Loftið lekur úr mestu fasteignabólu sögunnar - Óttinn við fall Kína

Und­an­farin miss­eri hafa merkin um að kín­verska hag­kerfið sé í hæga­gangi orðið aug­ljós­ari og ótt­inn við að mesta og hrað­asta hag­vaxt­ar­skeið sög­unnar sé lokið, orðið næstum áþreif­an­legur. Einn þeirra sem hefur lagt sig einna mest fram um að vara við afleið­ing­unum af því „þegar“ kín­verska hag­kerfið fer að gefa eftir er Robert Z. Aliber, hag­fræði­pró­fessor og rit­höf­undur. Hann er Íslend­ingum af góðu kunnur. Hann kom til Íslands í tvígang fyrir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, og hélt meðal ann­ars erindi í maí 2008 þar sem hann sagði að laumu­á­hlaup á íslenska banka­kerfið væri hafið og að stjórn­völd gætu lítið annað gert en stíga inn í atburða­rás­ina. Banka­kerfið væri að hruni komið. Fullur salur af fólki, aðal­lega stjórn­mála­mönnum, háskóla­fólki og stjórn­endum í banka­kerf­inu, hlust­aði á orð hans. Eftir fund­inn var orðum hans kröft­ug­lega mót­mælt, ekki síst gekk Halldór J. Krist­jáns­son, þáver­andi annar tveggja banka­stjóra Lands­bank­ans, langt í gagn­rýni sinni og lagði áherslu á að Aliber væri „fyrr­ver­andi“ pró­fessor. Gagnrýni hans ætti ekki við rök að styðj­ast.

Sagan stað­festir að Aliber var að greina stöð­una rétt, og hall­æris­legar árásir stjórn­enda á Íslandi, sem litla sem enga reynslu af alþjóða­mörk­uðum höfðu, sitja nú eftir sem minn­is­varði um múg­heimsk­una sem greip íslenskt athafna­líf fram að falli bank­anna dag­ana 7. til 9. októ­ber 2008.


You can't always get what yuan... Currency wars & the latest Chinese devaluation ROBERT Z. ALIBER http://t.co/LNR9xjndbp via @POLITICOEurope


— Tunku Varad­ara­jan (@tunkuv) August 13, 2015

Móðir allra fasteignabóla

Aliber þykir meðal virt­ustu hag­fræð­inga heims­ins þegar kemur að grein­ingu á fjár­málakreppum og fast­eigna­bólum sér­stak­lega. Hann hefur und­an­farin þrjú ár varað sér­stak­lega við merkjum um að kín­verska hag­kerfið sé á barmi falls, og fast­eigna­mark­að­ur­inn sé í reynd hrun­inn. Það sé bara ekki komið fram ennþá, vegna þess að stjórn­völd í Kína hafi alla þræði í hendi sér. Offjár­fest­ingin á honum eigi sér engan sögu­legan sam­an­burð og að kín­verskir bankar séu að halda uppi falskri stöðu á honum. Í frétta­bréfi sem Aliber sendir vinum og við­skipta­vinum sínum frá heim­ili sínu í New Hamps­hire, sagði hann árið 2012, að fast­eigna­bólan í Kína var „yfir­þyrm­andi“, „ósjálf­bær“ og dæmd fyrir brot­lend­ingu. Þá sáust fyrst og síð­ast góðar tölur um vöxt og hækkun verðs, en önnur og nei­kvæð­ari merki eru nú farin að sjást.

Tölurnar farnar að sýna merki um mikla kólnun

Þrátt fyrir að hag­tölur frá því í gær sýni að fast­eigna­verð hafi hækkað um 0,4 pró­sent í júlí miðað við mán­uð­inn á undan, þá hefur fast­eigna­verð heilt yfir Kína lækkað um 3,7 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum. Sum staðar í þessu risa­vaxna landi, sem er fjöl­menn­ast allra ríkja með íbúa­fjölda upp á 1,4 millj­arð, þá hefur mark­að­ur­inn hrunið og eftir standa þús­undir íbúða tómar í nýjum bygg­ingum. Annars staðar, þar sem mark­aðir eru þró­að­ari, meðal ann­ars í höf­uð­borg­inni Peking, eru merkin um hæga­gang ekki komin fram nema að litlu leyti. Ótrú­legar og for­dæma­lausar sveiflur á hluta­bréfa­mark­aði í Kína að und­an­förnu benda til þess að nú hrikti í stoð­unum. Á sama tíma og kast­ljós fjöl­miðla víð­ast hvar var á samn­inga­við­ræðum Grikkja við kröfu­hafa sína, Evr­ópu­sam­bandið og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn þar á meðal, guf­uðu upp verð­mæti sem námu fimmt­án­faldri árlegri land­fram­leiðslu Grikkja á einum degi. Svo fór að lokum að kín­versk stjórn­völd gripu inn í mark­að­inn og hafa síðan reynt að stýra verð­myndun á mark­aðnum og koma í veg fyrir að glund­roði skap­ist. Inngrip kín­verskra stjórn­valda voru um margt merki­leg. Þau voru ekki aðeins fólgin í almennum boðum og bönnum, eins og hefur alla tíð verið hálf­gerð þjóðar­í­þrótt í Kína þegar kemur að viðsiptum, heldur bár­ust beinar skip­anir til fyr­ir­tækja um að kaupa eigin hluta­bréf og búa til kaup­þrýst­ing. Yfir­maður í skráðu kín­versku fyr­ir­tæki lét hafa eftir sér að fyr­ir­tæki hans hafi fengið „beina skipun“ frá Verð­bréfa­eft­ir­liti Kína um að fram­fylgja fimm skrefum. Þau voru að láta stóra hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins kaupa fleiri bréf, kaupa eigin bréf, láta yfir­menn og milli­stjórn­endur kaupa hluta­bréf, inn­leiða kaup­hvata fyrir starfs­menn og kynna leiðir fyrir starfs­menn til að eign­ast hluta­bréf. Nýlegar ákvarð­anir stjórn­valda um að lækka gengi júans­ins, sú mesta síðan 1994, sýna að kín­versk stjórn­völd eru til­búin að gera ýmis­legt til þess að bæta versn­andi stöðu. En það er óljóst til lengdar hvaða áhrif hún hefur. Fall hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í dag, upp á 6,2 pró­sent, sýnir að traust fjár­festa til skráðra félaga er tak­markað í augna­blik­inu, að mati sér­fræð­ings JP Morgan.

Shanghai Composite Index tumbles 6.2% amid fresh anx­ieties about China's commitment to stea­dy­ing its stock market http://t.co/WJDCY3uLGz — Wall Street Journal (@WSJ) August 18, 2015

Dregur vagninn


Upp­gang­ur­inn í Kína und­an­farna tvo ára­tugi hefur ekki aðeins umbylt þessu fjöl­menn­asta ríki heims innan frá heldur hefur einnig byggt nýjar við­skiptapóli­tískar brýr. Margar stór­þjóðir hafa á skömmum tíma veðjað öðru fremur á mik­inn útflutn­ing til Kína, og er nær­tæk­ast að nefna stór hrá­vöru­hag­kerfi eins og Brasilíu, Rússland, Suður-Afríku og Noreg sömu­leiðis. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur einnig nefnt það sem áhyggju­efni fyrir efna­hag heims­ins að Kína og Indland, með 2,7 millj­arða íbúa af ríf­lega sjö millj­arða heild­ar­fjölda í heim­inum, hafi á skömmum tíma orðið að efna­hags­stór­veldum með til­heyr­andi nýjum teng­ingum við hag­kerfi ýmissa landa. Stutt saga þýðir í hugum sér­fræð­inga óvissa um hvað geti gerst ef það tekur að halla undan fæti hjá þessum risum. Hin rök­rétta ályktun er sú að hratt minnk­andi eft­ir­spurn í þessum löndum geti leitt til mik­illa erf­ið­leika hjá mörgum ríkjum sem reiða sig á eft­ir­spurn eftir hrá­vörum.

End­ur­skoðuð spá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins gerir ráð fyrir að hag­vöxtur í Kína verði 6,8 pró­sent á þessu ári. Sérfræði blogg sjóðs­ins, þar sem spáð er í fram­gangi efna­hags­mála í heim­inum, sýna að mikil óvissa er nú í spil­unum um hvert stefnir. Lækkun olíu­verð­is­ins á und­an­förnu ári, frá 110 Banda­ríkja­dölum niður í um 50 dali á fatið, hefur auk þess leitt til erf­ið­leika á hrá­vöru­mörk­uðum og fengið fjár­festa og fyr­ir­tæki til þess að halda að sér höndum. Fyrir vikið minnkar eft­ir­spurn eftir hinum ýmsum hrá­vörum, með þeim afleið­ingum að verð lækkar.

Í ljósi þess hversu mikil vítamín­sprauta upp­gang­ur­inn í Kína hefur verið fyrir efna­hags­líf heims­ins und­an­farin 20 ár er ekki óeðli­legt að margir horfi til þess með áhyggju­svip að óveð­ur­skýin séu að hrann­ast upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár