Seðlabankinn hækkar vexti um 0,5 prósentur

Pen­inga­stefnu­nefnd Íslands hækk­aði í dag stýri­vexti seðla­bank­ans um 0,5 pró­sentur.

Í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar, þar sem ákvörð­unin er rök­studd, segir að verð­bólgu­horfur hafi versnað veru­lega miðað við síðusut spá bank­ans en sam­hliða til­kynn­ingu um hærri stýri­vexti gefur Seðla­bank­inn út árs­fjórð­ungs­legt spá­rit sitt Pen­inga­mál. Í því er spáð að hag­vöxtur í ár verði fjögur pró­sent. Ástæða fyrir versn­andi verð­bólgu­spá eru nýgerðir kjara­samn­ingar og hærri verð­bólgu­vænt­ingar. Því er spáð að verð­bólga, sem í júlí mæld­ist 1,9 pró­sent, verði komin í 4 pró­sent snemma á næsta ári.

„Aukist verð­bólga í fram­haldi af kjara­samn­ingum eins og spáð er mun pen­inga­stefnu­nefnd þurfa að hækka vexti enn frekar eigi verð­bólgu­mark­miðið að nást til lengri tíma litið,“ segir nefndin.

Yfirlýsing peningastefnunefndar í heild:


„Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bank­ans um 0,5 pró­sentur. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, verða því 5,5%.


Samkvæmt nýbirtri spá Seðla­bank­ans verður árlegur hag­vöxtur rúm­lega 4% í ár og u.þ.b. 3% næstu tvö árin. Á spá­tíma­bil­inu er vöxt­ur­inn um ½ pró­sentu minni á ári en bank­inn spáði í maí sl. Þetta er þó öfl­ugur vöxtur enda fer fram­leiðslu­spenna vax­andi á næstu miss­erum og hag­vöxtur verður í rík­ari mæli en á und­an­förnum árum drif­inn af inn­lendri eft­ir­spurn, ekki síst einka­neyslu. Fjár­fest­ing verður hins vegar veik­ari en áður var spáð og vinnu­afls­eft­ir­spurn vex hægar.


Verð­bólga hefur auk­ist und­an­farið en er enn undir mark­miði Seðla­bank­ans, sér­stak­lega ef horft er fram­hjá hús­næð­islið verð­vísi­töl­unnar. Verð­bólgu­horfur hafa hins vegar versnað veru­lega miðað við síð­ustu spá bank­ans vegna nið­ur­stöðu nýgerðra kjara­samn­inga og verð­bólgu­vænt­ingar hafa hækkað. Spáð er að verð­bólga verði komin í 4% snemma á næsta ári og verði á bil­inu 4-4½% næstu tvö árin en hjaðni síðan í átt að verð­bólgu­mark­mið­inu, enda felst í spánni að aðhalds­stig pen­inga­stefn­unnar auk­ist á næst­unni.


Breyt­ingar á efna­hags­horfum frá því í maí má fyrst og fremst rekja til áhrifa mik­illa launa­hækk­ana í kjöl­far kjara­samn­ing­anna og auk­ins pen­inga­legs aðhalds sem óhjá­kvæmi­lega fylgir þeim. Þær stafa þó einnig af alþjóð­legri þróun sem hefur stuðlað að meiri lækkun inn­flutn­ings­verðs en áður var gert ráð fyrir og bættum við­skipta­kjörum sem vinna á móti verð­bólgu­á­hrifum launa­hækk­ana. Gengi krón­unnar hefur einnig hækkað lít­il­lega þrátt fyrir mikil gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans.


Aukist verð­bólga í fram­haldi af kjara­samn­ingum eins og spáð er mun pen­inga­stefnu­nefnd þurfa að hækka vexti enn frekar eigi verð­bólgu­mark­miðið að nást til lengri tíma litið. Hve mikið og hve hratt ræðst af fram­vind­unni og því hvernig greið­ist úr þeirri óvissu sem nú er til staðar. Þar má nefna í hve ríkum mæli miklar launa­hækk­anir koma fram í hækkun verð­lags ann­ars vegar og auk­inni hag­ræð­ingu og fram­leiðni­aukn­ingu hins vegar. Þróun við­skipta­kjara, útlána og fast­eigna­verðs skiptir þar einnig máli. Vaxta­fer­ill­inn mun einnig ráð­ast af því hvort öðrum stjórn­tækjum verður beitt til þess að halda aftur af eft­ir­spurn­ar­þrýst­ingi á kom­andi miss­erum.


Vextir Seðla­banka Íslands verða sam­kvæmt þessu sem hér segir:
Daglán: 7,25%
7 daga veð­lán: 6,25%
7 daga bundin inn­lán: 5,50%
Við­skipta­reikn­ingar: 5,25%“


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár