Karolina Fund: Örvhenta örverpið og ljóðskáldið

Ásgeir H. Ing­ólfs­son er örv­hent örverpi og ljóð­skáld. Hann er að safna á Karolina Fund fyrir Fram­tíð­inni, sem er prósa­ljóða­bók en ekki eilífðin óorðna. 2010 sendi hann frá sér ljóða­bók­ina Grimm ævin­týri hjá Nýhil útgáfu, og hefur dundað sér við blaða­mennsku, bók­sölu og kennslu á meðan ljóðin komu til hans úr fram­tíð­inni.

Hvaðan kom hugmyndin að ljóðabókinni?

Hug­myndin kom raunar þegar ég var búinn að skrifa megnið af bók­inni. Ég var vansvefta eftir nokkra skrítna daga og fannst ég þurfa að skrifa mig í gegnum ákveðna hluti – en svo hélt ég bara áfram, langt fram á morgun – og þá var ákveð­inn grunnur kom­inn að bók­inni, grunnur sem ég vann að áfram næstu vik­urnar.


Það sem kom til mín var í raun­inni ákveðin rödd, ákveð­inn tónn; hrekkj­ótt­ari, kerskn­ari, miskun­ar­laus­ari og jafn­vel and­styggi­legri en nokkuð sem ég hafði skrifað áður – en þegar ég fékk svo einn kunn­ingja minn til að lesa hand­ritið yfir þá minnt­ist hann sér­stak­lega á að hann væri hrif­inn af því hvað væri mikil sam­kennd í þessum ljóðum. Sem ég held að gæti verið rétt hjá honum – þessi rödd er bæði grimm og mis­kun­söm – og lík­lega er það lyk­ill­inn – ljóð þurfa að vera bæði til að geta tek­ist á við heim­inn fyrir alvöru.



Hvar sóttirðu helst innblástur?


Stundum er inn­blást­ur­inn per­sónu­legur – og það eru tvö ljóð í bók­inni sem kveiktu eld­inn, ég ætla að leyfa vænt­an­legum les­endum að giska á hvaða ljóð það voru. En þegar ég var búinn að skrifa þau skrif­aði ég tit­illjóðið, Fram­tíð­ina, og þá var ég búinn að finna tón­inn.


Eftir það sótti ég í raun inn­blástur í fram­tíð­ar­skáld­skap æsk­unnar – hvort sem það voru bíó­myndir eða bækur eða heimsenda­spár – það sem ég varð fljót­lega heill­aður af var að horfa alltaf fram á við – þótt ég væri staddur í for­tíð­inni.


Við erum nefni­lega ótrú­lega vön að skilja tíð­irnar dálítið eins og áttir; ef við horfum aft­urá­bak erum við að horfa til for­tíðar, nútíðin er þar sem við stöndum núna og fram­tíðin er veg­ur­inn framundan. En ég vildi reyna að prófa að horfa alltaf fram fyrir mig – líka þegar ég er staddur í fjar­lægri for­tíð.


Bókin skipt­ist í þrjá hluta, for­tíð, nútíð og fram­tíð – og í fyrsta hlut­anum eru Jóhanna af Örk, Henry Ford, Wright-bræður og fleiri að velta fyrir sér fram­tíð­inni – sem er stundum okkar nútíð eða jafn­vel okkar for­tíð.


Teikn­ingin sem ég hef notað með söfn­un­inni er ágætis dæmi um fram­tíð­ina í for­tíð­inni – þetta er japönsk mynd af lestum fram­tíð­ar­innar – sem var teiknuð árið sem pabbi fædd­ist, þegar mín ver­öld var bara vís­inda­skáld­skapur.


Framtíð minnar eigin for­tíðar var svo auð­vitað Marty McFly á svif­bretti þann 21. októ­ber 2015. Sú fram­tíð er að bresta á – þannig að það er ekki seinna vænna en að koma þess­ari bók út.



Hvaða umfjöllunarefni er að finna í ljóðabókinni?


Ég er búinn að minn­ast á nokkur þeirra nú þegar – en ég er líka að fjalla um gull­gerð­ar­list og dróna, Sarajevo og ung­lings­árin, ambögur og amöbur, Al-hambra og kakó, Guð og Evr­ópu­sam­bandið, kýp­verska rak­ara og krím­versk ást­ar­æv­in­týri, Angelinu Jolie og Brad Pitt, bús­á­halda­bylt­ing­una og Chernobyl – en samt er ég lík­lega aðal­lega að fjalla um kap­ít­al­isma.


Bókin er auð­vitað fyrst og fremst um tím­ann – en þegar kap­ít­al­isma er komið á þá er tím­inn fyrsta virkið sem hann her­tekur. Eftir það mælum við líf okkar í vinnu­stundum og fram­tíðin verður föstu­dagur. Eða mánu­dagur, ef þú ert að skrifa dystópíu.

Eitthvað að lokum?

Að lokum er rétt að geta þess að ég skrif­aði ekki alla bók­ina sjálfur – kanadíska ljóð­skáldið Keanu Reeves, íslenska ljóð­skáldið Matthías Jochumson og armenska ljóð­skáldið Obe Vadur eiga allir gesta­ljóð í bók­inni. Mig langar að þakka þeim sér­stak­lega fyrir – sem og auð­vitað yfir­lesurum, próf­arka­lesurum, kápu­hönn­uðum, upp­setj­urum og vídjó­gerð­ar­mönnum – að ógleymdum þeim sem styrktu bók­ina á Karolinu Fund. Þú hefur fram­tíð­ina fyrir þér til þess að verða hluti af þessum þakk­arlista –til 5. októ­ber næst­kom­andi.


Verk­efnið má styrkja hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár