Karolina Fund: Kommentakerfið spil um oft ósmekklega fyndni

Óli Gneisti Sól­eyj­ar­son er þjóð­fræð­ingur og bóka­safns- og upp­lýs­inga­fræð­ingur. Hann hefur reynt ýmis­legt um ævina en seg­ist fyrir utan fjöl­skyld­una vera hvað einna stolt­astur af því að hafa stofnað og rekið Raf­bóka­vef­inn í sjálf­boða­vinnu. Óli Gneisti er að hóp­fjár­magna nýtt spil á Karolina Fund sem heitir "Kommenta­kerfið". Kjarninn tók Óla Gneista tali og for­vitn­að­ist um verk­efnið hans.

https://vimeo.com/136726501

Mjög spenntur fyrir hópfjármögnun


Hvaðan kom hug­myndin að spil­inu "Kommenta­kerfið"?

"Ég hef áður fengið hug­myndir að spilum en aldrei fram­kvæmt. Það sem er nýtt núna er til­koma Karolina Fund. Ég er mjög spenntur fyrir svona hóp­fjár­mögnun og hef oft stutt slíkt. Ég gæti sjálfur fjár­magnað litla prentun af spil­inu en með for­sölu og styrkjum get ég alla­vega tvö­faldað magnið sem ég prenta. Það er rétt að benda á að maður verður ekki áskrif­andi af pen­ingum með því að fara í hóp­fjár­mögnun. Maður verður að vinna grunn­vinn­una vel.

Ég er einn skráður fyrir Kommenta­kerf­inu en ég er með ótal hjálp­ar­kokka sem hafa aðstoðað mig við hitt og þetta. Allt frá fólk­inu sem gaukar að mér athuga­semdum og fyr­ir­sögnum yfir í þá sem svara heimsku­legum spurn­ingum mínum um bók­hald og rekstur.

Hug­myndin um Kommenta­kerfið kom ekki af himnum. Ég hafði spilað spilið Cards Against Humanity og þótt það skemmti­legt en um leið fannst mér vanta íslenska útgáfu. Ég ákvað að prufa sjálfur að þýða. Það gekk ekk­ert. Húmorinn í Cards Against Humanity felst í því að búa til ósmekk­lega fyndnar setn­ingar með eyðu­fyll­ingum og íslenskan hentar bara ekk­ert vel í það. Ég pældi aðeins meira í þessu og það var eitt­hvað við hug­mynd­ina um ósmekk­legan húmor sem leiddi huga minn að athuga­semda­kerfum vef­miðl­ana. Þá datt mér í hug að í stað eyðu­fyll­inga þá gæti maður verið með spil með fyr­ir­sögnum og athuga­semdum."

[caption id="attachment_38307" align="alignnone" width="1000"] Ágúst Þor­valds­son í Nexus. Hægt að skoða Kommenta­kerfið þar.[/caption]

Margar athugasemdirnar raunverulegar


Hvernig virkar spilið?

"Spilið virkar í stuttu máli þannig að hver spil­ari er með 10 "komment" á hendi. Í hverri umferð er einn rit­stjóri sem leggur út "fyr­ir­sögn". Hinir spil­ar­arnir leggja síðan "komment" í púkkið. Rit­stjór­inn velur kommentið sem honum þótti skemmti­leg­ast í sam­heng­inu og spil­ar­inn sem lagði það út fær stig."

Hvaðan kom efni­við­ur­inn í spilið?

"Margar af athuga­semd­unum eru raun­veru­legar. Reyndar er það aug­ljós­lega þannig að sumar voru skrif­aðar af fólki sem var aug­ljós­lega að grín­ast en án sam­heng­is­ins líta þær út fyrir að vera skrif­aðar af fólki sem er úr öllum tengslum við raun­veru­leik­ann. Önnur komment eru álíka rugluð en skrifuð af fólk sem er full­komin alvara. Það er líka stór­kost­legur sparn­aður að þurfa ekki að próf­arka­lesa athuga­semd­irnar því staf­setn­ing­ar­villur og óhefð­bundin nálgun á greina­merkja­notkun gerir þetta bara raun­veru­legra.

Í vali mínu á athuga­semdum þá reyni ég að ná þeim sem eru fyndin en ekki of and­styggi­leg. Spilið snýst nátt­úru­lega um fyndni. Oft ósmekk­lega."

[caption id="attachment_38306" align="alignnone" width="1000"] Andri Þór Sturlu­son í Spila­vinir. Kommenta­kerfið er til sýnis í versl­un­inni.[/caption]

Gæti orðið gagnleg samræða um umræður á netinu


Hvað eru mörg "komment" að finna í spil­inu?

"Þegar ég ákvað að fara í hóp­fjár­mögnun þá ákvað ég að finna leiðir til að verð­launa þá sem taka þátt í söfn­un­inni. Í grunn­spil­inu eru 400 spjöld, 320 komment og 80 fyr­ir­sagnir en ef ég næ við­bót­ar­tak­mörkum mínum þá er hægt að fjölga þeim. Þannig þýðir hærri upp­hæð ekki bara að pen­ing­arnir komi til mín heldur fá kaup­end­urnir eitt­hvað auka­lega."

Fyrir hvaða ald­urs­hóp er "Kommenta­kerfið" hugsað?

"Ég hélt að ég þyrfti að setja hátt ald­urs­tak­mark á spilið en síðan spil­aði ég það með litlu frænkum mínum og end­aði með að setja við­mið um að það sé fyrir þrettán ára og eldri. Yngri krakkar geta auð­vitað spilað það en þá mæli ég með að full­orðnir fylgist með. Þá held ég að þetta geti bara verið gagn­leg sam­ræða um umræður á net­inu. Ég komst líka fljótt að því að spilið virð­ist henta öllum hópum sem vilja hlæja saman."

Hér er hægt að skoða verk­efnið nánar og styrkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár