Erlendir fjárfestar versla enn meira af ríkisskuldabréfum

Erlendir fjár­festar héldu áfram að kaupa inn­lend rík­is­skulda­bréf í síð­asta mán­uði. Í mán­uð­inum jókst eign þeirra á rík­is­skulda­bréfum um 18 millj­arða króna og nam eignin alls 186 millj­örðum króna um síð­ustu mán­að­ar­mót, sam­an­borið við um 168 millj­arða króna mán­uði fyrr. Þetta má sjá í mán­að­ar­legu mark­aðs­upp­lýs­inga­skjali Lánamála rík­is­ins.

Helst eru erlendir fjár­festar áhuga­samir um löng óverð­tryggð rík­is­bréf, það eru flokkar sem eru á gjald­daga árin 2022, 2025 og 2031.


Áhugi erlendra fjár­festa á skulda­bréfum íslenska rík­is­ins hefur auk­ist veru­lega á und­an­förnum mán­uðum. Fjár­fest­ing þeirra upp á átján millj­arða í ágúst kemur til við­bótar við rúm­lega átta millj­arða króna kaup þeirra á skulda­bréfa­mark­aði yfir sum­ar­mán­uð­ina.


Vextir á Íslandi eru háir í sam­an­burði við mörg önnur ríki, gengi krón­unnar hefur verið stöðugt gagn­vart evru og í kjöl­far áætl­unar stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta hafa erlend mats­fyr­ir­tæki hækkað láns­hæfi Íslands. Þetta hefur allt glætt áhuga erlendra aðila á að fjár­festa hér­lendis.

Vaxtarmunarviðskiptin snúa aftur

Vaxt­ar­mun­ar­við­skipti voru afar vin­sæl hér­lendis fyrir hrun. Vaxta­kjör á Íslandi voru mun hærri en í flestum öðrum ríkjum og til lands­ins streymdu hund­ruðir millj­arða króna sem fjár­fest var í skulda­bréfum með háum vöxtum. Þótt upp­hæð­irnar sem um ræðir í dag séu ekki í námunda við það sem þekkt­ist fyrir hrun, þá hafa stjórn­völd verið á varð­bergi. Í ágúst sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra að vextir á Íslandi mættu ekki vera of háir í sam­an­burði við önnur lönd, eigi að koma í veg fyrir óeðli­lega mikið inn­flæði fjár­magns.


Við kynn­ingu ákvörð­unar pen­inga­stefnu­nefndar í ágúst um hækkun stýri­vaxta greindi Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri síðan frá því að bank­inn muni leggja skatt eða bind­ingu á vaxt­ar­mun­ar­við­skipti í fram­tíð­inni. Þessum stýri­tækjum verður komið á áður en flæði fjár­magns verður frjálst án fjár­magns­hafta. Að sögn seðla­banka­stjóra mun þetta auka bit pen­inga­stefn­unnar en nákvæm útfærsla liggur ekki fyrir. Boltinn er hjá Seðla­bank­anum og búast má við fréttum af þessu á næstu mán­uðum, sagði Már í ágúst.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár