Eygló gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn harðlega

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, segir að hún hafi staðið í slags­málum við Sjálf­stæð­is­flokknum allt kjör­tíma­bilið um fram­lög til vel­ferð­ar­mála. Áhersla flokks­ins hefur frekar verið á að lækka skatta, meðal ann­ars skatta hinna efna­mestu, og á að lækka skuldir rík­is­ins í stað þess að auka fram­lög til vel­ferð­ar­mála. Þetta kom fram í fréttum RÚV.

Eygló fagnar því að Sjálf­stæð­is­menn hafi á und­an­förnum dögum talað um aukin fram­lög til vel­ferð­ar­mála, og vísar þar í við­tal við Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í Morg­un­blað­inu um helg­ina þar sem hann sagði að heil­brigð­is­mál og menntun verði í for­grunni hjá Sjálf­stæð­is­flokknum verði hann við völd á næsta kjör­tíma­bili.

Í frétt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins vegna álagn­ingar opin­berra gjalda á ein­stak­linga árið 2016, sem birt var í lok júní, kom fram að íslenskir ein­stak­lingar höfðu sam­tals 34,8 millj­arða króna í tekjur vegna arð­greiðslna í fyrra. Ekki liggur fyrir á hversu marga ein­tak­linga þessi tala skipt­ist en hún hækk­aði um rúma fimm millj­arða, eða 18 pró­sent, á milli ára. Tekjur ein­stak­linga af arði hafa auk­ist mjög hratt á und­an­förnum árum. Alls námu þær 16,7 millj­örðum króna árið 2012 og hafa rúm­lega tvö­fald­ast síðan þá. Nú er svo komið að tekjur ein­stak­linga vegna arð­greiðslna voru stærsti ein­staki liður fjár­magnstekna rík­is­ins vegna árs­ins 2015.

Á sama tíma lækka almennar vaxta­bætur sem skuld­settir íbúða­eig­endur fá greiddar vegna vaxta­gjalda íbúða­lána sinna, um 25,7 pró­sent á milli ára og þeim fjöl­skyldum sem fá þær bætur greiddur fækkar um 21,3 pró­sent. Ástæða þessa er sögð betri eign­ar­staða heim­ila lands­ins. Þá lækka heild­ar­greiðslur barna­bóta úr tíu millj­örðum króna í 9,3 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár