Ungir Íslendingar borða úti annan hvern dag

Ungir Íslend­ingar borða skyndi­bita eða annan til­bú­inn mat annan hvern dag að með­al­tali og eyða í það tæp­lega 30 þús­und krónum á mán­uði. Dominos er vin­sæl­asti veit­inga­stað­ur­inn hjá not­endum Meniga.

Dominos, Subway og KFC eru vinsælustu veitingastaðir landsins.
Dominos, Subway og KFC eru vin­sæl­ustu veit­inga­staðir lands­ins.

Ungir Íslend­ingar borða skyndi­bita eða annan til­bú­inn mat oftar en annan hvern dag og eyða um 26 þús­und krónum á mán­uði í slíkt. Samkvæmt nið­ur­stöðum Meniga borðar ungt fólk á aldr­inum 16 til 25 ára úti eða kaupir sér til­bú­inn mat, oft­ast á skyndi­bita­stöðum, tæp­lega 18 daga í mán­uði að með­al­tali.

Dominos er vin­sæl­asti veit­inga­staður lands­ins sam­kvæmt tölum frá Meniga. Nítján þús­und Meniga­not­endur fengu sér Dom­in­ospitsu árið 2015. Þetta þýðir að um 81 pró­sent þeirra sem versl­uðu sér til­bú­inn mat versl­uðu einu sinni eða oftar við Dominos. Subway er næst­vin­sæl­asti skyndi­bita­staður lands­ins, með 17.500 heim­sóknir frá Meniga­not­endum á mán­uði og KFC í þriðja sæti, með 16.000. Hlut­föllin þar eru 75 pró­sent hjá Subway og 69 pró­sent hjá KFC. Fleiri vin­sælir staðir eru Bak­ara­meist­ar­inn, Te og kaffi, Saffran og Serrano. Nærri jafn margir Meniga not­endur fengu sér pylsu á Bæjarins bestu og versl­uðu við sjálf­sala Ölgerð­ar­innar árið 2015. 10.850 fengu sér nær­ingu úr sjálf­sala og 10.640 fengu sér Bæjarins bestu pylsu.

Yngri fara oftar en eyða minna

Oftast er mik­ill munur á útgjöldum eftir ald­urs­hópum og sést það mjög greini­lega þegar kemur að skyndi­bita­áti. Kjarninn fékk tölu­legar upp­lýs­ingar frá Meniga sem sýna neyslu­hegðun um 50.000 Íslend­inga árið 2015. Undir þennan lið falla allir staðir sem selja til­bú­inn mat eins og skyndi­bita­staðir, kaffi­hús, veit­inga­staðir og bak­arí. 

Fólk á aldr­inum 26 til 35 ára eyða mestum pen­ingum í skyndi­bita, tæp­lega 30 þús­und krónum á mán­uði. Upphæðin lækkar eftir því sem fólk eld­ist, en elsti ald­urs­hóp­ur­inn, 66 ára og eldri, eyðir tæpum 12 þús­und krónum. Og það er eins með fjölda heim­sókna á skyndi­bita­staði og ald­ur­inn, því skiptum fækkar eftir því sem fólk verður eldra. Fólk yfir 66 ára fer að með­al­tali fimm sinnum í mán­uði á skyndi­bita­stað. 

Úrvinnsla Meniga byggir á töl­fræði­legum sam­an­tektum sem aldrei eru per­sónu­grein­an­legar. Tölurnar byggja á fjár­hags­legum 16 milljón færslum 50 þús­und not­enda sem veltu um 84 millj­örðum króna árið 2015. Meniga greinir ekki eftir heim­ilum, heldur með­al­talsnoktun ein­stak­linga. 

Oftast er mik­ill munur á útgjöldum fólks eftir ald­urs­hópum. Mesti mun­ur­inn er á veit­inga- og skyndi­bita­mark­aðnum, en nær helm­ingur, eða 43 pró­sent, útgjalda ungs fólks á aldr­inum 16 til 25 ára fer í mat og veit­ingar. 

Eyðir tæpri milljón í mat

Þó að Íslend­ingar borði oft skyndi­bita og eyði hund­ruð þús­unda á ári í slíkan mat, þá er langstærsti útgjalda­lið­ur­inn mat­vöru­versl­anir. Samkvæmt tölum Meniga er fjöl­skyldu­fólk að eyða tæpum 900 þús­und krónum á ári í mat­vöru­versl­anir.

Í þessum útgjalda­lið er mikið bil á milli ald­urs­flokka. Fjöl­skyldu­fólk í yngri kant­inum, á aldr­inum 26 til 55 ára, eyðir mestu, eða um 75 þús­und krónum á mán­uði. Yngsti ald­urs­hóp­ur­inn eyðir um 25 þús­und krónum á mán­uði og sá elsti um 56 þús­und krónum.

Fólk á aldr­inum 36 til 45 ára fer að með­al­tali annan hvern dag í mat­vöru­verslun, en tíðnin minnkar eftir því sem fólk verður eldra. Þó fer yngsti ald­urs­hóp­ur­inn sjaldn­ast í mat­vöru­búð, eða um þriðja hvern dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Meniga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár