Krónan styrkist - Evran á tæplega 143 krónur

Gengi krón­unnar gagn­vart evru hefur styrkst um sex pró­sent á þremur mán­uðum. Evran kostði tæp­lega 150 krónur í lok júní mán­aðar, en er í dag komin í tæp­lega 143 krónur. Sér­stak­lega hefur krónan styrkst á und­an­förnum mán­uði, en á þremur vikum hefur virði evru farið úr tæp­lega 148 krónum í tæp­lega 143 krónur.

Þá hefur mikil breyt­ing orðið á gengi krón­unnar gagn­vart norskri krónu að und­an­förnu, en norska krónan hefur veikst mun meira en evran frá því að olíu­verð féll hratt með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum fyrir norskan efna­hag. Norska krónan kostar nú rúm­lega 15 íslenskar krónur en fyrir um einu ári kost­aði hún tæp­lega tutt­ugu krónur, sam­kvæmt upp­lýs­ingum um gjald­eyr­is­mark­að­inn á vef Seðla­banka Íslands. Margir Íslend­ingar hafa mikla hags­muni af gengi norsku krón­unnar, en meira en tíu þús­und Íslend­ingar búa nú í land­inu, og tölu­verður fjöldi fólks vinnur í úthöldum í land­inu, ekki síst á sviði iðn- og tækni­greina, og í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Erfitt að spá fyrir um gengi krón­unnar gagn­vart erlendum myntum, eins og miklar sögu­legar sveiflur hennar í gegnum tíð­ina bera með sér. Nokkur óvissa er um hvernig gengið mun þró­ast, sam­hliða fram­kvæmd­inni um losun hafta, en mark­mið hennar er að losa um spennu sem hefur gert það að verkum að stórn­völd hafa talið sig þurfa að beita fjár­magns­höftum, til að vernda efna­hags­legan stöð­ug­leika í land­inu.

Samkvæmt kynn­ingu stjórn­valda á áætl­un­inni um losun hafta, er horft til þess að gengi krón­unnar eigi að mót­ast af gangi mála í raun­hag­kerf­inu, þegar fram í sækir, en eins og mál standa nú hafa fjár­magns­höftin beint áhrif á gjald­eyr­is­mark­að­inn og ómögu­legt að átta sig á því hvernig gengi krón­unnar væri án þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár