Dómur fallinn - Ríkið á að láta loka neyðarbrautinni

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur féllst í dag á kröfur Reykja­vík­ur­borgar um að svo­kall­aðri neyð­ar­braut Reykja­vík­ur­flug­vallar verði lokað. Sömu­leiðis var inn­an­rík­is­ráð­herra gert að breyta skipu­lagi flug­vall­ar­ins til sam­ræmis við það.

Í mál­inu krafð­ist Reykja­vík­ur­borg þess að Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra, fyrir hönd íslenska rík­is­ins, yrði gert að loka NA/SV-flug­braut (flug­braut 06/24), sem oft er kölluð neyð­ar­brautin, á Reykja­vík­ur­flug­velli og end­ur­skoða skipu­lags­reglur fyrir völl­inn. Meg­in­á­grein­ingur aðila laut að túlkun og þýð­ingu skjals sem þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, Hann Birna Krist­jáns­dóttir, og borg­ar­stjóri Reykja­víkur, Jón Gnarr, und­ir­rit­uðu 25. októ­ber 2013. Reykja­vík­ur­borg taldi að skjalið hafi falið í sér bind­andi lof­orð af hálfu stefnda um að loka umræddri flug­braut Reykja­vík­ur­flug­vallar . Af hálfu rík­is­ins var því hins vegar hafnað af ýmsum ástæðum að skjalið hafi falið í sér lof­orð af hans hálfu eða skuld­bind­andi samn­ing.

Nú hefur hér­aðs­dómur Reykja­víkur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að loka eigi braut­inni. Í dóms­orði segir enn fremur að inn­an­rík­is­ráð­herra eigi að end­ur­skoða skipu­lags­reglur til sam­ræmis við þá lokun. Inn­an­rík­is­ráð­herra hefur 16 vikur frá dóms­upp­kvaðn­ingu til að bregð­ast við nið­ur­stöð­unni, ann­ars þarf ríkið að greiða eina milljón króna á dag í dag­sektir til Reykja­víkur.

Við aðal­með­ferð máls­ins gáfu skýrslu Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, Ögmundur Jónasson, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, Kristján Ásgeirs­son arki­tekt, Ingólfur Giss­ur­ar­son, verk­efna­stjóri hjá rétt­ar­gæslu­stefnda og Jón Karl Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri flug­valla­sviðs rétt­ar­gæslu­stefnda.

Lokun hefur lengi staðið til

Lokun braut­ar­innar hefur staðið árum saman. Árið 2005 und­ir­rit­uðu þáver­andi borg­ar­stjóri Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir og þáver­andi sam­göngu­ráð­herra Sturla Böðv­ars­son sam­komu­lag um sam­göngu­mið­stöð sem rísa skyldi í Vatns­mýr­inni. Hún átti að rísa þar sem braut 06/24 er. Árið 2009 und­ir­rit­uðu Kristján L. Möller, þáver­andi sam­göngu­ráð­herra, og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi borg­ar­stjóri, sam­komu­lag um að brautin ætti að loka, en þó var sá fyr­ir­vari á því sam­komu­lagi að það myndi rísa sam­göngu­mið­stöð við enda brautar 06/24.

Í októ­ber 2013 und­ir­rit­aði Hanna Birna, þá inn­an­rík­is­ráð­herra, og Jón Gnarr, þáver­andi borg­ar­stjóri, sam­þykkt um að ljúka vinnu við end­ur­skoðun á deiliskipu­lagi fyrir Reykja­vík­ur­flug­völl. Þegar því yrði lokið átti að til­kynna um lokun braut­ar­innar. Í des­em­ber 2013 óskaði inn­an­rík­is­ráðu­neytið eftir því að und­ir­bún­ingur yrði hafin að lokun flug­braut­ar­innar, með þeim fyr­ir­vara að ekk­ert yrði gert fyrr en að Rögnu­nefndin svo­kall­aða myndi skila nið­ur­stöðum sínum. Skýrslu hennar var skilað í fyrra og nið­ur­staða nefnd­ar­innar leysti ekki deilur um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar á nokkurn hátt. Ákvörðun á grund­velli til­lagna hennar liggur enn ekki fyrir.

Hanna Birna skuldbatt ríkið

Í dómi hér­aðs­dóms sem féll í dag segir m.a. að á það verði fall­ist með Reykja­vík­ur­borg „að þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, Hann Birna Krist­jáns­dóttir, hafi að lögum skuld­bundið sig, fyrir hönd stefnda, með þeirri yfir­lýs­ingu sem hún und­ir­rit­aði 25. októ­ber 2013 ásamt borg­ar­stjóra stefn­anda, Jóni Gnarr. Verður yfir­lýs­ingin jafn­framt ekki túlkuð á aðra leið en að meg­in­skylda ráð­herr­ans hafi falist í því að loka umræddri flug­braut. Jafn­framt verður á það fall­ist að efnda­tími að þessu leyti hafi verið nægi­lega ákveð­inn. Svo sem fyrr greinir var ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að ráð­herr­ann lof­aði því að skipu­lags­reglur Reykja­vík­ur­flug­vallar skyldu end­ur­skoð­aðar til sam­ræmis við breytta stærð vall­ar­ins, enda þótt ráð­herr­ann gæti ekki skuld­bundið um nán­ari og end­an­leg atriði regln­anna. Var meg­in­efni skyldu stefnda því einnig nægi­lega skýrt að þessu leyti.

Að íslenskum rétti gildir sú grunn­regla að gerða samn­inga skuli halda. Samkvæmt því sem nú hefur verið rakið er ekk­ert komið fram í mál­inu sem leitt getur til þess að víkja beri frá þess­ari reglu. Verður því efn­is­lega fall­ist á aðal­kröfu stefn­anda. Með hlið­sjón af eðli þeirra ráð­staf­ana sem kröfu­gerð stefn­anda lýtur að þykir óraun­hæft að stefn­andi leiti atbeina sýslu­manns til fulln­ustu skyldu stefnda. Verður því fall­ist á að eðli­legt sé að kveða á um að stefndi efni skyldu sína gagn­vart stefn­anda að við­lögðum dag­sektum, svo sem kraf­ist er af stefn­anda."

Íslenska ríkið getur áfrýjað ákvörð­un­inni til Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flugvöllur

FréttirFlugvöllur

Borg­ar­stjóri spyr hvort eitt­hvað sé að marka stjórn­ar­sátt­mál­ann

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, segir að miðað við fyrstu yfir­lýs­ingar Jóns Gunn­ars­sonar, nýs ráð­herra sam­göngu­mála, um Reykja­vík­ur­flug­völl megi velta því fyrir sér hvort eitt­hvað sé að marka stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. Jón sagði í gær að eng­inn önnur lausn sé í stöð­unni en að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði áfram í Vatns­mýr­inni. Hann end­ur­tók þá skoðun í...
AðsentFlugvöllur

Kristinn H. Gunnarsson

Valkvæð afstaða gagn­vart stað­reyndum

Í Kjarn­anum birt­ist 6. júlí síð­ast­lið­inn leið­ari Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar um eft­ir­mála Brexit kosn­ing­ar­innar í Bret­landi. Þar hefur verið rætt um hvort eigi að virða úrslit kosn­ing­ar­innar eða efna til nýrrar. Þórður nefnir í leið­ar­anum undir milli­fyr­ir­sögn­inni – Flug­völl­ur­inn sem kos­inn var burt – að á Íslandi sé dæmi þess að stjórn­mála­menn efni til kosn­ingar um mál­efni en fari svo...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár