Seðlabankinn boðar skatt eða bindingu á vaxtamunarviðskipti

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri greindi frá því í dag að á næstu miss­erum verði kynntar til sög­unnar leiðir sem leyfi bank­anum að hafa áhrif á vaxta­muna­við­skipti, til dæmis með skatt­lagn­ingu eða bindi­skyldu. Þessum stýri­tækjum verður komið á áður en flæði fjár­magns verður frjálst án fjár­magns­hafta. Að sögn seðla­banka­stjóra mun þetta auka bit pen­inga­stefn­unnar en nákvæm útfærsla liggur ekki fyrir. Boltinn er hjá Seðla­bank­anum og búast má við fréttum af þessu á næstu mán­uðum, sagði Már.

Ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar um að hækka stýri­vexti og ný efna­hags­spá Seðla­bank­ans var kynnt á fundi í Seðla­bank­anum klukkan tíu í morgun. Áður en Már og Þórarinn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur bank­ans, tóku við spurn­ingum úr sal þá greindi seðla­banka­stjóri frá áformum bank­ans um bindi­skyldu eða skatt á þá erlendu aðila sem kaupa inn­lend skulda­bréf, svokölluð vaxta­mun­ar­við­skipti.

Már var spurður nánar um fyr­ir­ætl­anir bank­ans og svar­aði hann því í fyrstu til að á þess­ari stundu ætti ekki að dvelja of lengi við málið. Hann bætti því þó við að óvíst sé hvort um verði að ræða skatt­lagn­ingu á fjár­magns­flæði erlendra aðila í skulda­bréfa­við­skiptum. Ókostir þess séu aug­ljósir þar sem pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans hafi ekki vald til að stýra skatt­inum á hverjum tíma. „Kannski þarf skatt að lokum til að styðja við tækið, en það er ljóst hvar skatt­lagn­ing­ar­valdið er,“ sagði Már og vís­aði til Alþingis. „Þess vegna höfum við skoðað í hvaða mæli hægt sé að beita sér­stökum bind­ingum,“ sagði Már.

Spurður hvort það sé stefna bank­ans að eyða öllum vaxta­mun eða hvort vaxta­mun­ar­við­skipti eigi að vera hluti af virkum gjald­eyr­is­mark­aði, sagði Már að það ráð­ist af aðstæðum hverju sinni. „Við getum hugsað okkur aðstæður þar sem það er talið nauð­syn­legt um hríð [að eyða öllum vaxta­mun við útlönd].“ Það ráð­ist aftur á móti af þjóð­ar­bú­skapnum, fjár­mála­stöð­ug­leika og aðhaldi pen­inga­stefn­unnar. Allt þetta sé háð frek­ari stefnu­mótun, ekki aðeins innan Seðla­bank­ans, heldur einnig hvernig íslensk stjórn­völd sjái þátt­töku Íslands á alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uðum til lengdar.

Vaxtamunarviðskiptin snúa aftur


Vaxt­ar­mun­ar­við­skipti voru afar vin­sæl hér­lendis fyrir hrun. Vaxta­kjör á Íslandi voru mun hærri en í flestum öðrum ríkjum og til lands­ins streymdu hund­ruðir millj­arða króna sem fjár­fest var í skulda­bréfum með háum vöxtum.

Við­skipti sem þessi hafa legið niðri og ekki þótt ákjós­an­leg af fjár­festum erlendis, ekki síst vegna gjald­eyr­is­hafta og óvissu í efna­hags­málum, allt þar til nýverið. Eins og áður eru vextir á Íslandi mun hærri en víða ann­ars staðar. Á síð­ustu mán­uðum hafa erlendir aðilar keypt löng rík­is­skulda­bréf fyrir sam­tals um átta millj­arða króna. Upphæðin er lág í sam­an­burði við stærð skulda­bréfa­mark­að­ar­ins og umsvif vaxta­mun­ar­við­skipta á árum áður, en við­skiptin eru engu að síður vísir að upp­hafi frek­ari vaxta­mun­ar­við­skipta hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár