Karolina fund: Vegabréf, vísakort og lyklar að hjólinu - bók um mótorhjólaferðalag

Högni Páll Harð­ar­son og Unnur Sveins­dóttir skelltu sér í 5 mán­aða ferða­lag sum­arið 2014, þar sem þau heim­sóttu 20 lönd á mót­or­hjóli. Fylgj­enda­hópur þeirra stækk­aði ört eftir því sem leið á ferða­lagið og kom að því að þau ákváðu að gefa út ferða­sög­una á bók.

Við hittum Unni og Högna og tókum þau tali.


Unnur er mynd­list­ar­mennt­aður kenn­ari, áhuga­leik­hús­mann­eskja og hönn­uður sem er að upp­götva feg­urð mót­or­hjóla­ferða­mennsk­unnar á miðjum aldri. Högni er við­skipta­vél­fræð­ingur með þrá­hyggju­kennda ástríðu fyrir mót­or­hjóla­ferða­lögum og öllu sem því teng­ist. Þau eru Aust­firð­ingar búsett á Fáskrúðs­firði í Fjarða­byggð í rétt um 80 km fjar­lægð frá einu ferju­höfn lands­ins sem tengir það við meg­in­land Evrópu.

[caption id="attachment_38944" align="alignnone" width="800"] Heit súpa í hádeg­inu í kaldri Síberíu.[/caption]


Hvernig kviknaði hugmyndin að þessu verkefni?

Mið-Asíu leið­ang­ur­inn sem við fórum í árið 2014 var búinn að eiga sér tölu­verðan gerj­un­ar­tíma og var búinn að taka á sig ýmsar myndir í aðdrag­and­anum. Við erum búin að fara all nokkrar ferðir erlendis á mót­or­hjólum og það má kannski segja að 6 vikna ferða­lag um Balkanskag­ann og fyrrum lýð­veldi Júgóslavíu árið 2010 hafi fyrir alvöru kveikt áhug­ann á því að takast á við meira fram­andi slóðir en áður. Til að tryggja að vinir og vanda­menn vissu af okkur frá degi til dags þá héldum við úti Facebook síðu, hún fór síðan að vekja athygli víðar en innan fjöl­skyld­unnar og þegar við vorum komin nokkrar vikur inn í ferða­lagið þá áttum við orðið 6-700 ferða­fé­laga sem fylgd­ust með því sem við vorum að fást við. Þaðan kemur síðan hvatn­ingin um að koma ævin­týr­inu á prent.

[caption id="attachment_38942" align="alignnone" width="800"] Eftirlit á þjóð­vegi í Úsbekistan.[/caption]

Til hvaða landa ferðuðust þið?

Leiðin lá í gegnum 20 lönd og sum þeirra oftar en einu sinni. Fyrst komu Færeyjar, þá Danmörk, Þýska­land, Pólland, Hvíta-Rússland og og síðan Rússland frá vestri allt austur til Ulan-ude í Síberíu áður en komið var til Mongólíu. Í Mongolíu var snúið til vest­urs og í suður og farið um Stan-löndin svoköll­uðu, Kasakstan, Kyrgyzstan, Tadsík­is­tan, Úsbekistan. Þá norður fyrir Kaspíhaf og um Kákasus löndin Georgíu og Armeníu, síðan um Tyrkland, Grikk­land, Búlgaríu, Serbíu, Ung­verja­land og áfram norður úr til Dan­merkur í veg fyrir ferj­una á ný.

Hvernig var upplifunin af þessu ferðalagi?

Ævintýri er lík­lega það orð sem best lýsir ferða­lag­inu. Dagarnir 147 sem það tók voru jafn mis­jafnir og þeir voru margir og alltaf eitt­hvað nýtt að fást við. Löndin voru okkur flest mjög fram­andi og sann­ar­lega mikil áskorun að ferð­ast þar sem sam­eig­in­leg tungu­mála­kunn­átta er í algeru lág­marki.Vega­kerfið var líka víða tölu­vert krefj­andi en það er þó meðal ann­ars það sem rekur bif­hjóla­fólk til landa eins og Mongólíu, Tadsík­is­tan og Kyrgyzstan en þangað fara menn til að reyna sig og hjólin sín við erf­iðar aðstæður. Öfugt við það sem flestir halda og draga þá ályktun af frétta­flutn­ingi fjöl­miðla þá er mun meira af góðu fólki í heim­inum heldur en vondu og það er kannski það sem uppúr stendur eftir ferð­ina. Allt góða fólkið sem við hittum.


Þegar kom að því að gera bók um ferð­ina og gefa hana út þá átt­uðum við okkur fljót­lega á því hversu kostn­að­ar­söm bóka­út­gáfa er. Eins ef maður vill vanda til verka eykst kostn­að­ur­inn í réttu hlut­falli. Þessa fjár­muni þarf að greiða áður en nokkur bók selst og það þýðir í flestum til­fellum dýr banka­lán. Karolina Fund er ótrú­lega snið­ugur vett­vangur fyrir fólk eins og okkur og aðra sem eru að reyna að koma sér á fram­færi því hér opn­ast mögu­leik­inn á að selja vör­una sína í for­sölu og fjár­magna þannig að ein­hverju leyti þau útgjöld sem fylgja útgáfu.


Að auki höfum við á þessum tíma sem söfn­unin hefur staðið átt í lif­andi sam­skiptum við stóran hóp verð­andi les­enda sem er frá­bært því fyrir vikið verða þeir ekki bara tölur á sölu­lista heldur fólk sem við þekkjum. Það gerir vör­una miklu per­sónu­legri fyrir kaup­and­ann og þannig meira virði.


Aug­lýs­inga­gildið sem felst í svona söfnun er líka ómet­an­legt því for­síðan á bók­inni okkar hefur verði linnu­lítið á síðum fés­bók­ar­innar und­an­farnar vikur og vinir og vel­unn­arar hafa deilt henni um allar trissur.


Verk­efnið má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár