Seðlabankinn lækkar hagvaxtarspá og segir horfur breyttar vegna kjarasamninga

Seðla­banki Íslands hefur fært niður spár sínar um hag­vöxt á næstu árum og spáir því nú að hag­vöxtur í ár verði 4,2 pró­sent, eða um hálfu pró­senti minna en bank­inn spáði í síð­ustu útgáfu Pen­inga­mála, árs­fjórð­ungs­legu riti bank­ans. Þá spáir bank­inn því að hag­vöxtur á næstu tveimur árum, 2016 og 2017, verði þrjú pró­sent á ári. Áður var spáð 3,5 pró­sent hag­vexti næstu tvö ár. Bráða­birgða­tölur Hag­stof­unnar benda til að hag­vöxtur á fyrri helm­ingi árs 2015 hafi verið 2,9 pró­sent.

Seðla­bank­inn segir sam­setn­ingu hag­vaxtar hafa breyst og sé nú í enn meiri mæli drif­inn áfram af inn­lendri eft­ir­spurn, einkum einka­neyslu.


Meg­in­skýr­ing breyttra efna­hags­horfa er sögð nýgerðir kjara­samn­ingar sem fela í sér veru­lega launa­hækk­anir í ár og á næstu tveimur árum. „Eins og rakið var í frá­viks­dæmi í maí­hefti Pen­inga­mála munu svo miklar launa­hækk­anir óhjá­kvæmi­lega hafa í för með sér aukið aðhald pen­inga­stefn­unnar sem draga mun úr fjár­fest­ingu og vinnu­afls­eft­ir­spurn. Því er einnig gert ráð fyrir hæg­ari fjölgun heild­ar­vinnu­stunda og meira atvinnu­leysi á spá­tím­anum en spáð var í maí. Samn­ing­arnir fela í sér að launa­kostn­aður á fram­leidda ein­ingu hækkar um 9% í ár og rúm­lega 7% á ári að með­al­tali á spá­tím­anum sem eru tölu­vert meiri hækk­anir en gert var ráð fyrir í maí­spánni. Á móti vegur að gert er ráð fyrir minni hækkun inn­flutn­ings­verð­lags á spá­tím­anum en spáð var í maí, ekki síst vegna mik­illar lækk­unar alþjóð­legs olíu­verðs síð­ustu vikur,“ segir Seðla­bank­inn.


„Verð­bólgu­horfur versna þó veru­lega frá því sem gert var ráð fyrir í maí. Samkvæmt end­ur­skoð­aðri spá verður verð­bólga komin í ríf­lega 4% snemma á næsta ári og verður á bil­inu 4-4½% á næstu tveimur árum áður en hún tekur að hjaðna á ný í átt að verð­bólgu­mark­mið­inu er líða tekur á spá- tím­ann. Nokkur óvissa er varð­andi hugs­an­leg frá­vik verð­bólgu frá ofan­greindri spá. Það stafar aðal­lega ann­ars vegar af óvissu um í hve ríkum mæli launa­hækk­unum verður velt út í verð­lag eða þeim mætt með auk­inni hag­ræð­ingu og því veik­ara atvinnustigi og hins vegar af óvissu um alþjóð­lega verð­þróun og áfram­hald við­skipta­kjara­bata.“


Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans til­kynnti í morgun um hækkun á stýri­vöxtum um 0,5 pró­sentu­stig, vegna versn­andi verð­bólgu­horfa.


Pen­inga­mál, efna­hags­spá Seðla­bank­ans, í heild.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár