Gjaldeyriskaup eru viðbrögð við miklu innflæði fjármagns

Gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans að und­an­förnu eru ákveðin við­brögð við auknu fjár­magnsinn­flæði erlendis frá inn á skulda­bréfa­markað. Krónunni er þannig ekki leyft að styrkj­ast með þessu aukna inn­flæði, sagði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, á kynn­ing­ar­fundi stýri­vaxta­á­kvörð­unar í dag.

Már og Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri voru á fund­inum spurðir um boð­aðar aðgerðir vegna svo­kall­aðra vaxt­ar­mun­ar­við­skipta. Á síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi í ágúst síð­ast­liðnum greindi Már frá því að hafin sé vinna við þróun stýri­tækja sem eigi að draga úr miklum sveifum á inn- og útflæði gjald­eyris vegna slíkra við­skipta. Vaxta­mun­ar­við­skipti voru afar vin­sæl á Íslandi fyrir hrun þar sem háir vextir löð­uðu að erlenda fjár­festa. Eins og Kjarninn hefur greint frá þá má í dag greina auk­inn áhuga erlendra fjár­festa á nýjan leik á íslenskum skulda­bréfa­mark­aði. Í ágúst síð­ast­liðnum jókst eign þeirra á rík­is­skulda­bréfum um 18 millj­arða króna.


Már sagði að málin hafi mikið verið rædd í pen­inga­stefnu­nefnd­inni og einnig innan kerf­is­á­hættu­nefndar og fjár­mála­stöð­ug­leika­ráðs. En hvernig tækin verði hönnuð sé ekki ein­falt og muni taka ein­hverja mán­uði. Fyrst og síð­ast sé það mik­il­vægt að stýri­tækin verði til staðar þegar „tjöld­unum er svipt frá“ og átti Már þá við þegar flæði fjár­magns er ekki lengur bundið fjár­magns­höftum.


Á fund­inum í ágúst sagði Már að til greina kæmi að beita skatti eða bindi­skyldu á vaxta­muna­við­skipti.

Draga úr en eyða ekki sveiflum

Þá kom fram á fund­inum að aukin gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans að und­an­förnu, sem ítrekað sló met í gjald­eyr­is­kaupum í sumar, stafi af auknu inn­flæði fjár­magns. Arnór Sig­hvats­son sagði að þrátt fyrir að bank­inn legg­ist gegn inn­flæð­inu með auknum kaupum þá styrk­ist krónan. Það sé óhjá­kvæmi­legt að krónan styrk­ist við svo mikið inn­flæði vegna utan­rík­is­við­skipta, auk þess sem fjár­magnsinn­streymi hafi bæst við und­an­farnar vikur. „Við erum að leggj­ast jafnt þungt ef ekki þyngra en áður, en það er bara meiri straumur,“ sagði Arnór um gjald­eyr­is­kaup bank­ans. Hann sagði bank­ann vilja draga úr sveiflum á gjald­eyr­is­mark­aði en ekki eyða þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár