Útfylling CFC-eyðublaða verður „ófrávíkjanleg“

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri. Mynd: Larus Karl Ingason

Embætti rík­is­skatt­stjóra er nú með í und­ir­bún­ingi að vél­taka CFC-eyðu­blöð sem aflands­fé­laga­eig­endur eiga að fylla út og skila með skatt­fram­tölum sínum. „Þegar því verki verður lokið mun útfyll­ing eyðu­blað­anna verða ófrá­víkj­an­leg.“ Skatt­fram­töl þar sem reynir á eign­ar­hald lög­að­ila erlendis eru þannig í dag að vél­ræn yfir­ferð þeirra er ekki fram­kvæm­an­leg. Þetta kemur fram í svari Skúla Eggerts Þórð­ar­sonar rík­is­skatt­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans um skil á CFC-fram­tölum.

Kjarninn spurði Skúla Eggert ann­ars vegar hvort leyfi­legt væri við fram­tals­gerð að horfa í gegnum aflands­fé­lög eins og þau hafi aldrei verið til og skrá eignir þess sem beinar eignir fram­telj­anda í stað þess að skila CFC-fram­tali, og hins vegar að ef fram­telj­andi gerir slíkt, hafa skatta­yf­ir­völd þá ein­hverjar leiðir til að sann­reyna að slík leið skili hærri skatt­greiðslum til rík­is­ins en ef stuðst hefði verið við CFC-leið­ina?

Ástæða fyr­ir­spurn­ar­innar var sú að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, birti í morgun blogg­færslu þar sem fram kom að fram­tal vegna aflands­fé­lags­ins Wintris, sem er skráð á Bresk Jóm­frú­areyj­unum, hafi ekki verið í sam­ræmi við CFC-lög­gjöf­ina. Þar kom einnig fram að við fram­tals­gerð þeirra hjóna hafi „verið horft í gegnum félagið eins og það hafi aldrei verið til og eignir þess skráðar sem bein eign Önnu frá því ári áður en svo kall­aðar CFC-­reglur tóku gildi. Sú var­færna leið að greiða skatta af öll­u­m ­eign­um, hverri fyrir sig, í stað þess að nýta félagið og líta á það sem ­fyr­ir­tæki í atvinnu­rekstri (og skila CFC-fram­tali) hefur skilað sér í hærri skatt­greiðslum til rík­is­ins en ef ­stuðst hefði verið við atvinnu­rekstr­ar­-/CFC-­leið­ina.“

Í færslu Sig­mundar Dav­íðs segir einnig að skatta­yf­ir­völd hafi aldrei ­gert athuga­semdir við með hvaða hætti talið var fram.

Í svari Skúla Eggerts, sem er almennt en fjallar ekki sér­tækt um skatt­skil fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að sam­kvæmt lögum beri að skila með skatt­fram­tali ein­stak­linga CFC eyðu­blöðum ef til­efni er til þess og leiða skatt­stofna út eins og þar kemur fram. „Ef hlut­að­eig­andi skatt­að­ili leiðir skatt­stofna rétti­lega út á skatt­fram­tali sínu eða fylgi­blaði með því án þess að fylla út CFC eyðu­blöð er ekki gerð sér­stök athuga­semd við þann fram­talsmáta verði skatt­stofnar rétti­lega ákvarð­aðir. Ef vafi er á slíku er skorað á fram­telj­anda að bæta úr og skila CFC eyðu­blöð­unum ásamt fylgi­gögnum.“

Skúli Eggert segir að í sjálfu sér sé sú aðferð að horfa í gegnum aflands­fé­lög og færa eignir og tekjur beint inn í fram­töl í sam­ræmi við meg­in­sjón­ar­mið laga um tekju­skatt þótt tækni­leg útfersla reglu­gerðar frá árinu 2013 sé eilítið frá­brugðin. „Eyðu­blöðin um CFC eru fyrst og fremst verk­færi til að leiða fram skatt­stofna en breyta í sjálfu sér engu um yfir­ferð skatt­fram­tala eða skatt­skyld­una, hvort eyðu­blöðin séu fyllt út eða skatt­stofnar leiddir fram með öðrum hætti. Skatt­fram­töl þar sem reynir á eign­ar­hald lög­að­ila erlendis eru þannig að vél­ræn yfir­ferð er ekki fram­kvæm­an­leg. Rík­is­skatt­stjóri hefur nú í und­ir­bún­ingi að vél­taka CFC eyðu­blöð þar sem til­teknir reitir verða núm­eraðir. Þegar því verki verður lokið mun útfyll­ing eyðu­blað­anna verða ófrá­víkj­an­leg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár