Fólk eyðir meiru í áfengi eftir því sem það eldist

Íslend­ingar eyða hærri upp­hæðum í Vín­búð­inni eftir því sem þeir eld­ast. Samkvæmt tölum Meniga eyðir fólk yfir 66 ára aldri að með­al­tali um 11 þús­und krónum í áfengi þar í mán­uði.

Ungt fólk, á aldrinum 16 til 25 ára, eyðir að meðaltali um 5.000 krónum í Vinbúðinni á mánuði.
Ungt fólk, á aldr­inum 16 til 25 ára, eyðir að með­al­tali um 5.000 krónum í Vin­búð­inni á mán­uði. Mynd: Pexels

Íslend­ingar versla meira í Vín­búð­inni eftir því sem þeir eld­ast. Samkvæmt tölum frá Meniga, sem byggja á neyslu­hegðun um 50 þús­und Íslend­inga, eyðir eldra fólk, 66 og yfir, um 11.700 krónum í Vín­búð­inni á mán­uði að með­al­tali. Enginn ald­urs­hópur eyðir eins miklu og neysla eykst eftir því sem fólk verður eldra.

Yngsti hóp­ur­inn, 16 til 25 ára, eyðir að með­al­tali 5.000 krónum á mán­uði í Vín­búð­inni. En hafa ber í huga að þar telja ekki þeir sem eru undir tví­tugu vegna ald­urs­tak­marks­ins. Þetta er einn af fáum vöru­flokkum þar sem útgjöld aukast jafnt og þétt með aldr­inum, en sú er líka raunin með áskriftir og fjar­skipti, eins og Kjarninn hefur fjallað um.

Úrvinnsla Meniga byggir á töl­fræði­legum sam­an­tektum sem aldrei eru per­sónu­grein­an­legar. Tölurnar byggja á fjár­hags­legum 16 milljón færslum 50 þús­und not­enda sem veltu um 84 millj­örðum króna árið 2015. Meniga greinir ekki eftir heim­ilum, heldur með­al­talsnoktun ein­stak­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Meniga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár