Vigdís ósammála Eygló um átök við Sjálfstæðisflokkinn

Formaður fjár­laga­nefndar tekur ekki undir ummæli félags­mála­ráð­herra um „slags­mál“ við Sjálf­stæð­is­flokk­inn um fram­lög til vel­ferð­ar­mála. Þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks segir að kosn­inga­skjálfti sé kom­inn í ráð­herra.

Vigdís Hauksdóttir segir samstarf Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í fjárlaganefnd hafa verið farsælt.
Vigdís Hauks­dóttir segir sam­starf Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í fjár­laga­nefnd hafa verið far­sælt. Mynd: Birgir Þór

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, kann­ast ekki við þau ummæli Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og rit­ara flokks­ins, um „slags­mál“ við Sjálf­stæð­is­flokk­inn um fjár­fram­lög til vel­ferð­ar­mála.

„Ég tala bara fyrir mig, en sam­starfið við flokk­inn í fjár­laga­nefnd hefur verið afar gott og aldrei borið neinn skugga á,“ segir Vigdís í sam­tali við Kjarnann. „Ég kann­ast ekki við þessar yfir­lýs­ingar Eyglóar út frá mínu sjón­ar­horni, en ég veit auð­vitað ekki hvað ger­ist við rík­is­stjórn­ar­borðið.“

„Mikil átök“ við Sjálfstæðisflokkinn

Eygló sagði í fréttum RÚV í gær að hún hafi verið í slags­málum við sam­starfs­flokk­inn í rík­is­stjórn um fram­lög til vel­ferð­ar­mála. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggi meiri áherslu á að lækka skatta á þá efna­mestu. Viðræður um breyt­ingar á hús­næð­is­kerf­inu og aukin fjár­fram­lög inn í vel­ferð­ar­kerfið hafi hingað til strandað á Sjálf­stæð­is­mönnum.

„Það hafa verið mikil átök. Stundum jafn­vel slags­mál við sam­starfs­flokk­inn um fram­lög inn í vel­ferð­ar­kerfið,“ sagði Eygló.

Farsælt samstarf í fjárlaganefnd

Vigdís segir sam­starf sitt við Sjálf­stæð­is­flokk­inn aftur á móti hafa verið gott. 

„Það hefur verið mjög far­sælt sam­starf á milli mín og Guðlaugs Þórs og meiri­hluta fjár­laga­nefndar allt kjör­tíma­bilið,“ segir hún. „Við höfum verið mjög sam­stíga um for­gangs­röðun í mál­efnum rík­is­ins.“ Hún und­ir­strikar einnig að báðir flokkar í fjár­laga­nefnd hafi verið sam­mála þegar kemur að hús­næð­is­mál­unum, að reka rík­is­sjóð með afgangi og minnka skuldir rík­is­ins. „Ef ríkið skuldar mikið og þarf að borga hátt hlut­fall í vexti þá skrúfast allt niður. Þá er voð­inn vís og ekki hægt að setja fjár­magn í vel­ferð­ar­mál ef rík­is­sjóður er stór­skuld­ugur,“ segir hún. „En ég ítreka að ég veit ekki hvað ger­ist við rík­is­stjórn­ar­borðið.“

Ummæli Eyglóar „ansi billeg“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði síðar við RÚV að ummæli Eyglóar væru „ansi bil­leg“ og furðar sig á þeim. Þá sagði hann Eygló sjálfa hafa getað for­gangs­raðað öðru­vísi í sínum mála­flokkum, til dæmis með Íbúða­lána­sjóð.

„Kominn kosningaskjálfti í suma“

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir á Facebook-síðu sinni að ummæli Eyglóar end­ur­spegla að kom­inn sé „kosn­inga­skjálfti í suma“, eins og hún orðar það.

Ragn­heiður segir að ótrú­legt hafi verið að hlusta á Eygló segj­ast hafa verið í slags­málum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn allt kjör­tíma­bilið. „Við höfum unnið með Framsókn að mörgum málum, leitt þau lykta, báðir flokkar hafa lagt sitt af mörkum, þurft að gefa eftir og fá sitt fram.“ Þá sé þessi taktík Eyglóar þekkt fyr­ir­bæri. „En mér hugn­ast hún ekki,“ segir Ragn­heiður.

Eygló hnýtir í Bjarna

Eygló sagði jafn­framt að það hafi sést á síð­ustu dögum að menn í Sjálf­stæð­is­flokknum hafi verið að leggja aukna áherslu á vel­ferð­ar­málin og lagt aukna fjár­muni inn í heil­brigð­is­kerfið. „Það er oft betra seint en aldrei. Ég myndi nátt­úru­lega horfa til þess.“

Þar á Eygló að öllum lík­indum við við­tal við Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við Morg­un­blaðið þar sem hann sagði að flokk­ur­inn mundi for­gangs­raða stefnu­málum sínum á næsta kjör­tíma­bili í þágu vel­ferð­ar­mála og heil­brigð­is­þjón­ustu.

Ekki náð­ist í Bjarna Bene­dikts­son við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár