Segja FME standa með fjármálafyrirtækjum sem mergsjúgi almenning

FÍB, félag íslenskra bif­reið­ar­eig­enda, segir Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) standa þétt að baki fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem merg­sjúgi almenn­ing. Hags­munir við­skipta­vina trygg­inga­fé­laga lands­ins virð­ist engu máli skipta fyrir FME, þrátt fyrir að stofnun hafi laga­skyldu til að gæta þeirra. Eft­ir­litið skilji ekki hlut­verk sitt. Þetta kemur fram í svari FÍB við yfir­lýs­ingu sem FME sendi frá sér í gær.

Samkvæmt til­lögum, sem bornar verða undir aðal­fundi VÍS, Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar og Sjóvár er gert ráð fyrir að félögin greiði sam­tals 9,6 millj­arða króna í arð vegna síð­asta árs Í til­fellum Sjóvár og VÍS eru arð­greiðsl­urnar tölu­vert umfram árlegan hagnað. Mesta arð­greiðslan er fyr­ir­huguð hjá VÍS, um fimm millj­arðar króna, en hagn­að­ur­inn í fyrra var rúm­lega tveir millj­arðar. Þetta er gert á grunni nýrra reikniskila­reglna sem lækkar vátrygg­inga­skuld félags­ins, sem oft er nefnd bóta­sjóður, um fimm millj­arða króna en eykur eigið fé um 3,7 millarða króna.

Í yfir­lýs­ingu FME leið­rétti eft­ir­litið það sem það kall­aði missagnir FÍB en óskaði félag­inu jafn­framt hins besta í hags­muna­bar­áttu sinni. Þær meintu missagnir birt­ust í frétt á síðu FÍB á laug­ar­dag. Þar sagði m.a.: „Fjár­mála­eft­ir­litið hefur lagt blessun sína yfir það að eig­endur trygg­inga­fé­lag­anna tæmi bóta­sjóð­ina og stingi þeim í eigin vasa. FÍB hvetur ráð­herra til að taka í taumana með því að gefa stjórn Fjármála­eft­ir­lits­ins fyr­ir­mæli um að sinna lög­bundnu eft­ir­lits- og aðhalds­hlut­verki sínu.[...]FÍB bendir á að FME hafi ríkar heim­ildir til að hlut­ast til um fjár­mál og rekstur trygg­inga­fé­lag­anna. FME geti skipað þeim að end­ur­greiða trygg­inga­tökum eign þeirra í bóta­sjóð­unum eða nota fjár­mun­ina til að lækka iðgjöld næstu árin.“

Þessu hafn­aði FME. Hægt er að lesa yfir­lýs­ingu eft­ir­lits­ins hér.

FÍB segir í svari sínu, sem sent var fjöl­miðlum í dag, að FME skilji ekki í hverju gagn­rýnin á arð­greiðslur trygg­inga­fé­lag­anna felist. „FME telur að trygg­inga­fé­lögin hafi ekki staðið sig sem skyldi við að rétt­læta óeðli­legar arð­greiðslur. FME skilur ekki að það er ekk­ert að rétt­læta.

FME skilur ekki að gagn­rýnin snýst um and­vara­leysi stofn­un­ar­innar þegar kemur að hags­munum almenn­ings. FME van­rækir þetta hlut­verk sitt.

FME ráð­leggur trygg­inga­tökum að skipta bara um trygg­inga­fé­lag ef þeir eru ósáttir við óeðli­legar arð­greiðslur. Þrjú stærstu trygg­inga­fé­lögin með 90% mark­að­ar­ins sæta öll gagn­rýni fyrir áform um óhóf­legar arð­greiðslur. Hverju breytir fyrir við­skipta­vin að fara frá einu slíku yfir í það næsta? Ljóst er að FME er ekki í tengslum við raun­veru­leik­ann.

Skiln­ings­leysi FME kemur skýrt fram í hvatn­ingu stofn­un­ar­innar til trygg­inga­fé­laga um að hækka iðgjöld á sama tíma og þau dæla millj­örðum króna út í arð­greiðslum. FME lætur eins og iðgjalda­tekjur og fjár­fest­inga­tekjur trygg­inga­fé­lag­anna séu óskyldir hlutir. Þetta er rangt. Trygg­inga­fé­lögin ávaxta fyr­ir­fram­greiddu iðgjöldin og þannig verða fjár­fest­inga­tekj­urnar til. Sú ávöxtun á að vera í þágu við­skipta­vina, en ekki bara eig­enda félag­anna. Samt telur FME þörf á iðgjalda­hækkun af því að „trygg­inga­hlut­inn“ sé rek­inn með tapi þó fjár­mála­hlut­inn skili hagn­aði, rétt eins og hann sé óskyldur trygg­ingum. En að sjálf­sögðu er heild­ar­af­koman það sem skiptir máli þegar þörfin fyrir hækkun er metin. FME stendur með fyr­ir­tækj­unum gegn hags­munum neyt­enda þegar það leggur blessun sína yfir iðgjalda­hækkun hjá trygg­inga­fé­lög­unum sem taka á sama tíma millj­arða króna í arð.

Gagnrýni FÍB og fjölda ann­arra snýst um að vegna breyt­inga á reglum um reikn­ings­skil telja trygg­inga­fé­lögin að þau geti nýtt upp­safn­aða bóta­sjóði í eigin þágu, þar á meðal í óhóf­legar arð­greiðslur. Vegna hinna nýju reikn­ings­skila þurfa trygg­inga­fé­lögin ekki lengur á bóta­sjóð­unum að halda til að eiga fyrir tjónum. Þeim nægir sterk eig­in­fjár­staða. En það voru við­skipta­vinir félag­anna sem byggðu þessa sjóði upp með ofteknum iðgjöldum. Sjóð­irnir voru ætl­aðir til að greiða tjón, þeir voru skuld við tjón­þola en ekki ætl­aðir í arð­greiðslur.

FME hafnar því að við­skipta­vinir trygg­inga­fé­lag­anna eigi bóta­sjóð­ina. Þar með eru sjóð­irnir eign trygg­inga­fé­lag­anna að mati FME. Þetta gengur gegn skil­grein­ingu trygg­inga­fé­lag­anna sjálfra. Þau hafa ætíð haldið því fram að bóta­sjóð­irnir séu eign tjón­þola, sjóð­irnir séu skuld við þá sem eiga eftir að lenda í tjónum. FME þarf að upp­lýsa hvernig skuld getur fjár­magnað arð­greiðslur.

FME seg­ist í yfir­lýs­ingu sinni ekki hafa laga­heim­ild til að gefa trygg­inga­fé­lög­unum fyr­ir­mæli um ráð­stöfun arðs til trygg­inga­tak­anna sem byggðu upp bóta­sjóð­ina. Hér und­ir­strikar FME sof­anda­hátt síð­ustu 6-7 ára, meðan inn­leið­ing nýrra reikn­ings­skila hefur verið í und­ir­bún­ingi. Fyrir löngu var FME ljóst að trygg­inga­fé­lögin þyrftu ekki á bóta­sjóð­unum að halda þegar nýju regl­urnar, sem kall­ast Solvency 2, yrðu inn­leiddar. Þegar árið 2011 upp­fylltu öll trygg­inga­fé­lögin nýju kröf­urnar. Þá þegar gat FME farið að vinna með trygg­inga­fé­lög­unum að því að láta þau skila bóta­sjóð­unum til við­skipta­vina með því ein­fald­lega að nýta þá til að greiða tjón. Á móti hefði verið hægt að lækka iðgjöld og þannig hefðu við­skipta­vinir trygg­inga­fé­lag­anna fengið sjóð­ina end­ur­greidda.

En líkt og fyrri dag­inn virð­ast hags­munir við­skipta­vina trygg­inga­fé­lag­anna engu máli skipta fyrir FME, þó svo að stofn­unin hafi þá laga­skyldu að gæta þeirra. Þess í stað stendur stofn­unin þétt að baki fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem merg­sjúga almenn­ing í skjóli fáok­unar.

FME seg­ist óska FÍB hins besta í hags­muna­bar­áttu sinni. FÍB er ekki að berj­ast fyrir sínum hags­munum, heldur hags­munum alls almenn­ings í land­inu. En ef rétt væri að málum staðið, þá þyrfti FÍB ekki að standa í þess­ari bar­áttu. Það er nefni­lega FME sem á að gæta hags­muna almenn­ings gagn­vart trygg­inga­fé­lög­unum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tryggingafélög

FréttirTryggingafélög

VÍS lækkar arð­greiðslu um þrjá millj­arða

Stjórn Vátrygg­inga­fé­lag Íslands (VÍS) hefur ákveðið að lækka arð­greiðslu til hlut­hafa sinna úr fimm millj­örðum króna í 2.067 millj­ónir króna. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar rétt í þessu. Þetta er gert þrátt fyrir að stjórnin segi að arð­greiðslu­til­kynn­ingar hennar hafi verið vel innan þess ramman sem mark­mið um fjár­magns­skipan félags­ins gerir ráð fyrir. Þar segir að við­skipta­vinir...
FréttirTryggingafélög

Sjóvá lækkar arð­greiðslu um tæpa 2,5 millj­arða

Stjórn Sjóvá ákvað á fundi í dag að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögu fyrir kom­andi aðal­fund félags­ins þess efnis að fyr­ir­huguð arð­greiðsla til hlut­hafa var lækkuð úr 3,1 millj­arði króna í 657 millj­ónir króna. Hún er hún jafn há og hagn­aður Sjóvár var á síð­asta ári. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar sem send var í hádeg­inu í dag. Í grein­ar­gerð...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár