VÍS lækkar arðgreiðslu um þrjá milljarða

Stjórn Vátrygg­inga­fé­lag Íslands (VÍS) hefur ákveðið að lækka arð­greiðslu til hlut­hafa sinna úr fimm millj­örðum króna í 2.067 millj­ónir króna. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar rétt í þessu. Þetta er gert þrátt fyrir að stjórnin segi að arð­greiðslu­til­kynn­ingar hennar hafi verið vel innan þess ramman sem mark­mið um fjár­magns­skipan félags­ins gerir ráð fyrir.

Þar segir að við­skipta­vinir og starfs­menn VÍS skipti félagið miklu. „Stjórnin getur ekki horft fram hjá þeirri stað­reynd að fylgi hún núver­andi arð­greiðslu­stefnu, þá geti það skaðað orð­spor fyr­ir­tæk­is­ins. Í því ljósi hefur stjórn ákveðið að leggja til aðgreiðsla sé miðuð við hagnað síð­asta árs. Stjórn VÍS telur mik­il­vægt að fram fari umræða innan félags­ins, meðal hlut­hafa og út í sam­fé­lag­inu um lang­tíma­stefnu varð­andi ráð­stöfun fjár­muna sem ekki nýt­ast rekstri skráðra félaga á mark­aði."

Til­kynn­ing VÍS kemur í kjöl­far til­kynn­ingar Sjóvár um að það trygg­inga­fé­lag hafi ákveðið að lækka arð­greiðslu sína úr 3,1 millj­arði króna í 657 millj­ónir króna. Hún er nú jafn há og hagn­aður Sjóvár var á síð­asta ári.

Tveir dagar eru síðan að stjórnir bæði VÍS og Sjóvár sendu frá sér til­kynn­ingu þar sem þær sögðu að félögin myndu ekki breyta arð­greiðslu­á­formum sínum.

Tillögur stjórna þriggja stærstu trygg­inga­fé­laga lands­ins, VÍS, Trygg­ing­ar­mið­stöð (TM) og Sjóvá, um að greiða eig­endum sínum sam­an­lagt 9,6 millj­arða króna í arð og kaupa af þeim hluta­bréf upp á 3,5 millj­arða króna, hefur væg­ast sagt mælst illa fyrir. Sér­stak­lega þar sem hagn­aður tveggja þeirra, VÍS og Sjóvár, er mun lægri en fyr­ir­huguð arð­greiðsla. VÍS hagn­að­ist nefni­lega um 2,1 millj­arð króna í fyrra en ætlar að greiða hlut­höfum sínum út fimm millj­arða króna í arð. Sjóvá hagn­að­ist um 657 millj­ónir króna en ætlar að greiða út 3,1 millj­arð króna í arð. TM hagn­að­ist hins vegar um 2,5 millj­arða króna og ætlar að greiða hlut­höfum sínum út 1,5 millj­arð króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tryggingafélög

FréttirTryggingafélög

Sjóvá lækkar arð­greiðslu um tæpa 2,5 millj­arða

Stjórn Sjóvá ákvað á fundi í dag að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögu fyrir kom­andi aðal­fund félags­ins þess efnis að fyr­ir­huguð arð­greiðsla til hlut­hafa var lækkuð úr 3,1 millj­arði króna í 657 millj­ónir króna. Hún er hún jafn há og hagn­aður Sjóvár var á síð­asta ári. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar sem send var í hádeg­inu í dag. Í grein­ar­gerð...
FréttirTryggingafélög

Segja FME standa með fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem merg­sjúgi almenn­ing

FÍB, félag íslenskra bif­reið­ar­eig­enda, segir Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) standa þétt að baki fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem merg­sjúgi almenn­ing. Hags­munir við­skipta­vina trygg­inga­fé­laga lands­ins virð­ist engu máli skipta fyrir FME, þrátt fyrir að stofnun hafi laga­skyldu til að gæta þeirra. Eft­ir­litið skilji ekki hlut­verk sitt. Þetta kemur fram í svari FÍB við yfir­lýs­ingu sem FME sendi frá sér í gær. Samkvæmt til­lögum, sem bornar verða...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár