Eyða 20 þúsund krónum á mánuði í föt

Fólk á aldr­inum 36 til 55 ára eyðir hæstu fjár­hæð­unum í föt af not­endum Meniga. Lindex er vin­sælasta fata­búðin á land­inu og H&M er í öðru sæti.

Lindex er vinsælasta fataverslunin á Íslandi.
Lindex er vin­sælasta fata­versl­unin á Íslandi. Mynd: Lindex

Fólk á aldr­inum 36 til 45 ára kaupir föt og fylgi­hluti fyrir 235 þús­und krónur á ári, sam­kvæmt tölum Meniga. Þetta gerir um 20 þús­und krónur á mán­uði. Þessi ald­urs­hópur, auk þeirra sem eru á aldr­inum 45 til 55 ára, eyða mestu í þennan vöru­flokk, en eru líka með hæstu ráð­stöf­un­ar­tekj­urnar. Gera má ráð fyrir að þessi ald­urs­hópur versli einnig föt og fylgi­hluti fyrir börn sín. Kjarninn fékk tölu­legar upp­lýs­ingar frá Meniga sem sýna neyslu­hegðun um 50.000 Íslend­inga árið 2015. 

Lindex er vin­sælasta fata­búðin hjá Meniga­not­endum og H&M er í öðru sæti. Það er athygl­is­vert, þar sem H&M er ekki með verslun hér á landi. Sportsdirect er þriðja vin­sælasta búðin. Aðrar fata­versl­anir sem náðu á list­ann eru Útilíf, 66° Norður, Deb­en­hams, Zara, Body Shop, Next og Dress­mann.

Elsti ald­urs­hóp­ur­inn, 66 ára og eldri, eyða minnstu í föt og fylgi­hluti á mán­uði, rúm­lega 9.000 krónum. Yngsti ald­urs­hóp­ur­inn, 16 til 25 ára, eyðir svo næst minnstu, tæp­lega 10.000 krónum.

Úrvinnsla Meniga byggir á töl­fræði­legum sam­an­tektum sem aldrei eru per­sónu­grein­an­legar. Tölurnar byggja á fjár­hags­legum 16 milljón færslum 50 þús­und not­enda sem veltu um 84 millj­örðum króna árið 2015. Meniga greinir ekki eftir heim­ilum, heldur með­al­talsnoktun ein­stak­linga.

Kjarninn hefur einnig fjallað um skyndi­bitaát Íslend­inga, fjar­skipta­mark­að­inn og áfeng­is­kaup með tölum Meniga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Meniga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár