú fara um 27 millj­arðar til almanna­trygg­inga á ári umfram það sem átti við þegar rík­is­stjórnin tók við völdum.

Tók undir með Bjarna 2014

Eygló sagði reyndar slíkt hið sama í fréttum í des­em­ber 2014 þegar Öryrkja­banda­lag Ísland gagn­rýndi fram­lög rík­is­ins í almanna­trygg­inga­kerfið. Þar sagði Eygló:

„Það hafa komið ábend­ingar og í fjöl­miðlum. Við höfum lagt áherslu á það að aldrei hafi farið meiri fjár­munir í gegnum almanna­trygg­inga­kerfið en á þessu ári. Og við aukum enn frekar í á næsta ári".

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár