Karolina Fund: Sveifludjasshljómsveitin Secret Swing Society

Sveiflu­djass­hljóm­sveitin Secret Swing Society hefur verið að eign­ast aðdá­endur hér á landi í sumar, en lag sem þeir gerðu með Björg­vini Hall­dórs­syni og hefur heyrst mikið á Rás 2 und­an­farið, verður á vænt­an­legri plötu þeirra sem er í fjár­mögnun á Karolina Fund. Kjarninn ræddi við Andra Ólafsson um verk­efnið.

1. Hvenær og hvernig varð ‘Secret Swing Society’ til?


„Hljóm­sveit­ina stofn­uðum við, fimm gamlar sálir, í Amster­dam árið 2010. Kristján Tryggvi Mart­ins­son píanó­leik­ari, Grímur Helgason klar­inett­leik­ari og und­ir­rit­aður [bassa­leik­ari] vorum allir við tón­list­ar­nám í Conservatorium van Amster­dam, sem og Guillaume Heurtebize, gít­ar­leik­ari frá Frakk­landi og Dom­inykas Vysni­auskas, trompet­leik­ari frá Litháen. Við höfðum verið að spila saman í hinum og þessum verk­efnum þegar við hóuðum í kvin­tett­hitt­ing og hóp­ur­inn small svona líka vel saman.“

2. Hvernig tónlist ómar frá Secret Swing Society og hvaðan sækiði innblásturinn?


„Það er gleði­tón­list sem yfir­leitt er nær­tæk­ast að kenna við sveiflu­djass – við erum í grunn­inn að gera popptón­list milli­stríðs- og stríðs­ár­anna skil án mik­illa stæla eða nútímakrydds. Þetta eru sönglög í fjöl­radda útsetn­ingum; gamlir stand­ardar, söng­leikja­lög og smellir sem voru samdir og/eða gerðir frægir af fólki á borð við Mills bræður, Fats Waller, Nat King Cole, Gerswhin bræður o.fl, en líka lög eftir okkur sjálfa. Til að byrja með sungum við ekki, og við erum þess vegna með heil­mik­inn katalóg af instru­mental djassi útsettum og æfðum, þar sem tón­list Django Rein­hardt og Duke Ell­ington er fyr­ir­ferð­ar­mikil.“

[soundcloud id="https://soundcloud.com/secret-swing-society/glans-feat-bjorgvin-halldorsson"]

3. Hvað stendur til núna hjá Secret Swing Society?


„Það sem ber nátt­úru­lega hæst er platan okkar sem við tókum upp í febr­úar og erum að fjár­magna hjá Karolina Fund. Við erum að jafn­aði í þremur mis­mun­andi löndum, þannig að tæki­færi okkar til tón­leika­halds eru fá miðað við margra hljóm­sveita. Við höfum þó náð að spila að minnsta kosti einu sinni á ári tón­leika­röð allir fimm saman síðan við lukum námi, og reynum að halda því áfram. Við stefnum ann­ars á meira sam­starf við Bo og erum að kasta hug­myndum á milli. Það tekur lík­lega á sig ein­hverja mynd í vetur.“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár