Hræðsla við að eitthvað verra sé framundan

Þró­un­inni á verð­bréfa­mörk­uðum heims­ins í dag verður ekki lýst með öðru en hruni. Rauðar tölur lækk­ana hafa sést nán­ast hvert sem litið er, og það sem verra er; hræðslan við það sem er framundan virð­ist við­var­andi, að því er fram kemur í umfjöllun Wall Street Journal og breska rík­is­út­varps­ins BBC.

[caption id="attachment_37315" align="alignnone" width="715"] Eins og sést á þessu grafi, sem fengið er frá Bloomberg, hefur mikið gengið á á kín­verska verð­bréfa­mark­aðnum á árinu. Fyrst mik­ill upp­gangur, og svo algjört hrun. Mynd: Bloomberg.[/caption]

Allra augu eru á Kína, þar sem mark­aðir lok­uðu eftir 8,5 pró­sent dags­lækkun hluta­bréfa, sam­kvæmt SCI (Shanghai Composite Index). Strax við opnun mark­aða var ljóst í hvað stefndi, eins og Kjarninn greindi frá þá þegar. Sjö pró­sent verð­fall og tón­inn var gef­inn fyrir aðra mark­aði. Öll ávöxtun árs­ins á kín­verska mark­aðnum er nú farin, og gott betur.

„Löngu áður en mark­aðir opn­uðu voru miðl­arar mættir til vinnu, og aðstæður ein­kennd­ust af spennu. Það var ljóst að þetta yrði ekki venju­legur mánu­dagur í ágúst,“ segir Michelle Fleury, blaða­maður BBC í New York. Við­mæl­endur hennar segja að staðan á mörk­uðum sé á mörkum þess að ein­kenn­ast af glund­roða (panic), en of snemmt sé þó að segja til um það. Óvissan sé það sem allir eru sam­mála um að sé yfir­þyrm­andi.

Rekja orsökina til Kína


Fjöl­menn­asta ríki heims­ins, Kína, með um tutt­ugu pró­sent af íbúum jarðar (1,4 millj­arða af rúm­lega sjö millj­örðum), skelfur nú og ótt­ast fjár­festar að staðan sé verri þar í landi heldur en hag­tölur sem fyrir liggja gefa til kynna. Eins og Kjarninn greindi frá á dög­unum, þá hefur Kína skapað sér mik­il­vægan sess fyrir heims­bú­skap­inn, með for­dæma­lausu tutt­ugu ára hag­vaxt­ar­skeiði. Margar þjóðir heims­ins eru orðnar efna­hags­lega háðar eða nátengdar gangi mála í Kína og hröð nið­ur­sveifla þar getur því haft mikil áhrif, eins og nú er komið á dag­inn. Ákvörðun stjórn­valda í Kína um veikja gjald­mið­il­inn, júan, um tvö pró­sent, er afdrifa­rík svo ekki sé fastar að orði kveðið. Fjár­festar virð­ast margir hverjir, sam­kvæmt umfjöll­unum fag­fjöl­miðla hér í Banda­ríkj­unum, líta á þetta sem merki um að stjórn­völd séu að missa tökin á atburða­rásinni, fremur en að um rök­rétta hag­stjórn­ar­á­kvörðun sé að ræða.

Þegar stjórnvöld í Kína eru að missa tökin, hver stjórnar þá?


Í Kína er ríkið alls staðar við borðið, og hefur ekki hikað við að beita þeim tækjum sem það hefur til þess að reyna að hafa áhrif á gang mála á mörk­uðum. Þetta er það sem skilur Kína öðru fremur frá öðum þró­uðum mörk­uðum, sem eiga allt sitt undir frjálsri verð­myndum. Kína er með fjár­magns­höft, ríkið á stærstu fjár­mála­fyr­ir­tækin sem lána pen­inga í land­inu, og einnig langstærstu sjóð­ina sem fjár­festa á mark­aði, sé horft til mark­aðs­hlut­deildar. Ákvarðnir stjórn­valda hafa þannig afar mikil áhrif á alla keðj­una í hag­kerf­inu. Eins og bent var á í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans í síð­ustu viku, þá hafa áhyggju­raddir um gang mála í Kína orðið æ hávær­ari, ekki síst hér í Banda­ríkj­unum, á þessu ári. Robert Z. Aliber, hag­fræði­pró­fessor og rit­höf­undur, er einn þeirra sem full­yrðir að fast­eigna­bólan í Kína, sem sé sú lang­sam­lega stærsta í sög­unni, sé í reynd sprungin. Loftinu sé haldið í henni með stjórn­valds­á­kvörð­unum en til lengdar gangi það ekki, en á síð­ustu mán­uðum hefur fast­eigna­verðið lækkað um 3,9 pró­sent. Und­ir­liggj­andi er síðan spurn­ingin um hvernig þróun mála verður, ef stjórn­völd í Kína missa tökin? Til þessa að hafa þræð­irnir verið í höndum stjórn­ar­herra ris­ans í Asíu, en hvað ger­ist þegar þræð­irnir slitna einn af öðrum er hulið óvissu.

Nú seinni­part­inn bár­ust af því fréttir, að stjórn­völd í Kína hygð­ust bregð­ast við verð­lækkun á mörk­uðum með kunn­ug­legum hætti; dæla pen­ingum út á mark­aði í gegnum banka­kerfið, og von­ast með því til þess að örva eft­ir­spurn og til­trú fjár­festa á kín­verska hag­kerf­inu. Wall Street Journal segir að ótt­inn við að eitt­hvað verra sé handan við hornið, virð­ist vera að reka stjórn­völd í þær stell­ingar að grípa til örvandi aðgerða.


China to flood economy with cash, as global markets lose faith http://t.co/cD3YwpkbIz pic.twitter.com/408FEoC0Hc


— Wall Street Journal (@WSJ) August 24, 2015


Minnkandi eftirspurn


Einn af þeim sem hefur áhyggjur af minnk­andi eft­ir­spurn og kaup­getu almenn­ings í Kína, er stærsti bíla­fram­leið­andi í heimi, Toyota. Í upp­gjörstil­kynn­ingu félags­ins vegna starf­sem­innar á öðrum árs­fjórð­ungi, segir að horf­urnar „séu ekki góðar“ og að mark­að­ur­inn sé orð­inn „mjög erf­iður“. Stundum er sagt að bíla­sala sé góður mæli­kvarði á „púls­inn“ í hag­kerfum, þó ekk­ert sé algilt í þeim efnum. En í ljósi umfangs starf­sem­innar hjá Toyota þá verður að telj­ast lík­lega að þetta sé raun­sætt mat á það sem er að ger­ast í Kína, þessa dag­ana. Virði félags­ins hefur líka lækkað mikið í dag, um 6,75 pró­sent, sem er í takt við mörg önnur stór­fyr­ir­tæki sem starfa þvert á landa­mæri.

https://www.youtube.com/watch?t=47&v=Zpzhh0y1RUo

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár