Kínverjar skikkuðu fyrirtæki og starfsmenn til að kaupa bréf

Eftir að hluta­bréfa­mark­aðir í Kína hrundu í gær skikk­uðu stjórn­völd þar í landi skráð fyr­ir­tæki, fyr­ir­tæki í rík­i­s­eigu og starfs­menn þeirra að kaupa hluta­bréf. Markaðir þar í landi eru nú aftur komnir í jafn­vægi. Þegar mark­aðir lok­uðu í Kína í dag voru helstu vísi­tölur jákvæðar um þrjú til sex pró­sent.

Fjölmörg skráð fyr­ir­tæki voru þó ekki í við­skiptum á mark­aði í dag en talið er að flestir hafi dregið við­skipti sín til baka til þess að koma í veg fyrir verð­fall bréfa sinna. Quartz greinir frá þessu.

Stjórn­völd í Kína hafa und­an­farna daga ráð­ist í aðgerðir til að glæða hluta­bréfa­mark­aði þar sem verð hluta­bréfa hefur fallið um 30 pró­sent á síð­ustu þremur vikum. Í byrjun júní hafði hluta­bréfa­verð hækkað um 150 pró­sent á einu ári og hafði aldrei verið jafn hátt í sjö ár. Þar af nemur lækk­unin 12 pró­sentum á síð­ustu viku. Verð­lækkun upp á þrjá­tíu pró­sent jafn­gildir öllu fram­leiðslu­virði Bret­lands á síð­asta ári.

Kjarninn fjall­aði um hluta­bréfa­krís­una í Kína þegar verð­fallið varð í gær. Þá var því velt upp að sumir telja krís­una vera jafn­vel alvar­legri en gríska efna­hag­skrísan vegna þess hversu stór hluta­bréfa­mark­að­ur­inn í Kína er.

Yfir­maður í skráðu kín­versku fyr­ir­tæki lét hafa eftir sér að fyr­ir­tæki hans hafi fengið „beina skipun“ frá Verð­bréfa­eft­ir­liti Kína um að fram­fylgja fimm skrefum. Þau voru að láta stóra hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins kaupa fleiri bréf, kaupa eigin bréf, láta yfir­menn og milli­stjórn­endur kaupa hluta­bréf, inn­leiða kaup­hvata fyrir starfs­menn og kynna leiðir fyrir starfs­menn til að eign­ast hluta­bréf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár