Hefði ekki fengið undanþágu frá höftum til að greiða í Panamasjóð

Júlíus Vífill Ingvarsson sagði af sér sem borgarfulltrúi eftir að uppljóstrað var að hann ætti eftirlaunasjóð í Panama.
Júlíus Vífill Ingv­ars­son sagði af sér sem borg­ar­full­trúi eftir að upp­ljóstrað var að hann ætti eft­ir­launa­sjóð í Panama. Mynd: Skjáskot

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefði ekki fengið und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að safna í eft­ir­launa­sjóð sinn sem vistaður er í aflands­fé­lagi í Panama ef hann hefði óskað eftir slíkri hjá Seðla­bank­anum. Inn­lendum aðilum er óheim­ilt að flytja fjár­muni af reikn­ingum sínum hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki hér á landi yfir á reikn­ing í sinni eigu hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki erlendis í þeim til­gangi einum að halda sparn­aði erlendis. Þetta kemur fram í svörum Seðla­banka Íslands við fyr­ir­spurn Frétta­blaðs­ins um málið sem birt eru í frétt í dag.

Þar er þó einnig bent á að inn­lendur aðili geti átt fjár­muni erlendis sem séu ekki háðir skila­skyldu hingað til lands. Það eigi til að mynda við fjár­muni sem hafi verið í eigu við­kom­andi áður en fjár­magns­höft voru inn­leidd hér á landi þann 28. nóv­em­ber 2008. Í svari Seðla­bank­ans segir: „Í slíkum til­vikum getur inn­lendur aðili flutt þá fjár­muni á milli tveggja banka­reikn­inga í sinni eigu erlendis þar sem það telst ekki fjár­magns­hreyf­ing á milli landa í skiln­ingi laga um gjald­eyr­is­mál.“

Júlíus Vífill vildi ekki tjá sig um málið þegar Frétta­blaðið leit­aði frek­ari svara hjá honum og vís­aði í fyrri yfir­lýs­ingar.

Sagði af sér tveimur dögum eftir þáttinn

Júl­íus Víf­ill sagði af sér emb­ætti borg­ar­full­trúa tveimur dögum eftir að upp­lýst hafði verið í sér­stökum Kast­ljós­þætti að hann ætti vörslu­sjóð í Panama sem settur hefði verið á fót árið 2014. Í þætt­inum kom fram að sér­stök áhersla hefði verið lögð á að leyna tengslum hans við sjóð­inn þegar hann var stofn­aður.

Júl­íus gaf út yfir­lýs­ingu vegna máls­ins skömmu áður en að þátt­ur­inn var sýndur, og eftir að þeir sem unnu þátt­inn höfðu sett sig í sam­band við hann, þar sem hann sagði að sjóð­ur­inn hafi verið stofn­aður í sviss­neskum banka til að mynda eft­ir­launa­sjóð­inn sinn, en að honum hafi verið ráð­lagt að skrá stofnun hans í Panama. Sjóð­ur­inn lúti svip­uðu reglu­verki og sjálfs­eigna­stofn­un. Aflands­fé­lagið heitir Silwood Founda­tion. Engar upp­lýs­ingar hafa verið gefnar um greiðslur í félagið. Í fyrr­nefndri yfir­lýs­ingu sinni sagði hann að allt sem við kæmi sjóð­inum væri í sam­ræmi við íslensk lög „enda naut ég sér­fræði­ráð­gjafar til að tryggja að rétti­lega og lög­lega væri að málum staðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár