Ímynd og ásýnd Íslands ekki beðið umtalsverða hnekki til skamms tíma þrátt fyrir ágjöf

Lilja D. Alfreðsdóttir utanríkisráðherra hefur látið greina umfjöllun erlendra fjölmiðla um Ísland og Panamaskjölin.
Lilja D. Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra hefur látið greina umfjöllun erlendra fjöl­miðla um Ísland og Panama­skjölin. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Samkvæmt sam­an­tektum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hefur umfjöllun um atburði lið­innar viku á Íslandi erlendis verið stað­reynda­miðuð og beitt. Neikvæðs tóns hafi gætt í upp­hafi en hann orðið jákvæð­ari eftir að mót­mæli hófust á Aust­ur­velli og ný rík­is­stjórn tók við. Þar sé vísað til þess­ara við­bragða þegar spurt er hvort aðrir muni bregð­ast eins við og á Íslandi. Til skemmri tíma litið hafi ímynd og ásýnd Íslands á alþjóða­vett­vangi ekki beðið umtals­verðan hnekki þrátt fyrir tals­verða ágjöf. Þetta segir Urður Gunn­ars­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um þá vinnu sem ráðu­neytið hefur ráð­ist í vegna erlendrar umfjöll­unar um aflands­fé­laga­eign íslenskra ráða­manna og þau áhrif sem sú umfjöllun hefur haft hér­lendis.

Urður segir að svo virð­ist sem mesta athyglin sé nú farin af Íslandi. Til lengri tíma litið séu hins vegar áskor­anir framundan þar sem enn á eftir að birta upp­lýs­ingar um aflands­fé­lög hund­ruð Íslend­inga.

Þúsundir frétta

Lilja D. Alfreðs­dóttir, nýr utan­rík­is­ráð­herra þjóð­ar­innar, sagði í fyrstu ræðu sinni á Alþingi fyrir helgi að í ráðu­neyti hennar væri verið að „greina áhrif þeirrar erlendu umfjöll­unar sem hefur verið og sú vinna er í gangi. Það er brýnt að meta skað­semi umræð­unnar og bregð­ast við á við­eig­andi hátt." Lilja fór einnig yfir erlenda umfjöllun um Ísland og Panama­skjölin á fyrsta rík­is­stjórn­ar­fundi sínum í morgun og þau vibrögð sem fyr­ir­huguð eru vegna hennar.

Urður segir frétt­irnar sem sagðar hafa verið af Íslandi vegna opin­ber­unar á Panama­skjöl­unum skipta þús­undum. Þá skipti sam­fé­lags­miðla­færslur tugum þús­unda. Ekki hafi verið mikið fjallað um áhrif máls­ins á efna­hag eða orð­spor lands­ins. „Umfjöll­unin um Ísland hefur beinst að helstu ger­endum í stjórn­málum lands­ins og mót­mælum almenn­ings en síður að við­skipta­líf­inu og þaðan af síður hefur umfjöll­unin beinst að Íslandi almennt og þeim stóru verk­efnum sem rík­is­stjórnin hefur unnið að við losun fjár­magns­hafta. Það er ljóst að umfjöll­unin öll hefur verið í nei­kvæðu ljósi framan af, þar sem Ísland var fyrsta vest­ræna lýð­ræð­is­ríkið sem litað er af upp­ljóstr­un­unum. Ítarleg umfjöllun um eignir og félög fyrrum for­sæt­is­ráð­herra og ann­arra ráð­herra í rík­is­stjórn­inni í skatta­skjólum og ekki síður mynd­ræn fram­setn­ing í helstu miðlum er ekki jákvæð.“

Ímynd og ásýnd Ísland ekki beðið skaða

Umfjöllun um afsögn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar sem for­sæt­is­ráð­herra og nýskipan rík­is­stjórnar Sigurðar Inga hafi hins vegar verið með hlut­lausum og jafn­vel jákvæðum hætti. Þá hafi mót­mælum almenn­ings verið gerð góð skil og þyki þau almennt til marks um virkt og öfl­ugt lýð­ræði. Urður telur ólík­legt að kast­ljós alþjóð­legra fjöl­miðla muni aftur bein­ast að íslenskum stjórn­mála­mönnum með jafn­miklum þunga, enda séu upp­ljóstr­anir í Panama­skjöl­unum ekki ein­ungis ein­skorð­aðar við Ísland. „Til lengri tíma litið eru áskor­anir framundan. Enn eru óbirtar upp­lýs­ingar um hund­ruði íslenskra aðila og leiða má líkur að því að það verði hluti af hluti af frá­sögnum alþjó­legra fjöl­miðla um hvað fór úrskeiðis á Íslandi á árunum fyrir hrun. Mat okkar í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, sem jafn­framt er byggt á stöðu­töku helstu sendi­skrif­stofa Íslands og Íslands­stofu, að til skemmri tíma litið hafi ímynd og ásýnd Íslands á alþjóða­vett­vangi ekki beðið umtals­verðan hnekki þrátt fyrir tals­verða ágjöf.“

Utan­rík­is­ráðu­neytið er enn, ásamt fleiri ráðu­neytum, að skoða nánar hvort ástæða sé til að bregð­ast við, til dæmis með greina­skrifum, við­tölum eða öðru móti. Þeirri vinnu sé ekki lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár