Bjarni: Vextir á Íslandi mega ekki kynda undir vaxtamunarviðskipti

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, segir stýri­vexti á Íslandi ekki geta verið of háa í sam­an­burði við önnur lönd, eigi að koma í veg fyrir óeðli­lega mikið inn­flæði fjár­magns. Vaxta­munur við önnur lönd er er eitt þeirra atriða sem Seðla­bank­inn þurfi að líta til við ákvörðun stýri­vaxta, segir Bjarni í sam­tali við frétta­stofu Bloomberg.

Næsta vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verður til­kynnt á mið­viku­dag­inn. Grein­ing­ar­að­ilar spá hækkun vaxta um 0,5 pró­sentu­stig, í takt við það sem nefndin sjálf hefur boðað á síð­ustu vaxta­á­kvörð­un­ar­fundum.


Í frétt Bloomberg eru rifjuð upp gríð­ar­leg vaxta­muna­við­skipti á Íslandi fyrir hrun, þar sem erlendir aðilar fjár­festu á Íslandi vegna þess að vextir hér­lendis voru mun hærri en í flestum öðrum ríkjum. Fjár­magnið var kvikt og því erf­ið­ara að eiga við fjár­magns­flæðið en við lang­tíma­fjár­fest­ingar.


Bjarni segir að vaxta­muna­við­skiptin sé einn lær­dóma hruns­ins og stjórn­völd kanni nú hvaða mögu­leikar séu í stöð­unni til að halda stýri­vöxtum lágum. „Það þarf sam­komu­lag milli stjórn­valda og leið­toga vinnu­mark­að­ar­ins um mik­il­vægi þess að halda vaxta­stig­inu lágu,“ segi Bjarni við Bloomberg. Hann bendir á að Ísland sé betur und­ir­búið í dag en fyrir hrun fyrir slík vaxta­muna­við­skipti, og það ójafn­vægi sem slík við­skipti skapa á gjald­eyr­is­flæði, vegna þess að gjald­eyr­is­forði Seðla­bank­ans hafi stækkað veru­lega. Stærð hans í síð­asta mán­uði var um 620 millj­arðar króna.


„Á þess­ari stundu eru vaxta­muna­við­skipti ekki sér­stakt áhyggju­efni. En við verðum að læra af reynsl­unni,“ segir Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár