Ríkissjóður grynnkar á erlendum skuldum - Vaxtakostnaður lækkar

Rík­is­sjóður keypti í gær eigin skulda­bréf að nafn­virði 400 millj­ónir Banda­ríkja­doll­ara, jafn­virði um 54 millj­arða króna. Með kaup­unum grynnkar á erlendum skuldum rík­is­sjóðs, en sam­kvæmt svörum Seðla­bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans þá not­aði rík­is­sjóður inn­stæður sínar í erlendum gjald­eyri hjá Seðla­bank­anum til þess að greiða fyrir end­ur­kaupin. Gjald­eyr­is­forð­inn lækkar því sem nemur end­ur­kaup­unum.

Áætla má að vaxta­kostn­aður sem sparist við end­ur­kaupin nemi um einu pró­senti af heild­ar­fjár­hæð, eða um hálfum millj­arði króna.


Skulda­bréfa­flokk­ur­inn, sem alls er einn millj­arður doll­ara að stærð, var gefin út árið 2011 og er á gjald­daga í júní 2016. Áður hafði rík­is­sjóður keypt til baka um 97 millj­ónir doll­ara af bréf­unum á opnum mark­aði en í gær var um að ræða útboð. Því er um helm­ingur flokks­ins enn útistand­andi, um 503 millj­ónir doll­ara, og í eigu fjár­festa.


„End­ur­kaupin eru hluti af lausa­fjár- og skulda­stýr­ingu. Þar sem skuldin var orðin að skamm­tíma­skuld, gjald­dagi innan árs og rík­is­sjóður á nægar gjald­eyr­is­inn­stæður hjá Seðla­banka Íslands á móti skuld­inni var ákveðið að nýta forða til að draga úr stærð gjald­dag­ans í júní 2016,“ segir í svari Seðla­bank­ans við spurn­ingum Kjarnans um kostnað við end­ur­kaupin. Skulda­bréfin voru end­ur­keypt á geng­inu 103,75 og kostn­aður við end­ur­kaupin þannig um 56 millj­arðar króna.


Í svari frá Seðla­bank­anum kemur fram að end­ur­kaupin dragi úr end­ur­fjár­mögn­un­ar­á­hættu, en skulda­bréfa­flokk­ur­inn er sem fyrr greinir á gjald­daga í júní á næsta ári. Þá sé nokkuð svig­rúm til vaxta­sparn­aðar fyrir rík­is­sjóð með kaup­unum, en skulda­bréfa­flokk­ur­inn bar 4,875 pró­sent vexti og eru skamm­tíma­vextir nokkuð lægri. Bent er á að inn­stæðu­vextir í Banda­ríkja­doll­urum eru í dag um 0,1 pró­sent. Út frá því má áætla að vaxta­kostn­aður lækki um 500 millj­ónir króna.

Skuldastaða ríkissjóðs lækkar

Eftir end­ur­kaupin er skulda­staða rík­is­sjóðs 400 millj­ónum doll­ara lægri, eða um 54 millj­örðum króna lægri. Skuldir lækka úr 1.474 millj­örðum króna í um 1.420 millj­arða króna. Fram kemur í svari Seðla­bank­ans að vergar skuldir rík­is­sjóðs í hlut­falli af vergri lands­fram­leiðslu lækki við þetta um 2,5 pró­sent og fara í 64,5 pró­sent. End­ur­kaupin eru sögð hluti af stærri stefnu um skulda­stýr­ingu ásamt ráð­stöfun forða og feli í sér hag­ræð­ingu og nokk­urt svig­rúm til sparn­aðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár