Seðlabankinn setur nýtt met í gjaldeyriskaupum

Gjald­eyr­is­kaup Seðla­banka Íslands í júlí voru þau mestu í einum mán­uði frá upp­hafi. Alls keypti bank­inn 265 millj­ónir evra á milli­banka­mark­aði í mán­uð­inum. Hlut­deild hans á milli­banka­mark­aði var ríf­lega 61 pró­sent. Til sam­an­burðar keypti Seðla­bank­inn 201 milljón evra á milli­banka­mark­aði í júní. Það var þá langstærstu gjald­eyr­is­kaup bank­ans á einum mán­uðum.

Frá þessu greinir grein­ing­ar­deild Íslands­banka í dag. Miðað við skráð gengi krónu gagn­vart evru í dag eru 265 millj­ónir evra jafn­virði um 39 millj­arða króna.

Í umfjöllun grein­ingar Íslands­banka kemur fram að það sem af er ári hafi Seðla­bank­inn keypt 816 millj­ónir evra á milli­banka­mark­aði og bætt við gjald­eyr­is­forða sinn. Það er 140 pró­sent aukn­ing frá síð­asta ári þegar bank­inn keypti 340 millj­ónir evra á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins. Ríflega helm­ingur kaupanna í ár er gerður í júní og júlí. Það end­ur­speglar mikið hreint gjald­eyr­is­flæði til lands­ins í þessum mán­uðum. Mikill vöxtur ferða­þjón­ustu skýrir stóran hluta inn­flæð­is­ins.

Fleira kemur þó til, segir grein­ing Íslands­banka. „Vís­bend­ingar eru um að hreint inn­flæði vegna beinnar fjár­fest­ingar gæti verið að vaxa, enda skriður að kom­ast á ýmis fjár­fest­ing­ar­verk­efni í iðn­aði og dæmi eru einnig um sölu inn­lendra fyr­ir­tækja fyrir gjald­eyri. Þar að auki bendir ýmis­legt til inn­flæðis tengt verð­bréfa­fjár­fest­ingum það sem af er sumri.“ Útlit er fyrir áfram­hald­andi inn­flæði gjald­eyris á næst­unni.

Forðinn stækkar en greiddu niður erlendar skuldir


Greining Íslands­banka bendir á að þrátt fyrir gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans í júlí er gjald­eyr­is­forð­inn í heild að öllum lík­indum minni í dag en hann var í lok júní. Þá nam jafn­virði hans um 605 millj­örðum króna. Ástæðan er úttekt rík­is­sjóðs af gjald­eyr­is­reikn­ingi sínum í Seðla­bank­anum til að standa straum af kaupum á eigin skulda­bréfum í Banda­ríkja­doll­urum. „Þau bréf voru raunar gefin út til þess að afla gjald­eyris fyrir forða Seðla­bank­ans, og má því segja að verið sé að skila að hluta til skuld­setta hluta gjald­eyr­is­forð­ans með end­ur­kaup­unum á sama tíma og hreinn gjald­eyr­is­forði stækkar,“ segir í grein­ingu bank­ans.

Fjallað var um nið­ur­greiðslu skuld­anna í Kjarn­anum í gær. Ríks­sjóður keypti í fyrra­dag eigin skulda­bréf, útgefin árið 2011 í doll­urum, að and­virði 400 millj­ónir króna að nafn­virði. Með kaup­unum grynnkar á erlendum skuldum rík­is­sjóðs, en sam­kvæmt svörum Seðla­bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans þá not­aði rík­is­sjóður inn­stæður sínar í erlendum gjald­eyri hjá Seðla­bank­anum til þess að greiða fyrir end­ur­kaupin. Gjald­eyr­is­forð­inn lækkar því sem nemur end­ur­kaup­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár