Borgarstjóri spyr hvort eitthvað sé að marka stjórnarsáttmálann

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, segir að miðað við fyrstu yfir­lýs­ingar Jóns Gunn­ars­sonar, nýs ráð­herra sam­göngu­mála, um Reykja­vík­ur­flug­völl megi velta því fyrir sér hvort eitt­hvað sé að marka stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar.

Jón sagði í gær að eng­inn önnur lausn sé í stöð­unni en að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði áfram í Vatns­mýr­inni. Hann end­ur­tók þá skoðun í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun og úti­lok­aði þar ekki inn­grip í skipu­lags­vald Reykja­vík­ur­borgar í mál­inu. „„Það eru mörg for­dæmi fyrir því að stjórn­völd hafa gripið inn í skipu­lags­vald sveit­ar­fé­laga þegar almanna­hags­munir liggja við. Þær skyldur sem við berum gagn­vart þessu mik­il­væga sam­göngu­mann­virki geta alveg rétt­lætt það ef við náum ekki sam­komu­lagi. Í þessu felst engin hótun af minni hálfu. Það hefur blasað við okkur öllum að þetta hefur gengið erf­ið­lega, að ná ásætt­an­legri nið­ur­stöðu,“ sagði Jón.

Stefnt að því að flugvöllurinn víki eftir 2022

Ekki hefur verið ein­hugur um hvort að mið­stöð inn­an­lands­flugs verði áfram í Vatns­mýr­inni í Reykja­vík eða verði færð ann­að. Reykja­vík­ur­borg hefur lengi viljað að flug­völl­ur­inn verði færður svo hægt sé að byggja í Vatns­mýr­inni og þétta þar með höf­uð­borg­ina. Um sér að ræða verð­mætasta bygg­ing­ar­landið innan marka hennar sem sé auk þess afar mik­il­vægt fyrir þróun henn­ar.

Sam­kvæmt sam­göngu­á­ætlun er gert ráð fyrir að flug­völl­ur­inn verði þar sem hann er til 2022 hið minnsta en aðal­skipu­lag Reykja­vík­ur­borgar gerir ráð fyrir að hann víki í áföngum eftir það ár og loki árið 2024. Í fyrra­sumar komst Hæsti­réttur Íslands að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið þurfi að standa við sam­komu­lag sitt við Reykja­vík­ur­borg um loka norð­aust­­ur/suð­vest­­ur­-flug­braut­inni, sem stundum er kölluð neyð­­ar­braut­in, á Reykja­vík­ur­flug­velli. Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan um þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una var lögð fram í kjöl­far­ið.

Spyr hvort eitthvað sé að marka sáttmálann

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu nýrrar rík­is­stjórn­ar, sem birt var á mið­viku­dag, kemur fram að rík­is­stjórnin muni „beita sér fyrir lausn á ára­tuga­deilu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar með því að stofna til form­legra við­ræðna sam­göngu­yf­ir­valda, heil­brigð­is­yf­ir­valda, Reykja­vík­ur­borg­ar, ann­arra sveit­ar­fé­laga og hags­muna­að­ila. Tekin verði ákvörðun um fyr­ir­liggj­andi kosti að und­an­gengnu mati og inn­viðir inn­an­lands- og sjúkra­flugs þannig tryggðir til fram­tíð­ar.“ Fyrir liggur að ráða­menn innan bæði Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar eru alfarið á móti því að skipu­lags­vald verði tekið af Reykja­vík­ur­borg í mál­inu og fylgj­andi því að aðrir kostir verði skoð­aðir fyrir mið­stöð inn­an­lands­flugs.

Dagur segir Reykja­vík­ur­borg sé að sjálf­sögðu reiðu­búin að ræða flug­vall­ar­málið. „Það höfum við ítrekað und­ir­strikað og teljum að nið­ur­staða Rögnu-nefnd­ar­innar hafi lagt góðan grunn að því. Miðað við fyrstu yfir­lýs­ingar ráð­herra sýn­ist mér aðal­spurn­ingin vera sú hvort eitt­hvað sé að marka stjórn­ar­sátt­mál­ann sem talar um að horfa til fram­tíðar og vinna að sátt í mál­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flugvöllur

AðsentFlugvöllur

Kristinn H. Gunnarsson

Valkvæð afstaða gagn­vart stað­reyndum

Í Kjarn­anum birt­ist 6. júlí síð­ast­lið­inn leið­ari Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar um eft­ir­mála Brexit kosn­ing­ar­innar í Bret­landi. Þar hefur verið rætt um hvort eigi að virða úrslit kosn­ing­ar­innar eða efna til nýrrar. Þórður nefnir í leið­ar­anum undir milli­fyr­ir­sögn­inni – Flug­völl­ur­inn sem kos­inn var burt – að á Íslandi sé dæmi þess að stjórn­mála­menn efni til kosn­ingar um mál­efni en fari svo...
FréttirFlugvöllur

Dómur fall­inn - Ríkið á að láta loka neyð­ar­braut­inni

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur féllst í dag á kröfur Reykja­vík­ur­borgar um að svo­kall­aðri neyð­ar­braut Reykja­vík­ur­flug­vallar verði lokað. Sömu­leiðis var inn­an­rík­is­ráð­herra gert að breyta skipu­lagi flug­vall­ar­ins til sam­ræmis við það. Í mál­inu krafð­ist Reykja­vík­ur­borg þess að Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra, fyrir hönd íslenska rík­is­ins, yrði gert að loka NA/SV-flug­braut (flug­braut 06/24), sem oft er kölluð neyð­ar­brautin, á Reykja­vík­ur­flug­velli og end­ur­skoða skipu­lags­reglur fyrir völl­inn. Meg­in­á­grein­ingur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár