Titringur á Wall Street - Er mestu hækkunarsögunni lokið?

Hluta­bréfa­vísi­tölur víða um heim lækk­uðu mikið í gær og lok­aði mark­aðnum á Wall Street í gær þannig, að mesta dags­lækkun í fjögur ár varð stað­reynd. Lækkun Nasdaq vísi­töl­unnar var 3,52 pró­sent og lækkun S&P 500 3,19 pró­sent. Í Evrópu og Asíu var svip­aða sögu að segja. DAX vísi­talan í Þýska­landi lækk­aði um 2,95 pró­sent, CAC 40 vísi­talan í Frakk­landi um 3,2 pró­sent, FTSE í Bret­landi um 2,8 pró­sent og Nikkei í Japan um 2,98 pró­sent.

New York Times sagði í frétt sinni um þessar miklu lækk­anir á mörk­uðum, að dag­ur­inn í gær gæti markað enda­lok mestu hækk­un­ar­sögu sem fjár­mála­mark­aðir í Banda­ríkj­unum hafa séð. Sú saga hófst eftir hrunið á mörk­uðum, á árunum 2007 til 2009. Fjárinn­spýt­ing Seðla­banka Banda­ríkj­anna, og ann­arra seðla­banka heims­ins, með vext­ina við núlið hefur örvað efn­hags­líf og verð­bréfða­við­skipti ekki síst um ára­bil. Þetta sést á gangi mála á hluta­bréfa­mörk­uðum, en Nasdaq vísi­talan hefur á fimm árum farið úr 2.153 í 4.706 nú.

[caption id="attachment_37179" align="alignnone" width="609"] The New York Times sendi frá sér þetta frétta­skot á póst­lista sinn þegar mark­aðir lok­uðu í gær. Mynd: Skjáskot, The New York Times.[/caption]

Sá sem setti eina milljón Banda­ríkja­dali, 130 millj­ónir króna, í sjóð sem ávaxt­ast eftir Nasdaq vísi­töl­unni, fyrir fimm árum, á tæp­lega 2,2 millj­ónir Banda­ríkja­dala í dag, eða sem nemur 286 millj­ónum krónum á núver­andi gengi. Það gefur ákveðna mynd af því hvernig mark­aðir hafa ein­kennst af miklum hækk­unum á und­an­förnum árum.

Hvað er að gerast?


Hér í Banda­ríkj­unum hefur mikil umræða átt sér stað að und­an­förnu um hvort heims­bú­skap­ur­inn sé að sigla inn í djúpa lægð, ekki síst eftir að stjórn­völd í Kína tóku þá afdrifa­ríku ákvörðun að veikja gjald­miðil sinn, Júan, um tæp­lega tvö pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal, með það að mark­miði að örva útflutn­ings­hluta hag­kerf­is­ins. Þetta er mesta inn­grip stjórn­valda í Kína, af þessu tagi, síðan 1994 en frá þeim hefur svo til allt breyst í efna­hags­lífi Kína. Hag­vöxtur hefur verið á bil­inu sjö til 10 pró­sent í næstum tutt­ugu ár í röð, og hag­kerfið stækkað hratt og eft­ir­spurn auk­ist mikið. Þetta fjöl­menn­asta ríki heims­ins, með 1,4 millj­arða íbúa, er nú orðið efna­hags­stór­veldi, þó umdeil­an­legt sé á hversu traustum fótum það standi.

Eins og Kjarninn fjall­aði ítar­lega um á dög­unum, eru margir sér­fræð­ingar farnir að efast um kín­verska hag­kerfið og telja í reynd fyrstu merkin komin fram um að það sé að gefa hressi­lega eftir. Á meðal þeirra er Robert Z. Aliber, hag­fræði­pró­fessor og rit­höf­undur.


Global market rout intensifies as Dow plun­ges 531 points, and more top stor­ies. http://t.co/kzP5Epbd46


— Wall Street Journal (@WSJ) August 22, 2015

„Það er lík­legt að þetta sé fyrst og fremst leið­rétt­ing, sú fyrsta í fjögur ár,“ segir David Ros­en­berg, hag­fræð­ingur og sér­fræð­ingur hjá fyr­ir­tæk­inu Gluskin Sheff, í sam­tali við New York Times. Hann segir enn fremur að hag­tölur í Banda­ríkj­unum séu góðar í augna­blik­inu og þrátt fyrir erf­ið­leika og nei­kvæðni víða utan Banda­ríkj­anna, þá þurfi það ekki að þýða mikið lækk­un­ar­ferli á næst­unni. En það er ómögu­legt að segja, og nefnir Ros­en­berg meðal ann­ars að eftir því sem dregið er úr fjárinn­spýt­ingu seðla­banka, ekki síst í Banda­ríkj­unum, þá muni koma í ljós hvernig hag­kerfið muni bregð­ast við. Hugs­an­lega verði það mun erf­ið­ari mark­aður en hefur verið, en hugs­an­lega ekki. Eins og svo oft þegar hag­fræði­leg álita­mál eru ann­ars vegar, þá er vandi að spá fyrir um fram­tíð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár